Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 64
MÁNUDAGINN
8. FEBRÚAR
ALLT AÐ
60%
AF VÖLDUM
VÖRUM
Útsölulok
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Daníel Bjarnason og horndeild Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands verða í
aðalhlutverkum á tónleikum í Eld-
borg í kvöld kl. 20. Horndeildin flyt-
ur fjörugt verk fyrir fjögur horn eft-
ir Robert Schumann undir stjórn
Daníels Bjarnasonar. Einnig verður
flutt Over Light Earth eftir Daníel
frá árinu 2012 og er um frumflutn-
ing á Íslandi að ræða. Verkið er inn-
blásið af málverkum Marks Rothkos
og Jacksons Pollocks og var samið að beiðni Fílharm-
óníusveitarinnar í Los Angeles og frumflutt þar undir
stjórn Johns Adams en á efnisskrá kvöldsins er einnig
verk eftir hann sem nefnist Shaker Loops og er frá árinu
1983. Telst það eitt af meistaraverkum naumhyggju í
tónlist. Í samræmi við sóttvarnalög er sætaframboð á
tónleikana takmarkað við 100 tónleikagesti í fjórum
sóttvarnahólfum í Eldborg og eru minnst tvö auð sæti á
milli allra pantana til að tryggja nálægðarmörk milli
gesta. Gestum ber skylda til að vera með grímu. Tónleik-
unum verður einnig útvarpað beint á Rás 1.
Horndeildin í aðalhlutverki
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 28. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Íslandsmeistaralið Vals í fótbolta karla hefur stigið
skref í átt að atvinnumennsku með því að æfa eins og
atvinnulið tvo daga í viku. Leikmenn Vals mæta í vinn-
una á Hlíðarenda klukkan níu á morgnana, æfa fyrir og
eftir hádegi, fá morgunmat og hádegismat og eru farn-
ir heim klukkan hálffimm. Morgunblaðið ræddi við
Heimi Guðjónsson þjálfara og Birki Má Sævarsson, leik-
mann Vals, um þessa tilraun og báðir lýsa þeir yfir
ánægju með hvernig hún fer af stað. »55
Valsmenn æfa eins og atvinnulið
tvo daga í hverri viku
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Völundurinn Einar S. Sigurjónsson
tekur daginn snemma og býr til
ýmsa muni í bílskúrnum sér og öðr-
um til gagns og gamans. „Ég er
núna að búa til litla kertastjaka,“
segir Einar, en hann hefur meðal
annars rennt skálar af ýmsum gerð-
um, til dæmis prjónaskálar, og smíð-
að brauð-, kjöt- og ostabretti, einnig
tvenns lags spil, sem notið hafa mik-
illa vinsælda hjá öllum aldurshópum.
Selfyssingurinn, sem bjó 14 fyrstu
árin á Eyrarbakka, hefur komið víða
við. Hann vann á trésmíðaverkstæði
í heimabænum, ók m.a. í mörg ár
með Moggann til blaðbera eftir að
hann flutti til Reykjavíkur, keyrði
strætó og rútur, og var leigubílstjóri
í yfir 20 ár áður en hann tók við
starfi forsetabílstjóra og ók Ólafi
Ragnari og Guðna samtals í 16 ár.
Hann hætti síðastnefnda starfinu
vegna veikinda fyrir ríflega tveimur
árum og einhenti sér í sköpunina
skömmu síðar. „Ég vildi hafa eitt-
hvað fyrir stafni, var orðinn of gam-
all á vinnumarkaðnum, en neyðin
kennir naktri konu að spinna og
timbrið hefur alltaf átt ítök í mér
enda má segja að hamarinn hafi ætíð
verið innan seilingar.“
Kynntust hjá forsetanum
Vigdís Bjarnadóttir, eiginkona
Einars, vann í 39 ár á skrifstofu for-
seta Íslands og þar kynntust þau.
Hún hætti 2007, fór aftur í skóla,
brautskráðist með BS-próf í um-
hverfisskipulagi í Landbúnaðar-
háskólanum á Hvanneyri, lauk námi
í Leiðsöguskólanum og starfaði sem
leiðsögumaður í tæp átta ár, en fór á
fullt í myndlistina þegar Einar hætti
að vinna.
„Við erum heppin að hafa góða
vinnuaðstöðu fyrir þessi hugðarefni
okkar,“ segir Einar.
Ánægjan er fyrir öllu og réttu tól-
in og tækin auðvelda vinnuna. Einar
nýtur þess að eiga góðar vélar og er
sérlega hreykinn af trérennibekk
sínum. „Hérna er ég líka með verk-
færi sem ég hef átt síðan ég var 17
ára,“ segir hann hreykinn.
Hugmyndirnar fær hann ekki síst
á netinu. „Finna má allt á Youtube
og þar eru góðar leiðbeiningar,
manni er nánast kennt allt,“ segir
Einar. Hann fór á námskeið hjá
Trausta Bergmann Óskarssyni í
Handverkshúsinu fyrir um tveimur
árum og þeir eru reglulega í sam-
bandi. „Hann er frumkvöðull í þessu
renniverki og hefur farið á milli
landa til þess að dæma í keppni í
rennismíði.“
Einar smíðar einkum úr íslensku
birki, sem hann kaupir frá Hall-
ormsstað, eik og lerki. Hann reynir
að nýta allt efni sem hann fær og fær
stöðugt nýjar hugmyndir. „Það eina
sem ég hendi er spænir og afsag,“
segir hann og bætir við að hann lími
kubba saman til að búa síðan til
muni. „Það kraumar alltaf eitthvað í
hausnum þótt ekki verði allar hugs-
anir að veruleika.“ Selfyssingurinn
lítur ánægður yfir farinn veg.
„Ég er mjög stoltur af því að hafa
starfað fyrir forseta Íslands. Það var
mjög viðburðaríkt og erilsamt starf,
en alltaf eitthvað skemmtilegt og
spennandi í gangi, en auðvitað er
margs að minnast þegar maður lítur
til baka. Það var til dæmis mikið
hlegið þegar ég keyrði snillingana í
Spaugstofunni á milli upptökustaða
á árum áður, almennur hlátur allan
daginn, og ekki var gleðin minni
þegar ég var rótari hjá Mánum um
tíma. Það lá við að ég ynni fyrir ekki
neitt, svo gaman var þetta.“
Ætíð gleði og ánægja
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í bílskúrnum Einar S. Sigurjónsson við nokkra muni sem hann hefur gert.
Einar fór úr forsetabílnum í völundarsmíði í bílskúrnum
Nákvæmni Einar er vandvirkur til allra verka og einbeitir sér að vinnunni.