Morgunblaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.01.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 2021 Verkalýðsfélagið VR ætlar aðsögn formannsins ekki að sitja þegjandi hjá í aðdraganda þing- kosninganna í haust. Ragnar Þór Ingólfsson segir í samtali við Morg- unblaðið: „Við erum að undirbúa okkur undir kosningarnar og hvaða áherslur verkalýðshreyf- ingin mun vera með í aðdraganda þeirra.“ Hann segir að þetta sé eins og alltaf hafi verið gert, verkalýðshreyfingin reyni „að gera sig gildandi með sín áherslu- mál í aðdraganda kosninga“.    Nú er það auðvitað svo að ýmsirhagsmunahópar reyna að láta í sér heyra, ekki síst fyrir kosn- ingar, en það má setja stórt spurn- ingarmerki við það sem formaður VR virðist vera að boða í ljósi reynslunnar af því hvernig sumir núverandi forystumanna í verka- lýðshreyfingunni hafa beitt fé- lögum sínum.    Ef forysta verkalýðshreyfing-arinnar ætlar í stjórnmál þá á hún að stofna stjórnmálaflokk og berjast með eðlilegum hætti fyrir stefnumálum sínum.    Henni líst líklega ekki á það þvíað stjórnmálaflokkar hér á landi búa við ströng skilyrði um fjáröflun og hafa litla burði til að stunda stjórnmálabaráttu, enda fyrst og fremst á framfæri ríkisins núorðið, illu heilli.    Verkalýðshreyfingin býr hinsvegar að digrum sjóðum fé- lagsmanna sinna, en þeir hafa ekki greitt í þessa sjóði til stuðnings stjórnmálabaráttu forystumann- anna. Eigi að misnota þetta fé verð- ur að endurskoða margt sem snýr að þessum félögum hér á landi. Ragnar Þór Ingólfsson Á að misnota fé félagsmanna? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ylskottu hefur farið hægt fjölgandi á höfuðborgarsvæðinu, en veldur þó sjaldnast skaða, er frekar til óþurftar með nærveru sinni og til að hrella viðkvæma, segir m.a. í pistli Erlings Ólafssonar skordýrafræðings um yl- skottu og frænku hennar silfurskott- una á Facebook-síðunni Heimur smá- dýranna. „Flestir hafa heyrt getið um silfur- skottuna, margir kynnst sambúðinni með henni og ekki glaðst yfir sér- staklega! Árið 1983 fannst hér ný teg- und af hennar meiði í húsi í Reykja- vík, Thermobia domestica, sem fékk þegar heitið ylskotta því hitakompur með vatnslagnagrindum eru kjörnar vistarverur hennar. Hún er sem sagt hitasækin og þolir betur þurrk en silfurskottan. Fljótlega kom í ljós að ylskottan var komin til að vera,“ skrifar Erling. Ylskottu verður margt að næringu, svo sem sykru- og sterkjurík fæða, einnig prótínrík, svo og pappír, bók- band og hvaðeina tilfallandi. Hún er áþekk silfurskottunni en öllu stærri og áberandi loðin þegar að er gætt. Og ekkert vantar upp á spretthrað- ann verði hún ónáðuð, að því er fram kemur á síðunni. Á pödduvef Náttúrufræðistofnunar kemur fram að ylskotta lifir alfarið innanhúss hér á landi eins og almennt á norðlægum slóðum. Hún fjölgar sér hratt við kjöraðstæður. aij@mbl.is Til óþurftar og hrellir viðkvæma  Hitasækin ylskotta  Hægt fjölgandi Ljósmynd/Erling Ólafsson Ylskotta Ekkert vantar upp á spretthraðann ef hún er ónáðuð. „Við erum ágætlega sett og von- umst til að geta þraukað þetta út. Nú er hart í ári, sem er eins og gengur og gerist í þessum bransa,“ segir Haukur Sverrisson, fjár- málastjóri bílaleigunnar Happy Campers. Fyrirtækið býður upp á margar útgáfur af húsbílum, en bifreiðarnar hafa notið mikilla vin- sælda meðal erlendra ferðamanna. Líkt og hjá fjölmörgum ferða- þjónustufyrirtækjum hefur verið á brattann að sækja hjá Happy Campers undanfarna mánuði. Hef- ur heimsfaraldur kórónuveiru þar mikið að segja, en fyrirtækið er með nokkur hundruð bifreiðar á sínum snærum. Aðspurður segir Haukur að búið sé að taka stóran hluta umræddra ökutækja af núm- erum. „Við tökum allt af númerum og tryggingum og þess háttar. Það er allt sett í dvala til að minnka út- flæðið. Ergo og fleiri hafa staðið vel með okkur og við eigum í góðu sambandi við okkar lánardrottna. En það er auðvitað þannig að það kemur alltaf að skuldadögum.“ Að sögn Hauks gekk vel að leigja bifreiðar út til Íslendinga síðasta sumar. Hann vonast til að framhald verði á því í ár. „Það var mikið að gera hjá Íslendingum síð- asta sumar og gekk í raun vonum framar. Að vissu leyti hafa lands- menn haldið uppi umferð, en að sama skapi krefjast þeir lægra verðs og bóka með styttri fyrir- vara. Við munum klárlega verða með tilboð handa Íslendingum þegar nær dregur sumri og boltinn fer að rúlla,“ segir Haukur og bæt- ir við að hann sé ekki mjög bjart- sýnn á sumarið að öðru leyti. „Við erum að horfa til þess að seinni hluti sumars skili einhverju, en við erum ekkert gasalega bjartsýn. Óvissan er svolítið að fara með mann.“ Starfsemin í dvala um þessar mundir  Verða með tilboð handa Íslendingum í aðdraganda sumars Húsbíll Bæði er hægt að fá leigða litla og stóra húsbíla. Baðinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Tímabundin opnunartími vegna Covid–19 Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga 11–15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.