Stefnir - 01.10.1951, Blaðsíða 23
MENN OG MÁLEFNI
21
nema Magnús Jónsson, er var
sýslumaður í Eyjum, sem las m'eð
honum fáeina tíma í ensku. Sýn-
ir slík sjálfsmenntun fágætan
dugnað og námshæfileika.
Skömmu eftir lát stjúpföður
síns réðst Jóhann til verzlunar-
starfa við verzlun Gísla J. John-
sen í Vestmannaeyjum. Vann hann
þar í 9 ár eða þar til hann stofn-
aði sjálfstætt verzlunar- og út-
gerðarfyrirtæki með hinum kunnu
athafnamönnum, Gunnari Olafs-
syni, konsúl, og Pétri Thorsteins-
son frá Bíldudal. Starfaði hann
við það fyrirtæki meðan hann álti
heimili í Eyjum og er meðeigandi
í því enn þann dag í dag. Var
það áratugum saman eitt með
helztu atvinnurekendum í Eyjum
og er enn með hæstu gjaldend-
um til bæjarsjóðs.
Viðtœk afskipti af atvinnu-
málum.
Jóhann Þ. Jósefsson reyndist
þegar á unga aldri vel til forystu
fallinn. Það kom í hans hlut að
hafa víðtæk afskipti og forgöngu
um framfaramál byggðarlags síns.
í Vestmannaeyjum byggðist at-
hafnalíf mjög á sjósókn og fisk-
veiðum. Það hlaut því að vera
mikils um vert, að útvegsmenn
og sjómenn hefðu með sér skipu-
Jóhann I*. Jósefsson 18 ára samall.
lögð samtök um hagnýtingu afla
síns. Sú varð einnig raunin á, að
þar var riðið á vaðið með stofnun
ýmsra félagasamtaka útvegs-
manna. Má þar tilnefna Fisksölu-
samlag og Lifrarsamlag, en í
báðum þessum þýðingarmiklu
samtökum var Jóhann Þ. Jósefs-
son kjörinn formaður um langt
árabil. Formaður í Lifrarsam-
laginu er hann ennþá. Þessi sam-
tök hafa unnið atvinnulífinu í
Vestmannaeyj um ómetanlegt
gagn.
Björgunarmálin.
Björgunar- og slysavarnarmál
voru Eyjabúum af eðlilegum á-