Börn og menning - 2019, Blaðsíða 27

Börn og menning - 2019, Blaðsíða 27
27Villueyjar bera nafn með rentu Kórinnu frá farandsöngvurunum hefur hún í raun aldrei átt vin eða vinkonu. Eins og munaðarlaus börn bók- menntasögunnar allt frá Önnu í Grænuhlíð til Harrys Potters vita, þá er það ekki tekið út með sældinni að vera útvalinn, hvort sem það er vegna skáldagáfu, galdra eða óræðra tengsla við Forn-Kelta eins og hér. Arilda er þó alls ekki klisjukennd eða fyrirsjáanleg persóna, hún er áhugaverð blanda af sjálfsþekkingu og vanmætti, hefur gríðarlega hæfileika á afmörkuðum sviðum en er fullkomlega hjálparvana á öðrum. Lýsingarnar á því hvernig hún tekst á við vinaleysið í skólanum og leik- þættirnir sem hún setur á svið til að enginn haldi að hún sé einmana eða aumkunarverð fylla lesandann í senn aðdáun og sorg. Rétt eins og Koparborgin er Villueyjar bæði gríðarlega spennandi bók og á köflum ansi grimmdarleg. Plágan sem geisaði í Koparborginni kallaði fram skelfingu og fullorðið fólk myrti lítil börn af ótta við að plágan dreifði sér. Einnig hér fremur fólk hræðileg voðaverk – ýmist af ótta eða græðgi. Ragnhildi tekst sérlega vel upp þegar hún lýsir samskiptum barna og fullorðinna þar sem valdajafn- vægið er hinum fullorðnu alltaf í vil á yfirborðinu en oft- ar en ekki vita börnin betur og þurfa að fara aðrar leiðir til að leita réttar síns og réttlætis. Kennarar sem neita að trúa orðum Arildu um hætturnar á eyjunni stimpla hana móðursjúka eða lygara, henni er kennt um slys bróður síns og enginn hlustar á hana. Hungrið og líkamleg mein svíða sárt en sárar svíður óréttlætið, fátt er verra en að vera hafður fyrir rangri sök. Sigurvegararnir skrifa söguna Rétt eins og það borgar sig ekki alltaf að treysta landa- kortum getur verið varhugavert að trúa öðrum opin- berum skjölum. Harmræn saga leynist marandi í kafi undir mýrunum á Útsölum og undir vatnsyfirborðinu í kringum Eylöndin öll. Sú ósagða saga undirstrikar mikilvægi þess að lesa ekki mannkynssöguna gagn- rýnilaust. Það eru sigurvegararnir sem skrifa söguna og þeir skrifa það sem kemur þeim vel. Alltaf er til önn- ur hlið sem gjarnan er óskráð. Hér er það saga drúída sem voru æðstuprestar Forn-Kelta. Ekki er margt vitað um þá annað en að þeir þekktu mikið til náttúrulækn- inga og voru af þeim sökum taldir hafa yfirnáttúrulega hæfileika. Öll þekking þeirra og kunnátta var varðveitt í munnlegri geymd og hefur því glatast. Í Villueyjum eru það farandsöngvararnir sem geyma brot úr sögu þeirra í söngvum sínum og máttur þeirra söngva reyn- ist vera talsverður. En ekki síður skoðar skáldsagan ný- lendustefnu stórvelda og hvernig saga þeirra, saga okkar á Vesturlöndum, er saga ofbeldis, kúgunar og eyði- leggingar, þar sem náttúra, önnur menning og mannslíf voru einskis metin af ráðandi öflum. Í frásögninni af farandsöngvurunum, sem má með góðum vilja tengja Rómafólki nútímans, liggur svo annar þráður, prýðilega spunninn, sem skoðar hvernig stoltri þjóð sem átti sín réttindi og sínar hefðir, hefur smám saman verið ýtt upp að vegg. Viðbrögð samfé- lagsins við farandsöngvurunum og viðbrögð söngvar- anna við því sýna afskaplega vel hvernig samskipti geta spillst og hvernig sífelld neikvæð mismunun elur af sér úlfúð og hatur. Villueyjar bjóða þó ekki upp á neinar einfaldar skýringar eða lausnir, bara áhrifaríkar myndir. Söguþráðurinn verður undir lokin örlítið ruglingsleg- ur og tengsl Arildu við drúídana flókin og óljós. Það dregur þó ekki úr spennunni og við sögulok getur les- andinn ekki annað en vonað að framhalds sé að vænta. Hér hefur verið nostrað við hvert smáatriði, frásögnin er æsispennandi, persónurnar vel unnar og heimurinn heillandi. Höfundur er leikkona og bókmenntafræðingur Koparborgin, frumraun Ragnhildar Hólmgeirsdóttur.

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.