Stefnir - 01.10.1951, Side 22
r
'i
MENN OG MÁLEFNI
Jóhann Þ. Jösefsson
Jóhann Þ. Jósefsson er fæddur
í Fagurlyst í Vestmannaeyjum
17. júní árið 1886. Þar bjuggu
foreldrar hans, Guðrún Þorkels-
dóttir og Jósef Valdason, skip-
stjóri, kunnur dugnaðar og gáfu-
maSur. FaSir Jóhanns drukknaSi,
þegar hann var á fyrsta ári. StóS
móSir hans þá uppi bláfátæk
með 3 börn. Giftist hún síðar
Magnúsi Guðlaugssyni, sem var
formaður á bát, en hann drukkn-
aði árið 1901.
Þegar Jóhann misti stjúpföður
sinn, sem gengið hafði honum og
bræðrum hans í föður stað, var
hann nýfermdur. Gerðist hann þá
fyrirvinna móður sinnar. Efni
heimilisins voru lítil. En Jóhann
Þ. Jósefsson var frá blautu barns-
beini alinn upp við mikla vinnu.
Um það bil 10 ára gamall réðist
hann í fiskvinnu og fékk þá 8
aura í kaup á klst.
Sjálfmenntaður maður.
Menntun fékk hann enga, utan
barnaskólalærdóms. -— En áhugi
hans fyrir að mennta sig vai svo
ríkur og einlægur, að honum tókst
þegar á æskuárum að verða ágæt-
lega menntaður maður. Hann var
um nokkurt árabil forstöðumað-
ur franska sjúkrahússins í Eyjum.
Þar umgekkst hann franska lækna
hjúkrunarfólk og sjómenn. Af
þeim og með eigin bóknámi nam
hann franska tungu svo vel, að
hann talar hana síðan og les reip-
rennandi. Norðurlandamál, ensku
og þýzku lærði hann mest að tala
af sjómönnum þessara þjóða, sem
viðskipli höfðu í Vestmannaeyj-
um, en stundaði einnig eigið bók-
nám. Er óhætt að fullyrða, að
hann sé meðal færustu mála-
manna landsins, enda þótt hann
hafi ekkert tungumál numiö í
skóla og enga kennara haft i þeim,