Morgunblaðið - 28.01.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 28.01.2021, Qupperneq 10
Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildar- stjóri hjá Isavia, kynnti á útboðs- þingi SI áform um uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli í ár. Heildarkostnaður sé tæpir 12 milljarðar. Í fyrsta lagi 7,3 millj- arðar vegna uppbyggingar austur- álmu (sjá graf) með 10 þúsund fer- metra nýbyggingu og endurgerð á 4.000 fermetrum í eldri byggingum. Viðbyggingin verður á einni hæð og er henni meðal annars ætlað að bæta afgreiðslu á komufarangri. Áformað er að hefja framkvæmdir í ár og ljúka þeim á næsta ári. Í öðru lagi fari milljarður í bygg- ingu viðbyggingar á tveimur hæðum (sjá graf) en hún á að bæta aðstöðu fyrir farþega í brottfararhliðum í austurenda suðurbyggingar (stæði 10). Í þriðja lagi kosti 2,4 milljarða að gera 1.200 metra akbraut fyrir flugvélar sem tengir saman flughlað við flugbraut. Ljúka á verkinu í ár. Í fjórða lagi muni 650 milljónir fara í viðhald og í fimmta lagi muni kosta 320 milljónir að leggja nýjan 1.500 metra þjónustuveg. Í sjötta lagi kosti um 200 milljónir að gera nýja hringtengingu að flugstöðinni. Ljúka á vegagerðinni á þessu ári. Uppbygging við Leifsstöð  Isavia kynnir áform sín í ár Ný austurálma við aðalbyggingu Viðbygging við stæði 10 Framkvæmdir við fl ugstöðina í Kefl avík H e im ild : I sa vi a 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021 Þegar frost er á fróni Þinn dagur, þín áskorun 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkvæmt samantekt Samtaka iðn- aðarins (SI) hyggst hið opinbera ráð- ast í framkvæmdir fyrir samtals 139,3 milljarða króna í ár, borið saman við 131,9 milljarða í fyrra. Eins og sýnt er á grafinu hér til hliðar skýrist munurinn ekki síst af framlagi Samtaka sveitar- félaga á höfuð- borgarsvæðinu, SSH, en þau skil- uðu auðu í þessu efni í fyrra. Fjallað var um áformin á árlegu útboðsþingi SI sem fram fór í gær. Sigurður segir umfang opinberra framkvæmda samsvara 4,5% af landsframleiðslu í ár, borið saman við 4,6% í fyrra. Á þann mælikvarða sé umfangið sambærilegt. Brugðist við faraldrinum Spurður hvaða þýðingu þessar framkvæmdir muni hafa fyrir iðnað- inn í ár segir Sigurður mjög jákvætt að vissir aðilar séu að auka fram- kvæmdir, á borð við Framkvæmda- sýsluna, en í því birtist aðgerðir stjórnvalda til að bregaðst við niður- sveiflu í kórónuveirufaraldrinum. Sama megi segja um borgina. „Við höfðum þó væntingar um að umfang annarra opinberra aðila væri kannski heldur meira. Þar má nefna Vegagerðina en þar er lækkun milli ára. Við teljum að þar sé ekki aðeins svigrúm heldur brýn þörf. Þess ber þó að geta að fyrirhuguð vegagerð í einkaframkvæmd er ekki í þessum tölum en gert er ráð fyrir að verkefni fari af stað á þessu ári,“ segir Sigurður. Meðal annars hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra, boðað tíðindi af Sundabraut á næstu dögum. Verður aldrei mikil í ár Meðal annarra slíkra verkefna eru tvöföldun Hvalfjarðarganga, vegur um Hornafjarðarfljót og um Öxi. Sigurður tekur þó fram að fjárfest- ing vegna Sundabrautar verði aldrei mikil í ár og verði þá fyrst og fremst vegna hönnunar. Dregið hefur úr uppbyggingu í ferðaþjónustu en hótelgeirinn var drjúg uppspretta fjárfestingar. Spurður hvernig atvinnustigið verði hjá iðnaðinum í ár, ef útboð op- inberra aðila og hagspár ganga eftir, segir Sigurður að greinin hafi dreg- ist saman frá árinu 2019. Launþegar séu færri og veltan minni. „Það jákvæða er að höggið sem greinin tekur á sig er nú miklu minna en áður. Venjulega hefur byggingariðnaðurinn sveiflast mikið meira en viðskiptahagkerfið í heild. Þegar þensla er í hagkerfinu al- mennt er mikil þensla í byggingar- iðnaðinum. Sömuleiðis hefur höggið verið mikið ef það er slaki í hagkerf- inu. Við erum ekki að sjá það núna og það má meðal annars þakka við- brögðum stjórnvalda við faraldrin- um,“ segir Sigurður. Vegur á móti niðursveiflu Samtök iðnaðarins, undir forystu Sigurðar, færðu rök fyrir því fyrir nokkrum misserum að nota ætti fyrirséðan slaka í hagkerfinu, þegar glitti í lok hagvaxtarskeiðsins, og byggja upp innviði. Síðan varð slak- inn enn meiri vegna faraldursins en það var ófyrirséð. Spurður hvernig horfurnar í iðn- aðinum í ár rími við þær væntingar segir Sigurður að samtökin hefðu viljað sjá meiri kraft í innviða- uppbyggingunni. „Það eru auðvitað ákveðin von- brigði að þegar slakinn loksins myndaðist, sem var fyrirséð því hag- vaxtarskeið taka almennt enda, skyldu ekki vera fleiri verkefni tilbú- in til framkvæmda. Það eru vísbend- ingar um að á síðasta ári hafi þurft að fara í hönnun á verkefnum, í stað þess að þeim áfanga væri lokið og hægt væri að ráðast í framkvæmd- ir,“ segir Sigurður. Lítil breyting á atvinnuleysi Varðandi atvinnustigið í iðnaði bendi fátt til að atvinnuleysi muni minnka verulega á þessu ári. „Það er hins vegar hægt, ef viljinn er fyrir hendi, að fara í meiri inn- spýtingu og fjárfestingar sem skapa störf við nauðsynlega uppbyggingu innviða. Það eru allar forsendur fyrir hendi en það er undir stjórnvöldum komið hvernig þau standa að því. Varðandi ferðaþjónustuna eru að- stæður óviðráðanlegar. Við höfum ekki í hendi okkar hvernig þau mál þróast,“ segir Sigurður. Athygli vekur að Isavia hyggst auka fjárfestingu milli ára en mikill samdráttur er í fluginu. Spurður um þessa aukningu bendir Sigurður á að Isavia hafi boðað fjárfestingu fyrir 21 milljarð í fyrra en reyndin hafi verið innan við milljarður. Undirbúningsleysið til tafar  Framkvæmdastjóri SI harmar að ekki skyldu fleiri verkefni hafa verið komin af undirbúningsstigi  Hið opinbera hefði getað unnið enn meira gegn slakanum  Framkvæmt fyrir 139 milljarða í ár Áætlað heildarverðmæti framkvæmda opinberra aðila Milljarðar króna, 2020 og 2021 40 30 20 10 0 H e im ild : S a m tö k ið n a ð a ri n s Reykjavíkur- borg Vegagerðin FSR ISAVIA Veitur Landsnet NLSH SSH Landsvirkjun Orka náttúrunnar Faxafl óa- hafnir 19,6 38,7 9,3 21,0 8,8 11,7 12,0 0 4,1 4,5 2,2 28,6 27,5 22,8 13,5 12,0 11,9 11,0 6,6 3,6 1,4 0,2 Útboðsþing 2020 Samtals 132 ma.kr. Útboðsþing 2021 Samtals 139 ma.kr. Sigurður Hannesson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.