Morgunblaðið - 28.01.2021, Síða 42

Morgunblaðið - 28.01.2021, Síða 42
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Linda segist hafa fengið nokkuð frjálsar hendur við gerð kökunnar og skipuleggjendur auglýsing- arinnar hafi sýnt sér mikið traust. „Ég sendi nokkrar hugmyndir um útlit kökunnar á stílista auglýsing- arinnar sem voru samþykktar. Ég fékk ákveðnar leiðbeiningar eins og til dæmis að Cheerios-ið ætti ekki að vera malað heldur ættu hringirnir að vera heilir. Kakan átti líka að líta út fyrir að vera einföld og ég fór skref- inu lengra og gerði uppskriftina líka mjög einfalda. Kakan öll inniheldur bara sex innihaldsefni, það þarf ekki að setja hana inn í bakarofn, tekur stutta stund að smella henni saman og er upplagt að gera hana með dags fyrirvara,“ segir Linda Bragðgóð, einföld og nostalgísk „Hugmynd mín á bak við kökuna var að endurhanna klassísku morg- unkornskökurnar sem við mörg hver þekkjum og setja þær í nýjan búning sem við höfum mögulega ekki séð áður. Kökurnar eru alveg ótrúlega góð- ar, Cheeriosinu er velt upp úr smjör- bræddum sykurpúðum og sett í bollakökuform. Kökurnar eru seigar og stökkar en kremið ofan á gefur þeim meiri raka svo þær verða eins og karamella. Bollakökunum raðaði ég svo upp í turn til að skapa þessa glæsilegu margra hæða köku,“ segir Linda en kakan hefur vakið athygli eins og áður segir og sú sem þetta ritar fengið þó nokkrar fyrirspurnir frá lesendum um hvernig kakan sé gerð. Rúsínan í pylsuendanum er síðan hversu góð kakan er en Linda segist afar ánægð með útkomuna. „Hún smakkaðist mjög vel, ég gat varla hætt að narta í það sem varð eftir af deiginu. Uppáhaldsparturinn minn er þó alltaf þegar búið er að mynda kökurnar svo hægt sé að byrja að borða þær,“ segir Linda og talar af reynslu því fyrir jólin sendi hún frá sér bókina Kökur, sem sló í gegn. Með mörg járn í eldinum Linda segist hægt og rólega vera að komast niður á jörðina eftir jóla- bókaflóðið og velgengni bókarinnar. „Bókin fékk alveg frábærar viðtökur og hefur verið söluhæsta mat- reiðslubók landsins frá því hún byrj- aði í sölu, sem ég er gríðarlega þakk- lát fyrir. Núna fer öll mín orka í að skipuleggja nýja hluti sem munu koma í ljós á árinu, ég er ótrúlega spennt að segja betur frá þeim en það verður að bíða þar til nær dreg- ur,“ segir Linda og ljóst er að það er mikils að vænta fyrir matgæðinga og fagurkera sem fylgja Lindu á sam- félagsmiðlum en Linda er einn þekktasti áhrifavaldurinn þar og segir að verkefnin sem hún taki að sér séu mjög fjölbreytt. „Sem uppskriftahöfundur, mat- arstílisti og áhrifavaldur á In- stagram fæ ég mjög mikið af mis- munandi verkefnum. Ég er mest að gera efni fyrir síðuna mína Linda- ben.is og Instagramið mitt en ég vinn einnig mikið með auglýsinga- stofum og fyrirtækjum beint við það að stílisera matarauglýsingar og finnst það ótrúlega skemmtilegt. Bollakökur 170 g Cheerios 280 g sykurpúðar 50 g smjör Krem 200 g mjúkt smjör 400 g flórsykur 1 dl rjómi 1 dl bragðlaus olía til að setja deigið í form Byrjið á því að bræða smjör og syk- urpúða á vægum hita í frekar stórum potti, það mun taka nokkrar mínútut og nauðsynlegt að velta sykur- púðunum með sleikju á meðan þeir bráðna. Setjið Cheeriosið út í og veltið því svo það hjúpist allt í sykurpúðum. Setjið 24 stk. pappírsbollakökuform í bolla- kökuálbakka (ég notaði tvo bakka) og skiptið deiginu á milli forma. Nauðsynlegt er að nota tvær skeiðar til að skipta deiginu í formin og velta þeim alltaf upp úr bragðlausri olíu áður en þær eru settar í deigið. Setj- ið kökurnar í kæli á meðan kremið er útbúið. Þeytið smjörið ásamt flórsykri og rjóma þar til kremið er orðið mjög mjúkt, létt og loftmikið. Setjið krem- ið í sprautupoka með stórum opnum stjörnustút. Takið kökurnar úr pappírsformunum og sprautið á hverja köku. Raðið kök- unum í hring á kökudisk, klippið hring úr smjör- pappír sem er svolítið minni en hringurinn sem kökurnar mynda á disk- inum. Setjið smjörpapp- írinn á kökurnar og aðrar kökur ofan á (kremið mun klessast örlítið á kökunum fyrir neðan en það er allt í góðu), endurtakið með afgang- inn af kökunum. Skreytið til dæmis með gylltu matar- glimmeri og nammi. Kakan sem allir eru að tala um Ljósmynd/Ari Magg Kaka ársins Auglýsingin sem vakið hefur mikla athygli og þá ekki síst kakan sem þykir einstaklega girnileg og einfalt að búa til. Cheerios-auglýsingarnar hafa glatt þjóðina undanfarna mánuði þar sem þjóðþekktir einstaklingar gæða sér á því og njóta. Ein þessara auglýsinga sýnir tónlistarkonuna og prjónasnillinginn Sölku Sól ásamt fjölskyldu sinni. Á myndinni er forláta kaka úr Cheerios en fæstir vita að kakan kemur úr smiðju Lindu Ben. Ljósmynd/Linda Ben Einföld og æðisleg Oft þarf ekki að vera flókið að gera góða köku. Linda Ben MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021 Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30 Mjög gott úrval af gæðakjöti LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 ÚTSALA 50% AFSLÁTTUR AF UMGJÖRÐUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.