Stefnir - 01.10.1951, Page 30

Stefnir - 01.10.1951, Page 30
28 STEFNIR jjFagurlyst'4 í Vestmannaeyjum. Boston í U.S.A., Ágústu, sem gift er ísleifi Pálssyni, verzlunar- manni í Reykjavík og Ólaf, flug- stjóra, er fórst með flugvélinni „Glitfaxa“, er týndist 31. jan. þ. á. í ferð milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Eina dóttur, Unni, missti Jóhann árið 1931 er hún var um tvítugt. Heimili Jóhanns og konu hans er nú á Bergstaðastræti 86 í Reykjavík. Fluttu þau þangað frá Eyjum árið 1935. Vegna stöðugra ferðalaga á vegum rík- isstjórnarinnar og starfa í Reykja vík út af viðskiptasamningum var búseta í Eyjum þá orðin ó- hægari en áður. Síðastl. 1—2 ár hefur Jóhann gegnt framkvæmdastjórastörfum hjá Sölusambandi ísl. fiskfram- leiðenda, en í stjórn þess fyrir- tækis hefur hann átt sæti nær 20 ár. Þróttmikill athafna- og hœfi— leikamaður. Jóhann Þ. Jósefsson er fríður maður, nokkuð yfir meðallag á hæð. I allri framkomu er hann prúður og viðfeldinn. Af starfs- ferli hans, sem rakinn hefur ver- ið í stórum dráttum hér að fram- an má marka, að hann hefur verið þróttmikill athafnamaður, sem

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.