Börn og menning - 01.09.2007, Qupperneq 36

Börn og menning - 01.09.2007, Qupperneq 36
34 Börn og menning Brynhildur Björnsdóttir Spýtustrákur í Borgarleikhúsinu Allir kannast við söguna um spýtustrákinn Gosa og ævintýri hans. Allir, greinilega, nema ég þangað til ég fór á samnefnt leikrit í Borgarleikhúsinu. Ég vissi satt að segja mjög lítið út á hvað sagan um Gosa gekk, mundi óljóst eftir pabba sem hvalur gleypti og nefi sem lengdist. Og auðvitað dreng úr tré sem verður að manni. En sagan af Gosa kom mér á óvart enda troðfull af boðskap, furðulegum og oft sundurlausum ævintýrum og krydduð hæfilega örlitlum óhugnaði. í Borgarleikhúsinu er þessi saga sögð í því sem er ekki hægt að lýsa öðruvísi en með erlendu slettunni „show" sem hér verður framvegis kallað „sjóv". Arfleifðar Walt Disney sér hér víða stað og einnig má finna lyktina af l/l/est End eða Broadway. Leikgerð Karls Ágústs Úlfssonar gægist öðruhvoru fram milli flugeldasýninga og stórviðþurða I leikmynd og búningum, tónlistog dansi og erhún Ijómandi vel unnin og fyndin á köflum, einkum þegar leikið er með mörk leikhúss og raunveruleika með liprum vísunum í leikarana sjálfa. Ólíkir straumar í litríkri sýningu ( þessari sýningu mætast ólíkir straumar og stefnur. Barbí og persónur úr söngleiknum Cats, mjög dæmigerður spýtustrákur og harla óvenjuleg engispretta, sirkusstjóri sem lítur út eins og sjóræningi og sjóræningi sem lítur út eins og klæðskiptingur, þörungar, hvalir, bleikar marmarahallir og pappaskógar, allt á þetta sér stað í sýningunni og má kannski helst telja það til galla hennar. Þessi sýning veit ekki alveg hvað hún ætlar að verða og reynir þess vegna að vera allt í einu. Leikmynd, búningar, dansar og tónlist - allt er þetta einkar fagmannlega og stórmannlega leyst af hendi - sem verður til þess að talmálið verður útundan og það var auðheyrt að ungir áhorfendur höfðu afar litla þolinmæði fyrir langar samræður á sviðinu eftir stórkostlegt dans- og söngatriði. Leikritið sjálft verður því hornreka í öllu „sjóvinu". Kostir sýningarinnar liggja samt líka í því hvað hún er stórbrotin, litrík og lifandi. Leikmyndin er glæsileg og hvergi til sparað, leikhúslausnir eru fagmannlega unnar og tækniatriði á sviði einkar vel leyst, til dæmis þegar nefið á Gosa lengist af ósannsögli og þegar börnin á skipinu breytast í asna. Ég verð að hrósa sérstaklega neðansjávaratriðinu sem er svo fallegt að það liggur við að það eitt og sér geri ferð á sýnínguna að skyldu fyrir unga sem aldna. Þó má aftur benda á að stundum er enn meiri galdur fólginn í því að leyfa ímyndunaraflinu að dansa með á sviðinu frekar en að láta það sitja úti í sal. Stundum er ósýnilegur hvalur enn áhrifameiri en sýnilegur þótt hvalurinn í þessu tilfelli hafi vissulega verið sjón að sjá. Töfraljómi á sviðinu Leikarar stóðu sig allir vel. Sumir skemmtikraftar eru búnir að vera svo oft og mikið í sviðsljósinu að áran þeirra verður stærri en annarra og einhver töfraljómi er yfir öllu sem þeir gera á sviði. Sverrir Þór Sverrisson er hér með orðinn einn af þeim og glansaði þannig í hlutverki sínu sem Tumi engispretta að það sást varla í nokkurn annan þegar hann var á sviðinu, jafnvel þótt hann væri alveg kyrr og fylgdist af einlægri athygli með því sem aðrir voru að gera. Engisprettutaktar hans voru ennfremur vel unnir og sannfærandi. Það var einna helst hinn frábæri leikari Jóhann Sigurðarson sem garmli leikfangasmiðurinn fátæki sem náði að vera sýnilegur í návist Sveppa og

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.