Stefnir - 01.10.1951, Page 48

Stefnir - 01.10.1951, Page 48
46 STEFNIR Goldwyn-Mayer framleiddu þögl- ar myndir, sem hún lék í allt fram til ársins 1930, og þessar þöglu myndir meS henni drógu eftir sem áður að sér góða aðsókn þrátt fyrir talmyndirnar. Sumarið 1930 kom svo fyrsta talmyndin, sem hún lék í: Það var „Anna Christie“ og Gréta Garbo sló einnig í gegn í tal- myndum. Það kom í ljós, að hin- ar erlendu áherzlur hennar voru ekki til skaða heldur hið gagn- stæða. Þetta leiddi til þess, að fjöldi útlendinga fékk atvinnu á ný og náðu miklum vinsældum. Meðal annarra var Ernst Rolf, sem kom til Hollywood vorið 1930 og gerði þá samning við Parmount um að leika í revyu- myndum. Ráðningartíminn átti að hefj- ast 1931, en revyu-myndirnar, sem þá höfðu verið einráðar á mörk- uðunum í þrjú ár, misstu nú að fullu vinsældir sínar, og Par- mount keypli Ernst Rolf út úr þessum eins árs samningi, sem hann hafði, fyrir 100.000 kr. Má því segja, að þessi tíu daga dvöl hans í Hollywood 1930 hafi ver- ið mjög vel launuð. EFTIR ÞRIGGJA ára tærandi og taugaæsandi tímabil, meðan óviss- an og tilviljunin höfðu ríkt í Hollywood, byrjaði loksins að komast á ró í kvikmyndabænum árið 1930. Mikil umbrot höfðu oröið, en nú var ekki lengur neinn vafi á, að talmyndin hafði sigrað fyrir fullt og allt. Og það því heldur sem hljómtökutækin voru bætt að verulegum mun. Talmyndin hafði átt við mikla tæknilega erfiðleika að stríða fyrstu árin. Hreyfanlegir hljóðnemar voru ekki til, og hljóð og tal varö að taka upp með ítrustu varfærni. Leikararnir urðu að standa eða sitja hver um sig undir föstum hljóðnema er þeir töluðu, og hljóðnemarnir voru svo við- kvæmnir, að sérhvert smá utan- aðkomandi hljóð, svo sem fóta- tak eða ef dyr voru opnaöar, kom fram eins og hreinasti skark- ali. Utimyndir var ógjörlegt að taka með hljóm og þessvegna voru allar útimyndir úr sögunni. Þann- ig hurfu t. d. allar kúrekamyndir af markaðnum. 1930 VAR komið svo langt, að til voru hreyfanlegir hljóðupp- takarar, sem settir voru í bíla og hreyfanlegir hljóðnemar, sem gerðu leikurunum fært að hreyfa sig meðan á upptökunni stóð. Nú varð hraði og hreyfingar í tal-

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.