Morgunblaðið - 17.06.2021, Side 61
MENNING 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
THE WASHINGTON POST
ROGEREBERT.COM
TOTAL FILM
USA TODAY
THE SEATTLE TIMES
THE GUARDIAN
GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA
SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA
HROLLVEKJANDI
SPENNUMYND
THE WRAP FILM
SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI97%
SAN FRANCISCO
CHRONICLE
INDIE WIRE
Grín- Spennumynd eins og þær gerast bestar!
ROGEREBERT.COM
Gleðilegan 17. Júní – öll bíóin eru opin í dag!
H
efð hefur myndast í
íslenskri kvikmynda-
gerð fyrir frásögnum
þar sem íslenskt sam-
félag er sýnt frá sjónarhóli gests-
ins. Í þessari gerð frásagna er
söguhetjan gjarnan útlendingur
sem sækir land og þjóð heim af til-
teknum ástæðum, gjarnan til að
gera eitthvað upp úr fortíð sinni eða
að vinna bug á tilvistarlegu vanda-
máli. Um leið er aðalpersónan
fulltrúi alþjóðlega áhorfandans inn-
an frásagnarinnar, sem horfir utan
frá á þennan framandi heim á norð-
urslóðum. Þessi hneigð náði kjöl-
festu á tíunda áratugnum og er Á
köldum klaka eftir Friðrik Þór
Friðriksson á margan hátt frum-
mynd þessara kvikmynda. Samtöl
fara að einhverju eða öllu leyti fram
á ensku en erlendi aðilinn getur líka
verið aukapersóna eins og Lola í
101 Reykjavík. Þetta er ein skýr-
asta birtingarmynd þverþjóðlegs
eðlis íslenskrar kvikmyndagerðar –
myndir sem eru jafnan fjármagn-
aðar og framleiddar í samstarfi inn-
lendra og erlendra aðila – og eru
ekki síður ætlaðar alþjóðlegum
markhópum en íslenskum. Skugga-
hverfið fylgir þessari hneigð með
beinum hætti og setur hana í saka-
málabúning.
Í upphafi sést aðalpersónan
Maya, leikin af Brittany Bristow, á
skokki með Airpods í eyrum í
Toronto-borg. Hún gerir hlé á
hlaupinu til að svara símtali frá
móður sinni sem færir henni þær
fregnir að amma hennar á Íslandi
sé nýlátin en dóttirin hafði staðið í
þeirri meiningu að formóðirin væri
löngu öll. Stór hluti samtala Mæju
(svo því sé snarað) í myndinni fer
fram símleiðis og heyrist aðeins
hennar hlið. Í framhaldinu heldur
hún ein síns liðs til ættjarðarinnar.
Amman sáluga átti gamalt báru-
járnshús við Vatnsstíg fyrir neðan
Hverfisgötu (númer tólf, ef rétt er
með farið) og í kringum það hafa
risið nútímaháhýsi sem mynda
Skuggahverfi nútímans, en
atburðarásin kvað snúast um árin
fyrir hrun. Sögusviðið sýnir greini-
lega fram á andstæður nýja og
gamla Íslands sem eiga að mynda
þematíska hryggjarsúlu verksins.
Mæja heldur til á Vatnsstíg en
hún á að ganga frá sölu hússins.
Rúnar Freyr Gíslason leikur fjár-
glæfraskúrk sem situr um hana
með glóðvolgan kaupsamning undir
höndum. Í hálfgerðu móki biður
hetjan um að fá að lesa snepilinn
áður en kvittað er undir og trekk í
trekk bíður smjaðurstrýnið fyrir
utan með kaupbréfið – augljós
fulltrúi hinna spilltu peningaafla.
Við og við er horfið til viðtalssenu
milli rannsóknarlögreglu (Erla
Ruth Harðardóttir) og Mæju.
Amma gamla datt víst niður stigann
– voru brögð í tafli? Þessi atriði
(sem virðast vera eina og sama
samtalið, brotið upp, þegar að er
gáð) bera sýnilega virkni þess að
útskýra söguheiminn og bakgrunn
hans fyrir aðalpersónunni og áhorf-
endum. Mæja vingast við Sóleyju
(Inga María Eyjólfsdóttir), kaffi-
húsamey sem kom að líki ömmu
hennar. Er Mæja skokkar meðfram
Sæbraut verður hún vitni að því að
ekið er á hjólreiðamann á dular-
fullan máta – smáslasaði lögfræð-
ingurinn (Kolbeinn Arnbjörnsson)
býður stöllu hiklaust í snæðing.
Þokkafulli kappinn stígur glaður í
hlutverk verndara og ástarviðfangs
en er þó ekki allur þar sem hann er
séður, enda auðmagnsfnykur af
honum. Helstu leikendur eru þó
ekki alveg upptaldir – Atli Óskar
Fjalarsson leikur ungan og ógn-
vekjandi nágranna, sem situr um
kvenhetjuna. Eddu Björgvins-
dóttur bregður fyrir sem ruglaðri,
gráhærðri útigangsstaðalmynd –
sem líklegast á að vera amman sál-
uga. Leikur þeirra tveggja er þó
fullkomlega orðlaus, þau end-
urspegla þessa grunnþætti (Atli –
vondur og Edda – geðveik) með lát-
bragðsleik í innskotsskotum. Fram-
an af er John Rhys-Davies (þekkt-
astur sem dvergurinn Gimli í
Hringadróttinssögu) í svipuðum gír
í rullu huldumanns en hann fær
eina samtalssenu með hetjunni und-
ir rest.
Grunnupplegg Skuggahverfisins
er ekki galið fyrir glæpasögu en
fátt gengur upp í framkvæmd henn-
ar. Persónusköpunin er rýr, lítið er
vitað um Mæju – fyrir utan það að
hún skokkar í tómstundum sínum.
Hún er einfaldlega leikandi í að-
stæðum sem flétta höfundarins hef-
ur fyrirskipað – aldrei trúverðug né
áhugaverð. Það sama má segja um
aðrar persónur myndarinnar – þær
einfaldlega þjóna því sem á að ger-
ast. Einna helst eru Rúnar Freyr
og Kolbeinn eftirminnilegir sem
auðvaldsskúrkar – táknrænar erki-
týpur fyrir samfélagslegt mein.
Handriti og miðlun frásagnar er
einfaldlega ábótavant. Myndrænt
er almennt haldið þröngum römm-
um, sem orsakar að umhverfi og
tökustaði skortir persónuleika, sér í
lagi í húsinu gamla á Vatnsstíg.
Fókus er jafnan grunnur, óskýrt
baksvið en persónur skarpar í for-
grunni, en þó er ekki samræmis
gætt eins og sést bersýnilega í sam-
talssenu Britanny og Rhys-Davies í
kytrunni fúnu. Klipping og flæði
frásagnar gerir aðhlaup að frásagn-
araðferðum listabíósins með mörg-
um samtalslausum brotum og rugli
á línulegri frásögn (áðurnefnt lög-
reglusamtal og atriðin með Eddu),
en veldur því ekki. Tónlist Tomas
Valents fær meginhlutverk og er
nær gengumgangandi yfir allt verk-
ið – en henni er ætlað að greiða úr
flækjum myndarinnar og skapa ein-
hvers konar heild og stemningu.
Þessi algenga höfuðsynd og töfra-
lausn kvikmyndagerðarmanna
verður þó aldrei meira áberandi en í
tveimur samtalssenum, einni á lyk-
iltíma í framvindunni, þar sem
hljóðið er einfaldlega skrúfað niður
og tónlistin tekur yfir – en í fljótu
bragði er erfitt að finna á því
nokkra röklega og hvað þá fagur-
fræðilega skýringu. Skuggahverfið
er hálfbökuð kvikmynd en gæti
höfðað til hörðustu glæpasagna-
garpa.
Græða á daginn, drepa á kvöldin
Andstæður „Sögusviðið sýnir greinilega fram á andstæður nýja og gamla Íslands sem eiga að mynda þematíska
hryggjarsúlu verksins,“ segir í rýni um Skuggahverfið. Þar fer Brittany Bristow með hlutverk Mæju.
Háskólabíó, Sambíó Álfabakka
Skuggahverfið bmnnn
Leikstjórn, handrit og klipping: Jón Ein-
arsson Gústafsson og Karolina Lewicka.
Kvikmyndataka: Kristin Fieldhouse.
Aðalleikarar: Brittany Bristow, Kolbeinn
Arnbjörnsson, Inga María Eyjólfsdóttir,
Rúnar Freyr Gíslason og John Rhys-
Davies. Ísland/Kanada, 2020. 84 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR