Stefnir - 01.10.1951, Page 61

Stefnir - 01.10.1951, Page 61
GETUM VÉR BÆTT MINNIÐ 59 Lítum að síðustu á eftirfarandi þrettán orð: „Ég, gekk, út, í, garðinn, og, þar, sá, ég, dreng, detta, í, tjörnina“. Þetta munið þér eftir að hafa lesið það einu sinni. Þarna er ekki hvert orð aðeins tengt því næsta, heldur myndar öll orðaröðin setningu sem raunveruleg merking er í. Það er þannig mun auðveldara að muna hluti sem tengdir eru við vort daglega líf, heldur en merk- ingarlausar romsur. Hjá ungbörn- um og vitgrennri mönnum er minn ið þó venjulega vélrænt eins og hið meiningarlausa þvaður hjá páfagauk í búri. Hjá fullorðnum, hugsandi miinnum er lærdómur- inn mest fólginn í meðvitaðri eftirtekt og öll æðri form lær- dómsins eru fólgin í því, að skipa hugmyndunum í kerfi. Hin raun- verulega starfsemi heilans er ekki að tengja heldur að skipu- leggja, ekki aðeins að leggja fjölda af múrsteinum í samliggj- andi röð, heldur að byggja upp úr þessari röð herbergi og hús. Niðurstaða af fjölmörguin at- hugunum er sú, að vér höfum komist að raun um ýmsilegt um minnisstarfsemina, og að mikill hluti hinna almennu skoðana er rangur. Það er almenn skoðun að barn geti þroskað minnis- hæfni sína með því að læra dag- lega langar romsur af orðum, töl- um eða kvæðum — hlutum sem þau hafa engan áhuga á né gagn af. Menn ímynda sér, að minnið sé hæfileiki sem auðið sé að þroska með andlegri leikfimi líkt og vöðvarnir í handleggjun- um verða sterkari við reglu- bundnar æfingar við nótnaborð. Tilraunir hafa sannað að þetta er rangt. Þótt þér getið munað einhver ákveðin orð í röð. getur það ekki hjálpað yður með annan hóp orða. Hæfileikinn til að muna er meðfæddur eiginleiki, sem hver af oss öðlast við fæðinguna. Það getur verið mismunandi á ýms- um sviðum, og það getur verið betur þroskað hjá einum en öðr- um. —■ En hjá hverjum og ein- um helzt það nokkuð óbreytt þótt menn breytizt við sjúkdóma og hærri aldur. ÞÉR GETIÐ þannig ekki bætt minni yðar í orðsins eigin- legu merkingu, en þér getið gert meira úr því minni sem þér haf- ið. Hvernig það er hægt, má glögglega sjá af þeim dæmum, sem ég hef nefnt. Minnið hvílir fyrst og fremst á hugmyndasam- henginu, og því verðið þér að byggja flest á því.

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.