Börn og menning - 01.09.2007, Page 35

Börn og menning - 01.09.2007, Page 35
Svona varð ég til 33 Pabbinn er mcð typpi og mamman cr með rifu. eftir að bókin um Tuma og Möggu kom út séu konur enn með „rifu". Ég las bókina fyrir Iftinn vin minn og hann horfði á mig stórum augum þegar kom að þessu orði og spurði hvort mamma hans væri rifin. Hvernig stendur á því að enn þann dag í dag skuli það vera svo að litlar stúlkur þurfi að alast upp við það að kynfæri þeirra séu nafnlaus og skammarleg og að skásta orðið sem hægt er að bjóða þeim upp á á prenti sé rifa? Eða kannast einhver fullorðin kona við það að tala um „rifuna" á sér þegar hún tjáir sig um kynfæri sín? Ég verð reyndar að viðurkenna að ég á ekkert orð sem gæti komið í staðinn, sem sýnir kannski hver staðan er á nafngiftum. Kynfæri kvenna og þeldökkir Bandaríkjamenn eiga það sameiginlegt að öll orð sem upp eru tekin til að nefna hvort tveggja verða umsvifalaust að skammaryrðum, þannig að þótt stöðugt sé verið að finna upp ný orð eru þau farin að hafa neikvæða merkingu innan tíðar og því eru þessi fyrirbæri á stöðugum flótta í tungumálinu og yfirleitt nafnlaus á flóttanum. ( þessu samhengi má benda á hóp sem sneri neikvæðri merkingu orðs sér í hag en það eru hommar. Þeir héldu áfram að nota orðið hommi um sjálfa sig, þó að það hefði gjarnan verið notað sem skammaryrði, og niðurstaðan varð sú að skammaryrðið dó út en orðið „hommi" hélt velli og varð þægilegt, sjálfsagt og eðlilegt í málinu. Alíslenska orðið „píka" á kannski sömu örlög skilin? Bók eins og Svona varð ég til er einn besti vettvangur sem fyrirfinnst til að koma einhverju nothæfu orði, píka eða einhverju öðru, yfir kynfæri kvenna inn í málvitund barna og foreldra og það er synd að þýðandinn skuli ekki hafa gripið það tækifæri. Frábær bók En þó að fyrrnefnd atriði hafi farið aðeins í taugarnar á mér er bókin frábær. Hún svarar algengum spurningum um þetta mikilvæga mál á skemmtilegan og skilmerkilegan hátt og skilur samt eftir pláss fyrir fullt af spurningum sem börn og foreldrar geta notið í sameiningu að velta fyrir sér. Myndirnar eru líka eins og myndir í barnabókum gerast bestar, því þær segja oft á tíðum sína eigin sögu, stækka þannig viðfangsefnið og vekja áhuga og spurningar sem ekki er rúm fyrir í flæðí textans. Sögumaður opnar svo á alveg nýja umræðu í lokin um mótun einstaklingsins og alls kyns skemmtilega heimspeki þar að lútandi. Að lokum vil ég skora á alla foreldra stráka og stelpna að koma sér upp orði í staðinn fyrir „rifa" og nota það feimnislaust. Höfundur er bókmenntafræðingur

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.