Morgunblaðið - 19.02.2021, Page 40
FERM
IN
GAR
TILBO
Ð
ÍFULLUM
GANGI
R10.000 kr.AFSLÁTTUR AFHEILSURÚMUM
25%
AFSLÁTTUR AF
MJÚKVÖRU
VIÐ DÝNUKAUP
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
Frönsk kvikmyndahátíð gekk vel í Bíó Paradís og verður
því áfram boðið upp á úrval kvikmynda frá og með deg-
inum í dag og út helgina. Verða vinsælustu myndir há-
tíðarinnar sýndar en þær eru Litla land, Ómögulegt ást,
Psychomagic – heilandi, Sáli í Túnis og Sumarið ’85.
Frekar upplýsingar má finna á vef Bíós Paradísar. Sum-
ar myndanna eru einnig aðgengilegar í netleigu kvik-
myndahússins, Heimabíó Paradís.
Vinsælustu myndir Franskrar kvik-
myndahátíðar sýndar í Bíó Paradís
FÖSTUDAGUR 19. FEBRÚAR 50. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Tíunda umferðin í úrvalsdeild karla í handknattleik, Ol-
ísdeildinni, fór fram í gærkvöldi með sex leikjum. Petar
Jokanovic átti stórleik fyrir ÍBV sem sótti sigur gegn
Aftureldingu að Varmá í Mosfellsbæ og þá náðu KA-
menn ævintýralegri endurkomu er Valur kom í heim-
sókn til Akureyrar. Valsmenn voru þremur mörkum yfir
þegar rúm mínúta var til leiksloka en heimamönnum
tókst að kreista fram lygilegt jafntefli. Þá skelltu FH-
ingar sér á toppinn með sigri á botnliðinu en stutt er á
milli efstu liða í deildinni.
KA náði jafntefli gegn Val með
ævintýralegri endurkomu
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Að geta glatt aðra er ómetanlegt og
í því efni segja blómin svo margt. Og
núna er vertíðin byrjuð, á almanaki
okkar blómasala er enginn dagur á
árinu stærri en konudagurinn, sem
er núna á sunnudaginn, 21. febrúar,“
segir Nanna Björk Viðarsdóttir,
kaupmaður í Breiðholtsblómum í
Mjóddinni í Reykjavík.
„Raunar má segja að núna renni
tvær hátíðir saman; konudagurinn
sem kemur strax í kjölfar Valen-
tínusardagsins sem var 14. febrúar.
Nei, mér finnst ekkert mál þótt dag-
ur Valentínusar, sem er erlendur að
uppruna, sé í heiðri hafður á Íslandi.
Fólk frá öðrum löndum sem sest
hefur að hérlendis skiptir tugum
þúsunda og eðlilegt að nýir menn-
ingarsiðir skjóti rótum hér. Dagar
sem eiga sér íslenskan uppruna og
langa sögu lifa áfram fyrir því.“
Blómstrar í blómum
Starfsemi Breiðholtsblóma hófst
árið 1983 og nánast frá fyrstu tíð
hefur Nanna Björk starfað í fyrir-
tækinu, sem hún eignaðist fyrir um
20 árum. „Ég blómstra í blómunum
og finnst þetta skemmtilegt. Oft er
annasamt hér í búðinni, en aldrei
meira en í kringum konudaginn sem
er alltaf mjög stór í sölu hjá okkur,“
tiltekur Nanna sem segir fjölbreytn-
ina ráðandi og flest sé leyfilegt þeg-
ar blómvendir eru settir saman.
Rauði og bleiki liturinn standi alltaf
fyrir sínu.
Ræktun íslenskra garðyrkju-
bænda er mikil og blómasalar fá
stórar sendingar frá þeim nú fyrir
konudaginn næsta sunnudag. Dag-
urinn er raunar svo stór í viðskiptum
að til að auka fjölbreytileika flór-
unnar sé mikið af blómum flutt inn
erlendis frá, sérstaklega nú yfir
vetrartímann.
Rósir og liljur
„Rósir, orkedíur, liljur, flamingo,
krusi og gerberur; þetta kemur allt
til greina í fallegum vöndum. Val um
blóm og liti er annars viðskiptavina,
og marga þeirra þekkjum við vel
enda margir tryggir okkur. Það
mesta af blómum fyrir konudaginn
er selt um helgina, sérstaklega á
sunnudeginum. Þá opnum við hér í
búðinni klukkan átta að morgni og
strax þá í morgunsárið koma fyrstu
menn. Herramennirnir fara snemma
á fætur, fara heim með blóm til elsk-
unnar sinnar árla dags, sem þeir
dekra vonandi við allan daginn,“
segir Nanna.
Herramennirnir fara
snemma á fætur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Breiðholtsblóm Rauði og bleiki liturinn standa fyrir sínu, segir Nanna.
Konudagurinn er um helgina Falleg blóm og dekur