Morgunblaðið - 17.06.2021, Qupperneq 68
25%
af allri
sumarvöru
Sófadagar
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
10.- 21. júní
CLEVELAND Tungusófi. Dökkgrátt áklæði. L231 x D140 cm. 119.900 kr. Nú 95.920 kr.
BORGIO Svart polyratttan, grátt polyester á sessum.
2ja sæta sófi. L176 cm. 118.900 kr. Nú 89.175 kr.
3ja sæta sófi. L249 cm. 164.900 kr. Nú 123.675 kr.
20%
AF ÖLLUM SÓFUM, SKEMLUM
OG SVEFNSÓFUM
Bráðum kemur betri tíð er yfirskrift dagskrár sem
Bjarni Thor Kristinsson bassasöngvari er með í sal Tón-
listarskóla Garðabæjar í kvöld kl. 20. „Á efnisskránni
eru íslensk sönglög, sem er vel við hæfi á þjóðhátíðar-
degi Íslendinga en ljóðin og ljóðskáldin verða í brenni-
depli. Með Bjarna Thor leikur Ástríður Alda Sigurðar-
dóttir á píanó,“ segir í tilkynningu. Tónleikarnir eru
ókeypis en æskilegt er að tryggja sér miða á tix.is.
Bráðum kemur betri tíð í kvöld
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 168. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, Már Gunnarsson, Patrek-
ur Andrés Axelsson og Thelma Björg Björnsdóttir verða
fulltrúar Íslands á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, í
Tókýó í Japan í ágúst- og septembermánuði. Þrjú þeirra
taka þar þátt í sínu fyrsta Ólympíumóti en Thelma
Björg var á meðal keppenda í Ríó fyrir fimm árum. Bog-
fimimaðurinn Þorsteinn Halldórsson gæti einnig unnið
sér keppnisrétt á leikunum og þá hefur Íþrótta-
samband fatlaðra lagt inn umsóknir fyrir fleira afreks-
íþróttafólk í ljósi árangurs þess undanfarið. »59
Fjögur örugg með að keppa í Tókýó
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Mýrarnar eru heillandi svæði og
falin perla,“ segir Rakel Stein-
arsdóttir, myndlistarmaður á Ökr-
um á Mýrum. Hið víðfeðma svæði
milli Langár og Hítarár í Borg-
arfirði, á leiðinni vestur á Snæfells-
nes, er ekki beint á kortinu meðal
ferðafólks. Á þessum slóðum er
dreifbýlt og margt með brag fyrri
tíðar, sem gaman er að sjá og skoða,
rétt eins og blaðamaður Morgun-
blaðsins gerði á dögunum.
Nýtt fyrir stafni
Fimm ár eru síðan Rakel eign-
aðist Suðurbæinn, sem svo er kall-
aður á Ökrum. „Ég tengist Snæfells-
nesi á ýmsan hátt en hafði aldrei
keyrt niður á Mýrarnar fyrr en sum-
arið sem húsið kom upp í hendurnar
á mér,“ segir Rakel. „Ég átti gamalt
hús í miðborginni, á Frakkastíg 9,
sem ég gerði upp. Þar hafði ég
skipulagt myndlistarsýningar og
verið með ýmsa viðburði. Undir það
síðasta var mér farið að leiðast
ferðamannaerillinn og ákvað að
breyta til enda þarf ég alltaf að hafa
eitthvað nýtt fyrir stafni.“
Rakel er á Ökrum aðallega á vorin
og fram á sumar og segist ekki
þekkja neitt skemmtilegra en að
fylgjast með fuglunum. Á Mýrunum
sé einstaklega fjölbreytt fuglalíf,
enda er hér öll flóran, vatna-, mó-,
vað- og sjófuglar. Á Ökrum er mikið
kríuvarp og á tjörnum fjöldi lóma-
para. „Margar fuglategundir var ég
að sjá í fyrsta sinn hér, svo sem flór-
goða og óðinshana sem er í miklu
uppáhaldi. Rebbi er svo tíður gestur
og mér stendur alls ekki á sama þeg-
ar hreiðrin eru ítrekað rænd,“ segir
listakonan
Svo langt sem augað eygir
Við Akra eru hvítar sandfjörur
svo langt sem augað eygir og Snæ-
fellsjökull blasir við. Í þessu um-
hverfi segir Rakel dásamlegt að fara
ein í göngutúr og gleyma sér. Gam-
an sé þá að fylgjast með selum í
flæðarmálinu, forvitnir reki þeir upp
höfuðið á flóði en á fjörunni liggja
þeir í makindum í hópum á leir-
unum.
Suðurbærinn, hús Rakelar, var
byggður árið 1935. Viðgerðir á hús-
inu standa yfir og þar hafa margir
komið að verki „Ég var svo heppin
að fá eðalsmið af svæðinu, Stefán
Ólafsson á Litlu-Brekku á Mýrum,
sem er meistari í gömlum húsum, til
að endurnýja langhliðina. Hann og
sonur hans settu í nýja glugga sem
smíðaðir voru í Borgarnesi eftir
gamla laginu. Þeir skiptu út fúnu
burðarvirki, steyptu nýjan grunn og
allt var einangrað upp á nýtt. Að lok-
um var hliðin klædd með lerki.
Svona er þetta allt tekið skref fyrir
skref hér á Ökrum þar sem ég uni
mér vel,“ segir Rakel.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Endurreisn Rakel Steinarsdóttir við Suðurbæinn sem var byggður árið 1935 og nú er verið að gera upp.
Perla og heillandi svæði
- Listir og fjölskrúðugt fuglalíf á Mýrunum í Borgarfirði
Sveit Krían er aðgangshörð á Ökrum, þar sem er staðarlegt heim að líta.
MMarflatar Mýrar »30