Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 40
Marta María
mm@mbl.is
Með fallegri mottu getur þú gjör-
breytt stemningunni á heimilinu á
einu augabragði og það góða er að
það þarf ekki að kosta svo mikla pen-
inga. Dökkar flísar og dökk viðargólf
eru bæði falleg og vinsæl. Hins vegar
geta þessi gólf tekið mikið ljós frá
rýmum, sérstaklega gluggalausum
göngum sem eru málaðir í möttum,
dökkum litum sem hafa verið svo
vinsælir. Renningar eða mottur í
léttari tónum eða jafnvel líflegum lit
brjóta upp þessi rými og gera heim-
ilið meira lifandi. Ef þú málar vegg-
ina er auðvelt að skipta mottunni út
og svo getur þú tekið hana með þér
ef þú flytur, sem er alltaf mikill kost-
ur.
Mottur eru ekki bara fallegar fyrir
augað heldur geta þær stúkað rýmið
af. Skipt því upp í mismunandi svæði
og breytt um stemningu á núll einni
án þess að fara út í stjarnfræðilegan
kostnað eins og að skipta um gólf-
efni. Þú getur notað uppáhalds-
mottuna sem grunn að litasamsetn-
ingu herbergisins eða bætt henni við
Hlekkurinn sem vantar í keðjuna
Margir líta á mottu sem „punktinn
yfir i-ið“ í herberginu. Mottan getur
þó einnig verið upphafspunkturinn,
litaspjaldið sem þú notar til að
hanna útlit rýmisins. Mottan á gólf-
inu fæst í Húsgagnahöllinni.
Hlýkeiki Hér sést hvern-
ig motta er notuð til að
stúka af stóra stofu í
fallegu húsi í Brasilíu.
Í gamla daga voru fínustu heimili landsins teppa-
lögð í hólf og gólf. Í dag eru parketlögð og flísalögð
móðins og hafa þau teppalögðu í hólf og gólf vikið
þótt það sjáist stöku sinnum á íslenskum heimilum.
Fólk stendur þó oft frammi fyrir því að það skortir
hlýleika og þá koma mottur eins og himnasending.
Gæti motta
bjargað lífi þínu?
Taktu snúning
Hringlaga mottur
njóta mikilla vin-
sælda. Þessar fást í
Húsgagnahöllinni.
Verndaðu
gólfefnið Ef
parketið er
rándýrt og
viðkvæmt er
sniðugt að
setja mottu
undir borð-
stofuborðið
svo parketið
láti ekki á sjá
eftir korter.
Þessi motta
fæst í Hús-
gagnahöllinni.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021
Glucosamine
& Chondroitin
Complex
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Allt að 3
mánaða
skammtur
í glasi.
Þetta bætiefni inniheldur glúkósamín og kondtrótín súlfat en þessi tvö
efni hafa reynst mörgum vel fyrir liðina.
Dagsskammtur inniheldur 1000 mg af glúkósamíni og 200 mg af
kondrótíni ásamt engifer, túrmerik, C-vítamíni og rósaldin (rosehips).
C -vítamín stuðlar að eðlilegri myndun kollagens fyrir
eðlilega starfsemi brjósks.
Í þínu liði fyrir þína liðheilsu