Stefnir - 01.10.1951, Side 47

Stefnir - 01.10.1951, Side 47
UMBROTIN í HOLLYWOOD 45 myndastjarna fyrr né síöar grætt á leik sínum í tveim kvikmynd- um. í LOK ársins 1928 hófu allir fram leiðendur framleiðslu talmynda. Það leiddi til mikilla umskipta fyrir mikinn liluta leikkraftanna í Hollywood. Framleiðendurnir í Hollywood fengu hreinustu Broadway-svki Leikarar, leiksviðsstjórar, hijóm- listarmenn og rithöfundar, sem þekktir voru í leiklisLrrlífinu í New York, fengu nú hin glæsi- legustu tilboð frá Hollywood Og flestir tóku boðunum. Það v:-.r hrein pílagrímsferð frá New York til Hollywood og New York sá á bak flestu sínu þekkta leik- listarfólki. Þetta náði einnig til kvikmyndaleikarannt., sem ; mórg um tilfellum höfðu margra ára ára samninga, en voru nú keypt- ir út úr samnir.gunum með gifur- legum fjárhæðum. Til dæmis mætti nefna Monte Blue, sem þá var ein vinsælasta kvikmyndastjarnan. Rétt áður en talmyndirnar komu, undirritaði hann nýjan fimm ára samning við Warner Bros, en þar hafði hann unnið í mörg ár. Félagið fann út, að hann var ekki vel fallinn til að leika í tal- myndum og keypti hann út úr samningnum með 250.000 dollur- um. Fjölda mörg fleiri dærni mætti nefna. I mörgum tilfellum gerðu fram- leiðendurnir skyssur í vali leik- ara. Jafnvel þó margir leiksviðs- leikararnir væru snjallir í fram- sagnarlistinni voru þeir ekki vel fallnir til að leika í kvikmyndum. Þá skorti hinn sérstæða „mynd- persónuleika,“ sem er svo nauð- synlegur á hvíta léreftinu, og náðu ekki hylli kvikmyndahúsa- gesta, sem í mörgum tilfellum söknuðu eftirlætis leikara sinna. SVO SKEÐI hið undarlega, að margir fyrrverandi kvikmynda- stjörnur leituðu til leikhúsanna og kom þá í ljós, að þeir voru mjög hæfir leiksviðsleikarar, jafnframt því sem þeir með sín- um þekktu nöfnum drógu að hús- fyllir. Gegnum leiksviðið heppn- aðist svo mörgum þeirra að kom- ast aftur að við kvikmyndir, en aðrir hurfu með öllu. Fyrir út- lendu leikarana var ástandið verst. Þeir töluðu enskuna með erlendum hreim og framleiðend- urnir þorðu ekki að láta þá leika í kvikmyndum, þar til loks Greta Garbo ruddi þeim leiðina. Hún var svo örugg í sessi, að Metro-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.