Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 24

Morgunblaðið - 17.06.2021, Page 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafn- ingshrepps samþykkti á fundi sín- um 19. maí 2021 að kynna tillögu aðalskipulagsbreytingar sem tekur til Sogsvirkjana. Hefur breytingin verið auglýst og getur almenningur kynnt sé hana á vefnum www.utu.is. Landsvirkjun rekur þrjár virkj- anir á svæðinu, Írafossstöð, Ljósa- fossstöð og Steingrímsstöð. Þær voru teknar í notkun 1937-1959. Í fyrirhugaðri aðalskipulags- breytingu er gert ráð fyrir að íbúða- svæði vestan við Ljósafossvirkjun, sem er í núverandi aðalskipulagi skilgreint sem íbúðabyggð, verði breytt í iðnaðarsvæði. Við Ljósa- fossstöð áformar Landsvirkjun að hefja vetnisvinnslu og því er þessi breyting á skipulaginu nauðsynleg. Uppsett afl virkjunarinnar er 16 MW og Landsvirkjun áformar að uppsett afl rafgreinis verði 10 MW. Stærð vetnisstöðvarinnar verður nálægt 700 fermetrum. Enn fátítt í heiminum Það var í maí 2020 að Lands- virkjun tilkynnti áform sín um vetn- isvinnslu við Ljósafossstöð. Hafði fyrirtækið kynnt þann möguleika fyrir sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. „Við Ljósafoss yrði framleitt svokallað grænt eða hreint vetni, sem fæst með rafgrein- ingu vatns með endurnýjanlegum orkugjöfum,“ var haft eftir Auði Nönnu Baldvinsdóttur viðskipta- þróunarstjóra í frétt á heimasíðu Landsvirkjunar. Slík umhverfisvæn framleiðsla á vetni sé enn fátíð í heiminum, en víða sé vetni unnið úr jarðgasi og marki umtalsverð kol- efnisspor. Við vinnslu vetnis knýr raforka svokallaðan rafgreini, sem klýfur vatn í frumefni sín, vetni og súrefni. Fjölmargir kostir fylgja vetni sem orkugjafa, segir Auður. Það er ekki skaðlegt fyrir umhverfi og náttúru og veldur ekki mengun. Það er létt- ara en andrúmsloft og rýkur því mjög hratt upp ef leki á sér stað. Þrátt fyrir fjölmarga kosti hafi vetnið sína galla. „Það er plássfrekt og kostnaðarsamt í geymslu og flutningi. Þá er vetnið vissulega eld- og sprengifim gastegund, svo um- gengni öll verður að lúta sömu ör- yggiskröfum og olíu- og bensín- stöðvar. Vetnisgeymar eru vel varðir fyrir hnjaski og um vetnis- flutninga gilda sömu reglur og um olíuflutningabíla, þ.e. strangar og viðurkenndar öryggisreglur.“ Auður Nanna segir að mikill kostur á vetnisvinnslu sé sú stað- reynd, að auðvelt sé að stýra fram- leiðslunni. „Rafgreinar þola vel að kveikt sé og slökkt á vinnslunni í samræmi við eftirspurn, svo fram- leiðandinn getur hagað henni eftir þörfum markaðarins hverju sinni.“ Í október 2020 gerðu Lands- virkjun og hafnaryfirvöld í Rotter- dam í Hollandi með sér viljayfirlýs- ingu um svokallaða forskoðun á útflutningi græns vetnis frá Íslandi til Rotterdam. Samkvæmt vilja- yfirlýsingunni samþykkja aðilar að deila þekkingu og reynslu, með það í huga að finna flöt á samvinnu og leita tækifæra í vetnismálum. Rotterdamhöfn er stærsta höfn Evrópu og ein mikilvægasta orku- höfn í heimi. Hafnaryfirvöld hafa sett fram metnaðarfull áform í vetn- ismálum og í þeim felst m.a. að Rotterdamhöfn verði aðalinnflutn- ingshöfn fyrir vetni sem flutt verði til orkukaupenda í Evrópu. Hol- lensk yfirvöld hafa beðið hafnaryf- irvöld í Rotterdam að kortleggja hvaðan hægt væri að finna grænt vetni til að fullnægja þörfum evr- ópskra neytenda. Síðastliðinn þriðjudag var svo til- kynnt að Landsvirkjun og hafnar- yfirvöld í Rotterdam (Port of Rot- terdam Authority) hefðu lokið við forskoðun varðandi möguleika á að flytja grænt vetni frá Íslandi til Rotterdam. Niðurstöðurnar sýna að tæknin er til staðar jafnframt því sem verkefnið er fjárhagslega ábatavænt og yrði mikilvægt fram- lag í baráttunni gegn loftslags- hlýnun, þegar hagkerfi heimsins skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir endurnýjanlega orku á komandi áratugum. Vetnisverkefnið gæti hafist á síðari hluta þessa áratugar Fyrirtækin hafa unnið saman að því að skilgreina helstu þætti virðis- keðjunnar, frá framleiðslu á endur- nýjanlegri orku og vetnisfram- leiðslu á Íslandi til flutninga til Rotterdamhafnar. Samanburður var gerður á mismunandi tegundum flutningaskipa sem gætu mögulega flutt vetnið með tilliti til orkuþétt- leika, kostnaðar, eftirspurnar og annarra þátta. Forskoðunin sýnir að verkefnið getur hafist á síðari hluta þessa ára- tugar og yrði af stærðargráðunni 2 til 4 TWh (eða 200 til 500 MW). Vetnisframleiðslan við Ljósafoss- stöð yrði því væntanlega fyrsta skrefið af mörgum við framleiðslu vetnis. En talsmenn Landsvirkj- unar telja ekki tímabært að ræða næstu skref þar sem undirbúnings- vinnan sé rétt að hefjast. Þessi fyrstu skref eru talin geta dregið úr kolefnislosun sem nemur einni milljón tonna á ári, en þegar til lengri tíma er litið er möguleiki á að minnkunin geti hlaupið á millj- ónum tonna. Orkan sem notuð væri gæti verið blanda af endurnýj- anlegri orku, þ. á m. vatnsorka, jarðhiti og vindorka. Aðgengi að fjölbreytilegum endurnýjanlegum orkulindum á Íslandi er mikill kost- ur og veitir íslenska vetninu samkeppnisforskot í verði á evr- ópska vetnismarkaðinum. Vetnið yrði framleitt með rafgreiningu og síðan annaðhvort breytt í vökva eða annað form og sent með vöruflutn- ingaskipum til Rotterdam, þar sem því yrði umbreytt á ný og tekið til notkunar við höfnina eða sent á markaði á meginlandinu. „Landsvirkjun og Rotterdamhöfn munu áfram vinna náið saman að rannsóknum og þróun á þessu ein- staka tækifæri. Búist er við ítarlegri útlistun á áætlunum á seinni hluta ársins 2022,“ segir í tilkynningu Landsvirkjunar á þriðjudaginn. Vetni framleitt við Ljósafoss - Verður fyrsta skrefið í áformum Landsvirkjunar um framleiðslu og útflutning á grænu vetni - Breyta þarf aðalskipulagi Sogsvirkjana - Hafa lokið forskoðun í samstarfi við Rotterdamhöfn Ljósmynd/Landsvirkjun Ljósafossvirkjun Þarna áformar Landsvirkjun að hefja framleiðslu á hreinu/grænu vetni. Breyta þarf aðalskipulagi og hefur breytingin verið auglýst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.