Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 1

Morgunblaðið - 17.06.2021, Síða 1
Kátt var á hjalla í samfélagshúsinu í Bólstaðarhlíð í gær þeg- ar skellt var í vöfflukaffi í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslend- inga, 17. júní. Finnbogi Arndal var á svæðinu, í miklu þjóðhá- tíðarskapi eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Víða verða hátíðahöld í dag, þótt samkomutakmarkanir vegna kór- ónuveirunnar setji að einhverju leyti svip sinn á þau. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gleðilega þjóðhátíð! F I M M T U D A G U R 1 7. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 140. tölublað . 109. árgangur . SETTI MARK SITT Á FOR- SETAEMBÆTTIÐ RÚM 77% VERKA ÍSLENSK ANNAÐ ÆVINTÝRI WALESVERJA? LEIKÁRIÐ GERT UPP 60 EM Í KNATTSPYRNU 5980 ÁR FRÁ KJÖRI 18 Lægra verð – léttari innkaup GLEÐILEGA ÞJÓÐHÁTÍÐ! OPIÐ Í ÖLLUM VERSLUNUM NETTÓ Í DAG, 1 7. JÚNÍ TILBOÐ Í SÓL FLUG & GISTING TIL TENERIFE 67.500 KR.* *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN 23. - 30. JÚNÍ WWW.UU.IS | 585 4000 Baldur S. Blöndal Unnur Freyja Víðisdóttir Forstjóri Eimskips segir að sáttin sem fyrirtækið gerði við Samkeppn- iseftirlitið vegna brota félagsins á samkeppnislögum eyði þeirri óvissu sem uppi hafi verið. Með sáttinni, sem undirrituð var í gær, viðurkenn- ir Eimskip alvarleg brot á sam- keppnislögum vegna víðtæks sam- ráðs við keppinautinn Samskip. Þá mun Eimskip greiða 1,5 millj- arða í stjórnvaldssekt sem rennur í ríkissjóð og mun skuldbinda sig til þess að grípa til aðgerða sem vinna gegn því að brot endurtaki sig. „Úr því sem komið er erum við sátt við þessa niðurstöðu,“ segir Vil- helm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips. Með undirritun sáttarinnar er rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Eimskip lokið. Ætluð brot Samskipa eru hins vegar enn til rannsóknar hjá Samkeppniseftirlitinu. Það hefur haft ætluð brot Eimskips og Sam- skipa hf. (og tengdra félaga) til rann- sóknar í rúm ellefu ár. Umfang rann- sóknarinnar er án fordæma hvað varðar rannsókn samkeppnismála hér á landi. Nýir stjórnarhættir hafa verið teknir upp innan Eimskips á undan- förnum árum. Spurður um það segir Vilhelm að breytingarnar hafi verið gerðar á víðum grunni. „Það eru auð- vitað nýir aðaleigendur að félaginu, nýr forstjóri. Töluvert af breyting- um á skipulagi félagsins, breytingum í framkvæmdastjórn, verkferlum, upplýsingagjöf til stjórnar og út á markaðinn,“ segir Vilhelm. Hverju mun sáttin breyta fyrir reksturinn? „Fyrst og fremst eyðir hún þeirri óvissu sem hefur verið. Þetta er gamalt mál sem hefur fylgt okkur á meðan við höfum verið að skerpa á áherslum í rekstrinum. Það er liður í þessum áherslubreytingum að klára þetta mál til dæmis. Sem betur fer tókst það.“ Vilhelm segir að sáttaviðræður við Samkeppniseftirlitið hafi verið að frumkvæði Eimskips. Aðspurður segist hann ekki geta tjáð sig um það hvort óánægja hafi ríkt innan Eim- skips með framgöngu Samkeppnis- eftirlitsins. Sáttin eyðir óvissunni - Eimskip viðurkennir alvarleg brot og greiðir sekt upp á 1,5 milljarða króna - Forstjóri fyrirtækisins segist sáttur við niðurstöðuna - Stjórnarhættir breyttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.