Börn og menning - 2019, Síða 18
Börn og menningPB
Krúttið gerir uppreisn
Stúfur hættir að vera jólasveinn
Höfundur: Eva Rún
Þorgeirsdóttir
Myndir: Blær Guðmundsdóttir
Bókabeitan, 2019
Á mörgum íslenskum heimilum er
varla hægt að halda jól án þess að
draga fram Jólin koma eftir Jóhannes
úr Kötlum og rifja upp vísurnar um
jólasveinana, Grýlu og jólaköttinn.
Auk þeirrar sígildu bókar koma ár-
lega út margar bækur sem tengjast
jólum, sumar frumsamdar á íslensku
en aðrar þýddar og þær síðartöldu fjalla oftast um allt
aðra jólasveina en við eigum að venjast. Í þeim bókum
býr jólasveinninn gjarnan á Norðurpólnum með álfum
og ferðast um á fljúgandi hreindýrasleða á jólanótt til
að dreifa gjöfum; sem dæmi um það má nefna bókina
Töfraheimur jólanna: Jólabókin (útg. Setberg) þar sem
jólasveinninn býr reyndar inni í skógi. Gjörólík henni
er Skuggahliðin jólanna (höf. Eva María Jónsdóttir
og Rósa Þorsteinsdóttir, útg. Bjartur) þar sem safnað
er saman kvæðum og sögum um íslenskar kynjaverur
úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar; sú bók gæti verið
skemmtileg og fróðleg viðbót við jólavísur Jóhannes-
ar. Einnig er nýútkomið eins konar jóladagatal, Snjó-
systirin eftir Maja Lunde, í vandaðri þýðingu Silju
Aðalsteinsdóttur og með einstaklega fallegum mynd-
um Lisu Aisato (útg. Mál og menning) – en þar koma
engir jólasveinar við sögu þótt sagan snúist að miklu
leyti um jólaandann. Í anda þessa eintaks af Börnum og
menningu var hins vegar valið að glugga
í skemmtisögu um íslenskan jólasvein,
jólaköttinn og litla telpu, enda er það
orðin hálfgerð jólahefð að spinna nýjar
sögur og kvæði um Grýlusyni.
Við fullorðna fólkið vitum að það
þarf að gera ótal margt fyrir jólin, þrífa
og baka, skrifa jólakort og gjafalista,
búa til aðventukransa, skreyta og setja
upp jólaseríur og alls konar aðra hluti
sem eru alveg ómissandi í okkar huga
og taka mikinn tíma. Í bók Evu Rúnar
Þorgeirsdóttur um Stúf kemur fram að
„fullorðnu“ jólasveinarnir eru líka önn-
um kafnir, þurfa til dæmis að mála sleðann og fara yfir
nafnalista til að gleyma engu barni sem á að fá í skóinn
og mega ekki vera að neinu „dúlleríi“ eins og að skreyta
jólasveinahellinn. Stúfur er ekki sáttur við það, finnst
að jólin eigi að vera tími til að njóta lífsins og vera laus
við stress, svo að hann ákveður að hætta að vera jóla-
sveinn og hefja nýtt líf. Það reynist flóknara en hann
grunar.
Jólasveinar nútímans hafa tekið gríðarmiklum
breytingum frá fyrri tíð þegar hálftröllin voru myrkra-
verur og óvættir sem hrekktu menn og meiddu, stálu
og skemmdu í svartasta skammdeginu. Þeir voru fleiri
en þrettán, jafnvel fleiri en áttatíu, og áttu líka systur
– til dæmis Leiðindaskjóðu, Leppatusku og Skottu –
en Jóhannes úr Kötlum festi þrettán þeirra í huga okk-
ar og þegar tímar liðu fram urðu þeir að sveinunum
sem skemmta á aðventunni, gefa í skóinn og mæta á
jólaböllin. Ýmislegt utan úr heimi hefur runnið saman
Magnea J. Matthíasdóttir
Bækur