Morgunblaðið - 28.01.2021, Side 48
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
VALTÝR EYJÓLFSSON
frá Lambavatni, Rauðasandi,
lést á Hrafnistu Hafnarfirði 14. janúar.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ
föstudaginn 29. janúar klukkan 11.
Eyjólfur V. Valtýsson Ludene Valtýsson
Sigurður H. Valtýsson Siv E. Sæmundsdóttir
Bylgja Valtýsdóttir Jóhann Sigurþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021
✝ Þór Emil Niel-sen Eiríksson
fæddist 26. maí
1941 í Reykjavík.
Hann lést 19. des-
ember 2020 á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi.
Foreldrar hans
voru Grethe Niel-
sen, f. 28. nóv. 1915,
d. 7. feb. 1989, Ei-
ríkur Marínó
Bergsson, f. 15. okt. 1919, d. 20.
nóv. 1990. Systkini Katla Niel-
sen Eiríksdóttir, f. 19. júní 1949,
d. 7. okt. 2004, og Guðríður Hall-
dórsdóttir, 31. maí 1950.
Eiginkona Þórs er Kristín
Bjarney Guðmundsdóttir, fædd
3. maí 1945. Börn, Sigurður Þór
Þórsson, fæddur 20. mars 1964.
Móðir Þorbjörg Gyða Thorberg,
f. 20. apríl 1947, d. 6. sept. 2006.
Börn Þórs og Bjarneyjar, Birgir
Nielsen Þórsson, fæddur 11. feb.
1974, eiginkona Kolbrún Anna
Rúnarsdóttir, Grétar Þór Þórs-
son, fæddur 14. apríl 1981, í
sambúð með Karen Birnu Guð-
jónsdóttur. Gísli Þór Guðmunds-
son, fæddur 29. des. 1962, eig-
inkona Sólveig Ósk Hallgríms-
dóttir, fædd 5. júlí 1964.
og sem starfsmaður í Sundlaug
Breiðholts. Þegar hann var sex-
tán ára var hann munstraður á
Eimskipsfraktara sem sigldi á
Ameríku, meðal annars til New
York. Á þeim tíma gat viðlega
fraktara í hverri höfn varað
allt frá nokkrum dögum upp í
vikur. Sú var reyndin í Stóra
Eplinu. Sá hann með eigin aug-
um og sótti tónleika allra helstu
rokkstjarna sjötta áratugarins
eins og Fats Domino, Jerry Lee
Lewis svo einhverjir eru taldir
til. Þarf ekki að hafa orð um að
þetta var meira en draumi lík-
ast fyrir 16 ára unglinginn að
upplifa. Áhrifin flutti hann með
sér heim eins og áður segir. Frá
18-19 ára aldri tróð hann upp
með ýmsum sveitum hvort
heldur sinni eigin eða öðrum
eins og City sextett, Ásum,
Þórsmönnum og Glæsi, upp-
dressaðir og fínir með brillj-
antín í hári. Hér heima spilaði
hann með öllum helstu kanón-
um rokktónlistarinnar. Eft-
irspurnin var mikil eftir lifandi
tónlist, hvort heldur í Reykja-
vík og svo ekki sé talað um her-
stöðina á Keflavíkurflugvelli.
Hljómsveitir tróðu oft og iðu-
lega upp á „beisnum“ í herstöð-
inni á Miðnesheiði og var Þór
engin undantekning í þeim efn-
um.
Við fögnum farsælu lífi Þórs
Emils Nielsen Eiríkssonar og
biðjum honum blessunar Guðs
um alla eilífð.
Þór Emil Nielsen
ólst upp í Vest-
urbænum á
Brekkustíg 6a. Á
æskuárum lágu
leiðir þeirra systk-
ina oft sumarlangt
til Vejle í Dan-
mörku á heimaslóð-
ir móður þeirra.
Honum var oft
hugsað til þessarar
dvalar í Danmörku
þar sem umhverfið var allt ann-
að en hér heima og átti það eftir
að marka djúp spor í hans lífi.
Þór var mikill fluguveiðimaður
og var talinn einn besti flugu-
hnýtari sem við Íslendingar höf-
um átt. Annað sem byrjaði
snemma hjá Þór var söngurinn.
Nokkur sumur dvaldist hann í
sveit í Efri-Lækjardal, þar söng
hann fyrir krakkana í sveitinni.
Þeim sem þekktu til Þórs á hans
yngri árum kann ekki að hafa
komið á óvart að frá 18 ára aldri
spilaði hann og söng í ýmsum
hljómsveitum þar sem spilað var
fyrir dansi sex kvöld í viku fyrir
utan aðra vinnu. Í gegnum tíð-
ina vann hann meðal annars í
útivistardeild Útilífs, við út-
keyrslu og lagerstörf í heildsölu
Elsku pabbi minn, nú ertu far-
inn í sumarlandið og mjög lík-
lega kominn á árbakkann þar
sem þú undir þér best. Búinn að
koma þér vel fyrir, kasta eins og
þér einum var lagið og með réttu
fluguna undir. Mér finnst samt
eins og þú sért ekki farinn frá
okkur, varst með okkur í anda öll
jólin þú litli jólakarl. Já þú varst
það svo sannarlega og smitaðir
okkur hin í jólagleðinni, það eru
góðar minningar. Það er oft talað
um að maður sé aldrei tilbúinn
fyrir ástvinamissi og það er bara
þannig; alveg sama hversu kúl
maður þykist vera og sterkur
maður er, þá er þetta staðan.
Það var búið að vera á brattann
að sækja hjá þér pabbi minn og
þú búinn að eiga við erfið veik-
indi en þú kveinkaðir þér ekki
mikið þrátt fyrir erfiðan enda-
sprett. Ég fór inn á vinnustofuna
þína nú fyrir nokkrum dögum og
fékk mér sæti.
Ég dokaði um stund og virti
dýrðina fyrir mér og það verður
að segjast alveg eins og er að
vart er hægt að lýsa því með orð-
um sem tekur á móti manni þar
inni. Allt svo gjörsamlega skipu-
lagt, mætti halda að fjöldi verk-
fræðinga hefði unnið við þessa
uppsetningu á öllum veiðibúnað-
inum og hnýtingagræjunum og
öllu því sem því fylgir. Og auðvit-
að rifjast upp minningar, margar
eru góðar, þú varst okkur góður
pabbi og eiginmaður en rosalega
sérvitur og þá sérstaklega á allar
þessar græjur, bæði sem tengd-
ust veiðinni eða músíkinni, ég
man að mér þótti þetta allt svo
skrýtið þegar ég var lítill hvernig
þú umgekkst alla hluti og allt
gert af svo mikilli nákvæmni, þú
kenndir manni þetta snemma að
bera endalausa virðingu fyrir öll-
um hlutum og náttúrunni. Þú
varst mikill náttúrumaður sem
elskaði landið sitt og þú varst
alltaf tilbúinn til að miðla. Það
eru margir sem hafa einhvern
tímann notað flugu frá Þór Niel-
sen en þú þóttir framúrskarandi
í þeirri grein. Má þar nefna sér-
staklega Black Killer sem þú
hannaðir árið 1965.
Þingvellir, Elliðavatn og Víf-
ilsstaðavatn voru þínir heima-
vellir og byrjaðir þú ungur að
veiða á flugu 15 ára gamall á
bambusstöng sem amma Olga
gaf þér og það breytti lífi þínu til
framtíðar.
Ég er svo glaður og þakklátur
í hjarta mínu að við gerðum svo
margt saman. Allir veiðitúrarnir
sem þú fórst með okkur bræður í
og ekki má gleyma þínum létt-
dökka húmor sem sveif yfir og
allir frasarnir maður minn, við
munum varðveita þá vel. Eftir-
minnileg er ferðin okkar til Vejle
í Danmörku þar sem við fórum á
þínar æskuslóðir, það var stór-
kostleg ferð.
Einnig fórum við í sólina
nokkrum sinnum, þér leiddist
það nú ekki, og að sjálfsögðu lét-
um við gamlan draum rætast og
fórum að sjá okkar menn í Liver-
pool skora nokkur mörk á An-
field. Það eru svo góðar minn-
ingar sem skipta svo miklu máli
núna.
Ég syrgi þig pabbi nú, ég
elska þig svo heitt og ég sakna
þín, takk fyrir allt og við munum
hugsa vel um mömmu, ekki hafa
áhyggjur af því. Starfsfólki á
Landspítala og líknardeild fær-
um við fjölskyldan bestu þakkir
og auðmýkt fyrir alla þá hlýju
sem okkur var sýnd þrátt fyrir
erfiðar og krefjandi aðstæður.
Þú gengur aldrei einn (You
never walk alone).
Þinn sonur,
Birgir Nielsen Þórsson.
Snillingur, nú ertu farinn!
Fyrr en mig hefði órað fyrir.
Þrátt fyrir að þú hefðir átt við
nokkra vanheilsu að stríða hin
síðustu ár vonuðum við báðir að
þú myndir ná þér og að við vin-
irnir myndum skunda á Þingvöll
næsta vor. En þá kom höggið, ill-
kynja æxli kom í ljós og eftir
stutta legu á Landspítalanum
varstu allur. Ég fann fyrir tóm-
leika við tíðindin, tómleika og
sorg. Vináttubönd okkar voru af-
ar sterk, allt frá fyrstu kynnum
fann ég hversu vel við náðum
saman þrátt fyrir níu ára ald-
ursmun. Þú varst svo glaðlyndur
og áhugasamur.
Fluguveiðin og tónlistin
tengdu okkur og við skiptumst á
gjöfum. Þú gafst mér veiðiflugur,
ég gaf þér hljómdiska. Á hverju
sumri fórum við ófáar ferðir
saman að Þingvallavatni til sil-
ungsveiða. Á leiðinni hlustuðum
við á tónlist sjötta áratugarins,
þar varst þú svo sannarlega á
heimavelli, þekktir öll lögin,
hafðir sjálfur leikið flest þeirra
enda þekktur hljóðfæraleikari og
söngvari frá árum áður.
Þú varst lærimeistari minn í
háskóla fluguveiðinnar, Þing-
vallavatni. Þekking þín og
reynsla af vatninu spannaði yfir
sjötíu ár. Þar hafðir þú byrjað að
veiða sjö eða átta ára gamall með
föður þínum, veiddir þar óslitið
öll sumur þar til yfir lauk.
Þú varst einn af bestu flugu-
hnýturum landsins, sannarlega
snillingur á því sviði. Flugurnar
þínar eru frægar, hafa birst í
bókum og tímaritum og verið
seldar í verslunum, verða eflaust
eftirsótt fágæti meðal flugveiði-
manna á næstu árum.
Ég votta Bjarneyju eiginkonu
þinni, sonunum og fjölskyldum
þeirra dýpstu samúð mína. Þeg-
ar Mannsonurinn, á dómsdegi,
kemur í dýrð sinni og skilur
sauðina frá höfrunum er ekki
ólíklegt að almættið kjósi að hafa
góðan fluguhnýtara innan sinna
vébanda á veiðilendum eilífðar-
innar.
Guð blessi minningu Þórs
Nielsen, þess góða drengs.
Óttar Felix Hauksson.
Góður vinur er fallinn frá. Við
minnumst hans með hlýju í
hjarta. Vegna náinna fjölskyldu-
tengsla höfum við átt mikið
saman að sælda. Það var alltaf
gaman að vera með Þór, hann
var mjög minnugur og hafði frá
mörgu skemmtilegu að segja
enda hefur hann átt litríka ævi
sem listamaður, bæði sem góður
gítarleikari og söngvari og ekki
síður sem frábær veiðimaður og
fluguhnýtari. Þór spilaði og
söng með mörgum hljómsveit-
um á árum áður, m.a. Venus-
kvartettinum, Tríói Elvars
Bergs, Þórsmönnum, Hljóm-
sveitinni Glæsi og hljómsveitinni
Ásum svo eitthvað sé nefnt.
Hann kynntist meðal annarra
Fats Domino og hljómsveit hans
í gegnum tónlistina og átti góðar
stundir með þeim. Á seinni ár-
um tók Þór þátt í skemmtunum
með öðrum skemmtikröftum af
okkar kynslóð, m.a. í Salnum
Kópavogi og Hótel Grímsborg-
um, þetta voru mjög vel sóttar
skemmtanir.
Þór var mikill veiðimaður,
veiðistaðir hans voru aðallega
Þingvallavatn, Elliðavatn og
Hlíðarvatn, veiðin að mestu sil-
ungur. Hann var mjög góður í
að finna góða veiðistaði og vissi
hvaða fluga átti við hverju sinni
og hvaða flugur áttu við í hinum
ýmsu vötnum. Þegar við fórum
að veiða saman fékk hann fimm
á meðan ég fékk einn silung,
sama þótt við værum á sama
stað og með sömu flugu. Þór
smitaði drengina sína, Sigurð,
Gísla, Birgi og Grétar, og barna-
börnin af veiðiáhuganum og sá
til þess að allir fengju græjur
við hæfi. Þór var einn besti
fluguhnýtingarmaður landsins,
hann gerði sérstaklega vandað-
ar og fallegar flugur svo af bar.
Þór kom oft við hjá okkur í
Byggðarholtinu með slatta af
bleikju á leið heim frá Þingvöll-
um svo ekki sé minnst á allan
reykta silunginn sem við höfum
fengið í gegnum árin. Þór var
mikið snyrtimenni, alltaf vel
klæddur og í stífburstuðum
skóm, það voru aldrei óburstaðir
skór á heimilinu. Hann hafði
mikinn áhuga á að safna hlutum,
þó aðallega hljómdiskum og
myndbandsspólum, helst tvennt
af hvoru. Armbandsúr, derhúfur
og t-bolir voru einnig spennandi
söfnunargripir. Einnig átti hann
mikið safn af flottum gíturum.
Við Stella þökkum allar
skemmtilegu samverustundirn-
ar, allan sönginn og spiliríið á
hátíðarstundum hjá okkur og
öðrum. Við sendum okkar kæru
Bjarneyju, fjölskyldu og vinum
innilegar samúðarkveðjur.
Jón Þórður og Stella.
Þór Emil Nielsen
Eiríksson
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju vegna andláts
og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
SIGRÍÐAR BENEDIKTSDÓTTUR
frá Bakka í Bjarnafirði,
síðast til heimilis að Eyjaholti 10a,
Garði.
Ólafur Einarsson Anna Magnúsdóttir
Hannes Ólafsson
Guðveig Einarsdóttir Árni Pétursson
Jóhann Karl Einarsson Ásrún Guðmundsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug
við andlát okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og sonar,
ÞÓRÐAR HAUKS ÁSGEIRSSONAR,
Árbraut 10, Blönduósi,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans
sunnudaginn 10. janúar.
Þorbjörg Kristín Jónsdóttir
Ásgeir Hauksson Þorbjörg Sveinsdóttir
Þórdís Hauksdóttir Gunnar Tryggvi Halldórsson
Guðrún E. Hartmannsdóttir Alexander Freyr Tamimi
Stefán Haukur Ásgeirsson Halldór Smári Gunnarsson
Torfi Sveinn Ásgeirsson Elísabet Kristín Gunnarsdóttir
Skírnir Eldjárn Gunnarsson Haukur Eldjárn Gunnarsson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð,
kveðjur og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
systur og ömmu,
DÓRU LYDÍU HARALDSDÓTTUR,
Geitlandi 3, Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Arinbjörn Árnason Joanne Árnason
Pálína Árnadóttir
Margrét Árnadóttir Þórður Mar Sigurðsson
Haraldur Haraldsson
Páll Haraldsson
Aron James og Joshua Ben
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
EINAR SNORRASON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu 20. janúar.
Minningarathöfn fer fram í Terneuzen í
Hollandi 28. janúar klukkan 13.
Streymið verður aðgengilegt á
https://deridder.uitvaart-online.nu/client.
Lykilorð: Einar
Snorri Björnsson
Sigríður Jakobsdóttir
Óskar Snorrason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagreinLengd | Minningargreinar sem birtast í Morg-
unblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri
grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar