Stefnir - 01.10.1951, Page 35

Stefnir - 01.10.1951, Page 35
HVERS VEGNA ÉG YFIRGAF KOMMÚNISMANN 33 einhver blettur í þeirri járn- brynju, sem flokkurinn færir meðlimi sína í. Það er eingöngu undir atvikunum komið, hvort þessi veira er þegar afhjúpuð og grandskoðuð, er hún gerir vart við sig. Hvað mig snerti var það al- gjörlega persónuleg afstaða sem réði, en við mennirnir erum svo ólíkir, að engir tveir ganga nokk- urntíma alveg sömu leið. Það var enginn einstakur atburður, sem á einu vettvangi batt enda á kommúnismann hjá mér. Það grófst undan honum smám sam- an og það komu mörg atriði inn í, áður en þessum þróunarferli var að fullu lokið. En það mikilvægast af öllu var, að efinn gerði vart við sig, því að um leið og marxisti byrj- ar að efast, þá er búið með hans marxisma. Efinn er hættulegasti óvinur marxismans, því að marx- ismann verður annað hvort að meðtaka án fyrirvara eða hafna honum. Árum saman hafði ég, sem kommúnistiskur skriffinnur ráðist á katólsku kirkjuna með hinum vanalegu fullyrðingum um að hún væri fasistisk Slíkar árásir voru mjög vin- sælar meðal lesenda okkar og höfðu auk þess tvöföld áhrif. Þær svertu sterkustu andstæðinga okkar, katólikkana og fasistana samtímis, og aðeins það var nóg til að réttlæta þær. Vegna greinaflokks nokkurs var ég ákærður af katólsku blaði fyrir meiðyrði, en ég hafði ásakað það um að vera í höndum fasista. Áður en málið kom fyrir rétt settist ég við og athugaði blaðið betur en ég hafði áður gert.. Þetta gerði ég til að undir- búa vörn mína, og til þess að skilja andstæðinga mína betur, byrjaði ég að lesa skrif helztu blaðamanna blaðsins og útgef- enda þess. Það voru einkum Hilaire Belloc og C. K. Chester- ton, sem ég las. Það réði örlög- um mínum. Ég skildi andstæð- inga mína alltof vel og sá, að það voru þeir, sem höfðu rétt fyrir sér, en að ég hafði algjör- lega vaðið í villur. Eina áhuga- málið, sem ég hafði haft auk kommúnismans var ást mín á menningu miðaldanna. Það var mín heill, því að í katólska hlað- inu fann ég sömu ástina og virð- inguna fyrir þessari menningu. í fyrstu las ég aðeins það, er viðkom menningaráhuga mínum, en þetta leiddi til þess að ég las annað í blaðinu með talsvert meiri vinsemd en ég hafði áður gert. Nauðugur varð ég hvað eft-

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.