Börn og menning - 2019, Blaðsíða 33

Börn og menning - 2019, Blaðsíða 33
33Hvað þarf raunverulega til þess að búa til barn? og karlkyns læknir standa brosandi við hlið hennar og virðast raunar halda henni niðri. Gott og vel. Hver bók er barn síns tíma og þessi bók kom út í kjölfar hippatímabilsins og kynlífsbyltingar þess. Bókin Sådan får man et barn fer ekki endilega með fleipur, en ólíklegt er að þessi saga sé í smáatriðum sönn fyrir marga lesendur hennar, þrátt fyrir að fylgja full- komlega hugmyndum heterónormsins. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir gagnkynhneigðum for- eldrum, í öðru lagi er gert ráð fyrir að barnið (þ.e. les- andinn, því að við erum að velta fyrir okkur speglun hans í bókum) hafi verið búið til af foreldrum sínum, í þriðja lagi gerir bókin ráð fyrir að þessir foreldrar hafi búið barnið til í trúboðastellingunni í rúminu heima. Svona mætti lengi telja. Bókin kemur raunar aðeins inn á að sáðfruma renni saman við egg, en það er algjört aukaatriði í söguþræðinum. Þessi bók var vinsæl á sínum tíma og var endurútgef- in á íslensku árið 2010, þá með titlinum Svona verða börnin til, í þýðingu Ólafíu Erlu Svansdóttur. „Við gáfum hana út í gríni, fyrir fullorðið fólk með nostalgíu, en hún fór náttúrlega beint í barnadeildina,“ sagði útgefandinn og þýðandinn Ólafía í samtali við greinarhöfund. Ferlið strípað niður Tveimur árum síðar, árið 2012, hóf kanadíski kyn- fræðingurinn Cory Silverberg söfnun á Kickstarter fyrir útgáfu barnabókarinnar What makes a baby? sem leitast við að svara nákvæmlega sömu spurningu, en á allt ann- an hátt. Þetta er einmitt bókin sem ég keypti nýverið á sænsku í útgáfu Olika förlag, Hur görs bebisar? Í bókinni útskýrir höfundurinn ferlið á fullkomlega strípaðan hátt, aldrei er talað um mæður eða feður, aldrei kynlíf eða fjölskyldumynstur. Höfundur sneiðir listilega fram hjá gagnkynhneigða norminu. Inngilding er höfð að leiðarljósi, en það er íslensk þýðing á enska orðinu inclusion og felur í sér að allir einstaklingar inn- an tiltekins hóps fái notið sín og séu viðurkenndir sem fullgildir þátttakendur. En hvernig verða börnin eiginlega til? Er til eitt rétt svar? Hvað gildir raunverulega fyrir alla? Þetta: Egg- fruma og sáðfruma renna saman og mynda okfrumu. DNA-upplýsingar úr hvorri frumu um sig sameinast á ákveðinn hátt og skila sér inn í nýjan einstakling. Ekki flókið. Þannig er sagan sögð í bók Silverberg. Aldrei er talað um hvernig sáðfruman og eggið eru leidd saman. Spyrji barnið spurninga getur foreldri valið að segja frá ferl- inu sem varð til þess að þetta tiltekna barn varð til og jafnvel útskýrt í kjölfarið að til séu fleiri leiðir til að búa til börn. Hvað er einföldun? Það er ekki hlaupið að því að útskýra þetta ferli án einföldunar. Við erum svo skilyrt af samfélaginu okk- ar, viðmiðum þess og gildum. Við kunnum svarið við þessari spurningu utan að – hvernig verða börnin til? Svar: Þegar mömmur og pabbar elska hvort annað rosa- lega mikið faðmast þau lengi, lengi og þannig verður til barn. Í þessu svari eru aftur á móti engar raunverulegar upplýsingar og það er í raun verulega langt frá sannleika ótal margra barna, jafnvel þeirra sem urðu til á hefð- bundinn hátt heterónormsins. Hér er komin bók sem segir sannleikann um öll börn. Líka þau sem eru ættleidd (það voru ekki mamma þeirra og pabbi sem bjuggu þau til). Líka þau sem urðu til utan hjónabands. Líka börn sem urðu til í tilrauna- glasi, alveg óháð því hvort þau eiga tvo pabba, tvær mömmur eða færri eða fleiri. Það er meira að segja gert rými fyrir börn sem hafa orðið til við staðgöngumæðr- un, því jafnvel þar sem slíkt er ólöglegt eru samt til börn sem hafa orðið þannig til – og þau hafa sannarlega líka rétt á að skilja tilvist sína til fullnustu, án þess að vera sett í annan flokk.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.