Stefnir - 01.10.1951, Qupperneq 54
52
STEFNIR
aftur 1913, þó skorpan sé auð-
vitað þynnri hér en annars stað-
ar. En það er ekki hættulegt.
Eins og þér sjáið, hafa þeir inn-
fæddu troðið stíg hérna þvert yf-
ir, og hér er alltaf talsverð um-
ferð, af því að stígurinn er hag-
kvæm leið fyrir gangandi, bæði
til rannsóknarstofunnar og hvíld-
arheimilis stjórnarinnar. Aðeins
um reglutímann er lífshætta að
ferðast hérna megin í fjallinu“.
„Það sem á sér stað, er“, hélt
hún áfram, meðan við gengum
niður eftir aftur, „að regnið
hripar niður í sprungur á hraun-
skorpunni, sem er tiltölulega
þunn, og þegar bleytan kemur
niður í kraumandi og sjóðandi
leðjuna undir skorpunni, gjósa
kraftmiklir gufustrókar gegnum
rifurnar á skorpunni. Margir ó-
aðgætnir innfæddir menn hafa
brunnið til dauða af að fara yf-
ir hraunið í rigningu“.
Næsta morgunn komumst við
heldur ekki af stað. Regntíminn
var bryjaður í Belgiska Kongo
og flutningabíllinn sat fastur inn
í frumskóginum, hundrað kíló-
metra frá Stanleyville. Við feng-
um skeyti um, að vörurnar yrðu
sendar áfram með innfæddum
burðarmönnum. Það hlaut því að
líða annar dagur, áður en við
gætum lagt af stað.
„Og svo kemur rigningin hing-
að,“ sagði Mary. „Ég held að
við ættum að fara niður að flug-
vélinni og dveljast þar í nótt. Ef
regnið kemur verðum við lokuð
frá umheiminum af nýja hraun-
inu og við verðum neydd til að
fara alla leið vesur fyrir fjall-
ið. Það er ferð, sem undir venju-
legum kringumstæðum tekur
fimm daga og um regntímann sjö
eða át-ta.
Og á meðan deyr óberstinn
hugsaði ég, og ég sá að Mary
hugsaði það sama.
Anton Kaas mótmælti. Svo
lengi sem loftvogin sýndi ekki
regn, var fyrra að yfirgefa
rannsóknarstöðina til að eyða
nóttinni í svo óþægilegum dval-
arstað sem flugvélinni. „Við skul-
um a. m. k. bíða þar til við sjá-
um regnskýin út við sjóndeild-
arhringinn,“ sagði hann.
Þessum degi eyddi ég með
Anton Kaas og meðan við sátum
saman og röbbuðum yfir vínglös-
unum, styrktist sá grunur minn
að þessi ungi verkfræðingur ætti
ekki heima í hitabeltinu. Hann
hataði Afríku.
Þegar á allt var litið hafði
Anton Kaas ýmsa slæma eigin-
leika. Hann var smámunalegur
og valdagráöugur. Á heimili sínu
í Belgíu hefur hann áreiðanlega