Dagur - 12.02.1988, Blaðsíða 3
Dagur 70 ára:
Kveðja jrá blaðstjóm
Framkvæmdir við nýbyggingu Dags eru langt komnar.
Fyrir sjötíu árum hóf Dagur göngu
sína. Petta kann að þykja stuttur tími
en þegar litið er á sögu íslenskra ijöl-
miðla kemur í ljós að Dagur er með
þeim elstu. Upphaflega var stofnað
til Dags af samvinnu- og framsókn-
armönnum og fjallaði blaðið einkum
um þjóðfélagsmál að þeirra tíma
hætti. Smám saman breytti blaðið um
svip og gerðist fréttamiðill í æ ríkari
mæli. Umfram allt hefur blaðið lagt
áherslu á að vera málsvari norð-
lenskra byggða og hefur tekist vel
upp á því sviði. Saga blaðsins er rak-
in annars staðar í afmælisritinu og
því óþarfi að gera það öllu frekar að
umtalsefni - utan þeirra tímamóta
sem urðu þegar Dagur var gerður að
dagblaði í septembermánuði 1985.
Þar með gat blaðið þjónað lesendum
sínum mun betur en nokkru sinni
fyrr. Auk þess má nefna að Dagur
hefur sinnt vel kröfunni um norð-
lenskar fréttir því blaðið hefur í þjón-
ustu sinni blaðamenn á Blönduósi,
Sauðárkróki og Húsavík. Nýlega var
svo ráðinn blaðamaður með aðsetri í
Reykjavík svo ljóst má vera að Dagur
er nú betur í stakk búinn að miðla
fróðleik og upplýsingum en nokkru
sinni fyrr.
Nú stendur Dagur í stórræðum. Á
síðasta ári var ákveðið að hefja bygg-
ingu nýs húss fyrir ritstjórn og skrif-
stofur blaðsins og reisa um leið
prentsal fyrir almenna prentun. Gert
er ráð fyrir að nýja húsið verði tekið
í notkun um mitt þetta ár. Þar með
batnar til muna öll aðstaða fyrir
starfsfólk og mun það skila sér í enn
betra blaði. í þessu sambandi má
minnast þess að í kveðjugrein sem
birtist í Degi á sextíu ára afmæli
blaðsins var þess m.a. getið að nú
væri blaðið að fiytjast í nýtt húsnæði
sem þá var við Tryggvabraut. Vöxtur
blaðsins á þeim tíma sem liðinn er
hefur verið slíkur að það hús, sem
flestir töldu vel við vöxt, varð brátt of
lítið og því var ákveðið að festa kaup
á húsnæði við Strandgötu. Á stund-
um getur verið erfitt að spá í framtíð-
ina og á síðasta ári var ljóst að
núverandi húsnæði dygði hvergi vax-
andi fyrirtæki.
Á þessum merku tímamótum í
sögu Dags sendir blaðstjórn hugheil-
ar kveðjur öllum starfsmönnum
blaðsins, áskrifendum þess og við-
skiptavinum. Dagur gegnir mikils-
verðu hlutverki í norðlenskum
byggðum - hann hefur stutt við bakið
á mörgum þjóðþrifamálum og séð til
þess að norðlenskar skoðanir hafa
komist til skila.
F.h. blaðstjórnar,
Valur Arnþórsson formaður
Dagur 70 ára
3