Stefnir - 01.10.1951, Side 10

Stefnir - 01.10.1951, Side 10
8 STEFNIR neina viðleitni í því að aðstoða fjármálaráðherra Sjálfstæðis- manna við að halda jafnvægi í ríkisbúskapnum, en núverandi fjármálaráðherra hefur hins veg- ar notið mjög einlægs stuðnings ráðherra Sjálfstæðisflokksins við allar tilraunir hans til að spyrna gegn síhækkandi ríkisútgjöldum. Á síðasta þingi var gerð til- raun til að draga saman seglin með því að leggja niður ýms em- bætli og gera aðrar ráðstafanir til að minnka ríkisútgjöldin. Því miður hefur ekki orðið það framhald á þessum ráðstöfunum, sem flestir hafa vonast eftir. Er auðvitað við marga erfiðleika að etja, meðan haldið er uppi hóf- lausum kröfum á hendur ríkis- sjóði um útgjöld til allra hluta. en ríkisstjórnin verður að kveða slíkar kröfur niður, svo sem auðið er. Snúa verður við í tœka tíð. Þrátt fyrir það, að gert er ráð fyrir framlengingu allra skatta, gerir lítið betur en tekjur og gjöld standist á í hinu nýja fjár- lagafrumvarpi. Er þó þar aðeins reiknað með kaupgjaldsvísitölu 141 stig, en það mun reynast of lágt. Með svipaðri þróun á næsta ári verður ekki séð hversu komizt verður hjá greiðsluþroti á árinu 1953, því að engum mun væntan- lega hugkvæmast, að auðið sé að leggja á nýja skatta. Virðast því síðustu forvöð að nema staðar, áður en í fullt óefni er komið, og reyna að draga saman seglin. Naumast verður um annað að ræða en samþykkja lítið breytt fjárlagafrumvarp það, sem nú liggur fyrir þinginu, en það er mjög leitt, að fjármálaráðherra skuli ekki hafa undirbúið neinar meiri háttar tillögur um sparn- að, svo að auðið væri að létta fólkinu sívaxandi dýrtíð með einhverri lækkun skatta. Eins og horfur eru mun ríkis- stjórnin ekki komast hjá því að láta nú þegar hefja víðtæka at- hugun á því, hversu létt verði svo á ríkissjóði, að hægt verði að koma saman greiðsluhallalausum fjárlögum á næsta ári. Ég trúi ekki öðru en þjóðin hafi al- mennt skilning á því, að einhverju verði að fórna til þess að geta snúið við, áður en út í algert kviksyndi er komið. Ungir Sjálfstœðismenn og Landsfundurinn. Nýlokið er nú fjölmennasta Landsfundi, sem Sjálfstæðisflokk-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.