Börn og menning - 2019, Blaðsíða 28

Börn og menning - 2019, Blaðsíða 28
Verk sem lifir Helga Birgisdóttir Bækur Mikill fengur er að nýjasta verki Margrétar Tryggva- dóttur, Kjarval: Málarinn sem fór sínar eigin leiðir sem fjallar og líf og störf eins ástsælasta málara þjóðarinnar, Jóhannesar Kjarvals (1885-1972). Um er að ræða stórt og glæsilegt rit- og myndverk sem erfitt er að skilgreina eða flokka. Það er þó alls ekki löstur nema síður sé – tilvalið fyrir kynslóðirnar að njóta bókarinnar saman. Líklegt er þó að að hún muni verma hillur barna- og unglingabóka í bókabúðum en hún á ekki síður erindi með bókum almenns eðlis eða listaverkabókum. Saga listamanns og saga þjóðar Bókin hefst um það bil sem pilturinn Jóhannes Sveins- son fæddist árið 1885, að bænum Efri-Ey í Meðallandi, og lýkur í Reykjavík árið 1972 þegar útför listamanns- ins Jóhannesar Kjarvals fer fram. Margrét Tryggvadótt- ir segir sögu málarans og verka hans í 91 stuttum og vandlega myndskreyttum kafla. Hún rekur persónulega sögu hans og fjölskyldu hans, fjallar um vini hans og fé- laga, list hans og þroska hans sem listamanns og hvernig verkin breyttust með tíð og tíma. Um leið og saga Kjarvals er rakin fræðast lesendur ekki aðeins um listamanninn Kjarval heldur einnig um málaralist og hvað það er að vera listamaður; hvað þeir gera, hvert þeir fara, hvar þeir læra og hvað það er sem þeir græða og hverju þeir þurfa að fórna. Málarinn sem fór sínar eigin leiðir segir líka sögu lands og þjóðar og í bókinni birtist góður aldarspegill, enda spannar hún megnið af tuttugustu öldinni. Lesendur fá innsýn í lífsbaráttu fátæks kotbónda og fjölskyldu hans rétt fyr- ir aldamót, fræðast um hversu erfitt lífið var á Íslandi í upphafi aldar, um samskipti Íslands og Danmerkur og sögu Reykjavíkur. Margréti tekst mjög vel að flétta saman persónulega sögu Kjarvals og þjóðarinnar svo úr verður ein heild og má hér sem dæmi nefna frásögn hennar af vinsældum Kjarvals og hvernig hún tengir þær við aukna velmegun þjóðarinnar samfara seinni heimsstyrjöldinni og hernáminu. Um þetta má lesa í íðilfögrum kafla sem ber heitið „Sá var vinsæll!“ Að segja frá Frásagnarmátinn er hreinn og beinn. Textanum er skipt upp í fremur stuttar efnisgreinar, málsgreinar yf- irleitt hvorki langar né flúraðar en þar með er alls ekki Kjarval: Málarinn sem fór sínar eigin leiðir Texti: Margrét Tryggvadóttir Kápa og hönnun: Alexandra Buhl Iðunn, Reykjavík 2019

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.