Morgunblaðið - 17.06.2021, Side 48

Morgunblaðið - 17.06.2021, Side 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Nú er hún Kæja tengdamamma mín látin. Það er þannig með Kæju að það koma bara góðar minningar fram þegar hugsað er til hennar. Það eru orðin tæp 45 ár síðan við Helena kynntumst. Mér var strax tekið mjög vel af þeim Kæju og Árna. Fljótlega flutti Helena suður til mín. Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þau að sjá á eftir henni svona ungri. Reyndar er það svo að allar þrjár dætur þeirra fluttu suður. Það Karólína Bernharðsdóttir ✝ Karólína Bern- harðsdóttir fæddist 14. október 1936. Hún lést 7. júní 2021. Útför Karólínu fór fram 16. júní 2021. hlýtur að hafa reynst Kæju þung- bært þótt hún kvartaði ekki. Eftir að Helena var flutt suður vorum við dugleg að fara norð- ur. Það voru góðar ferðir og dekrað við okkur. Kæja var alltaf með nýbakað- ar lengjur sem voru frábærar en hún vissi að mér þóttu þær mjög góð- ar. Svo var boðið upp á læris- sneiðar í raspi. Lærissneiðarnar hennar Kæju voru þær bestu í heimi. Oft spiluðum við fjögur svo Gosa saman um kvöldið. Það var gaman. Hún Kæja var ekki alltaf til í að hafa gleraugun á sér þann- ig að það var oft hægt að hlæja saman að útspilum hennar. Hún hafði jafngaman af þessu og við enda var hún ekkert að taka sig of alvarlega. Hún Kæja gekk ekki mennta- veginn en hennar staður var heimilið. Þar var hún akkerið. Alltaf traust, alltaf hæglát, alltaf til staðar. Hún lagði mikið upp úr því að eiga fallegt og hreint heim- ili. Ég velti því stundum fyrir mér hvort virkilega væri þörf á því að skúra allt á hverjum degi. Kæju fannst það. Kæju fannst mjög gaman að vera fín, enda var hún falleg kona. Kæja var ekki mjög ræðin en hún gat verið ansi góð í tilsvörum og hún lét alveg heyra í sér þegar henni fannst eitthvað ekki í lagi. Þá var hún kannski ekki alltaf voðalega pen í orðavali enda var það alveg skýrt hvað hún meinti. Kæja elskaði sólina. Við grín- uðumst oft með það þegar við vorum að ferðast að ef sólin lét sjá sig þá var Kæja strax lögst í sólbað. Hún var líka mjög dugleg að tala um veðrið. Hún var ekkert að skafa af því ef veðrið var ekki sem best, þá gat verið „rigning- arskítur“. Það má segja að það sé líkn að fá að kveðja þennan heim eftir að hafa verið með alzheimersjúk- dóminn í nokkur ár en þrátt fyrir þennan illvíga sjúkdóm var Kæja oftast glöð enda sagði starfsfólkið á Hlíð, þar sem hún dvaldi hin síð- ustu ár, að hún væri svo skemmti- leg. Því góða fólki eru færðar bestu þakkir fyrir góða umönnun. Í þessum veikindum stóð hann Árni tengdapabbi eins og klettur við hlið Kæju. Það var þeim báð- um mjög erfitt þegar Kæja varð að flytja á Hlíð. Það er hræðilegt að fólk sem er búið að fylgjast að mestan hluta ævinnar þurfi að vera aðskilið á ævikvöldinu. Von- andi finnst betri lausn á þessum málum í framtíðinni. Hann Árni reyndi að heimsækja hana dag- lega en það gat verið erfitt á vet- urna í miklum snjó en hann er jú ekkert unglamb lengur. Það er gæfa að hafa fengið að eiga svona góða tengdamömmu, fyrir það er ég mjög þakklátur. Minningar um góða konu, hvers- dagshetju, munu ylja um ókomin ár. Magnús Kristbergsson. Á vordögum árið 1982 var ég stödd í heimsókn hjá Eyj- ólfi eiginmanni mínum þegar ég sá Katrínu bregða fyrir í fyrsta skipti. Mín fyrsta hugsun var hversu glæsileg kona hún var og smekklega klædd. Þegar við kynntumst náðum við vel saman og á milli okkar var alla tíð ein- hver ólýsanlegur stengur. Mér þótti alltaf mjög vænt um Katr- ínu og við áttum einstakt vina- samband. Katrín var líka mjög skemmtileg kona og ég upplifði sjaldan aldursbilið á milli okkar. Hún fylgdist vel með þjóðmál- Katrín Eyjólfsdóttir ✝ Katrín Eyjólfs- dóttir fæddist 6. ágúst 1928. Hún lést 4. júní 2021. Útför Katrínar fór fram 16. júní 2021. um, hafði sterkar skoðanir og talaði hreint út um menn og málefni. Hún lifði fyrir fjölskyldu sína og var alla tíð í mjög góðu sam- bandi við hana. Hún sinnti foreldr- um sínum vel og átti góðan tíma með þeim þegar þau á miðjum aldri fluttu í Hafnarfjörðinn. Katrín átti góðar æskuminn- ingar frá Eskifirði þar sem hún ólst upp við gott atlæti foreldra sinna og fjölskyldu. Hún fer 14 ára gömul í nám til Reykjavíkur og býr hjá Þorgeiri móðurbróð- ur sínum og konu hans, Guð- rúnu. Þar var Katrín búsett næstu árin. Þorgeir og Guðrún reyndust henni mjög vel og sagði Katrín að Guðrún hefði verið sér sem önnur móðir. Katrín minntist þeirra með miklum kærleika og þakklæti. Katrín naut þess að vera ung kona í Reykjavík og á KR-balli í Tívolíinu voru örlög hennar ráð- in þegar hún hitti þar ungan myndarlegan mann, Braga Reyni, sem seinna varð eigin- maður hennar og lífsförunautur. Katrín og Bragi reistu sér hús í Faxatúni í Garðabæ og þar ólust börnin þeirra fjögur upp. Fljótlega var Bragi kosinn sókn- arprestur í bænum og þjónaði þar lengi. Katrín stóð við hlið hans eins og klettur og tók þátt af fullum krafti í starfi hans. Ekkert safnaðarheimili var í bænum og því var gestkvæmt á heimilinu. Það áttu margir er- indi við prestinn auk þess sem hann var mjög virkur í ýmsum félagsmálum. Hún hitaði kaffi og tók til meðlæti fyrir gesti og gangandi öllum stundum með bros á vör. Síminn hringdi á öll- um tímum sólarhringsins og mikið álag var á heimilinu bæði í gleði og sorg. Smekkvísi Katrínar var við brugðið, heimilið var prýtt fögr- um hlutum sem hún hafði valið af kostgæfni auk handverka hennar sem settu mjög svip sinn á heimilið. Á sama hátt má nefna gjafmildi Katrínar, gjafir valdar af kostgæfni og alúð. Þegar ég hugsa til Katrínar minnar eru það þessi orð sem koma upp í hugann: Dugnaður, þolinmæði, smekkvísi og gjaf- mildi. Það var alveg sama hvað var, mála húsið utan og innan, vinna í garðinum fram á nótt, halda veislur hvort sem það voru matarboð eða kaffiboð. Hún gat gert fábrotið hráefni að dýrindismáltíð. Hún var mögnuð kona hún Katrín. Jólin voru hátíðleg og skemmtileg í Faxatúni. Fjöl- skyldan minnist mjög oft þess- ara skemmtilegu tíma og ekki síst bernskujólanna þegar jóla- boð voru haldin sameiginlega til skiptis hjá Katrínu og Eyjólfi Ísfeld bróður hennar. Katrín hélt góðri heilsu lengst af en fyrir um tveimur árum fór hún að gefa eftir. Hún kvaddi þessa jarðvist södd lífdaga og þakklát fyrir þá góðu ævi sem hún hafði átt. Ég trúi því að nú sé Katrín í faðmi Braga og þar séu sannarlega fagnaðarfundir. Hrönn Kjærnested. Sveinn Eyjólfur Tryggvason frá Lambavatni, góð- vinur minn, var sviplega burtkallað- ur úr jarðvistinni 30. maí. Hugur minn náði því ekki fyrst í stað að þannig væri komið. Síðan birtast myndirnar. Hann horfinn frá stóru fjölskyldunni sinni og Mar- Sveinn Eyjólfur Tryggvason ✝ Sveinn Eyjólf- ur Tryggvason, fæddist 26. maí 1972. Hann lést 30. maí 2021. Útförin fór fram 12. júní 2021. grét nú ein eftir með hópinn. Maður á besta aldri, fáir jafn öflugir á líkama og sál, hann ævinlega hress í bragði og brosandi, hann sem brást við hverri bón á degi sem nóttu nánast hvernig sem á stóð, hver kemur í staðinn? Hann sem þræddi þau einstigi og kleif þau björg sem flestum eru ófær. Það var að kvöldi föstudagsins 9. október 2014 að Sveinn Eyjólf- ur hringdi í mig og við hófum al- mennt spjall. Svo kom að því að ég spurði hvort hann væri að boða mig í smölun og sagðist tæpast nenna því að þessu sinni. Nei. Ég er ekki að biðja þig að koma í smölun, ég ætla að biðja þig að koma með mér til að ganga fjörurnar undir Látrabjargi. Ég er að fara að svipast um eftir lík- amsleifum manns sem hvarf við Látrabjarg fyrir nokkru. Það viðrar sérlega vel til slíkrar ferð- ar á morgun, hæg norðanátt og bjart veður og það stendur vel á sjávarföllum. Við eigum að hafa góðan tíma til að fara fjörurnar undir bjarginu áður en fellur að. Eftir nokkra umhugsun og við- ræður við eiginkonu mína kvaðst ég koma í þessa ferð. En hvers vegna ertu að biðja mig, er ekki nægur mannafli í þetta? Svo var ekki í þetta sinn. Við fórum fjórir með Sveini í þessa ferð. Ég, þrír samsveitungar, þeir Borgar Þór- isson, Hvalskeri, Steinar Rúnars- son, Neðri-Tungu, og Gunnbjörn Skúli Magnússon, Stökkum. Lögðum við upp frá Hvallátrum þegar sjór tók að falla út. Þar voru fyrir Borgar og Kristinn Guðmundsson á Hvallátrum ásamt yrðlingi með rautt háls- band, tilbúnir með tvo slöngubáta og þann búnað sem nauðsynlegur taldist til farar. Við héldum síðan fyrir Bjargtanga. Náðum við að rekja flestar göngufærar fjörur meðfram bjarginu. Sá Borgar um að ferja okkur hina milli staða og sigla bátnum inn í aðdjúpa voga og bergskúta. Undraheim. Því miður bar leitin ekki árangur og þess tæpast von. Vindáttin hafði um nokkurt skeið verið vestlæg og öldugangur upp á bjargið. Kom þeim Sveini Eyjólfi og Borgari saman um það að ekki hefðu þeir í mörgum ferðum ver- ið í svo kyrrum sjó og mikilli blíðu undir bjarginu. Meðan við sigld- um fram hjá Saxagjá nefndi ég það við Svein Eyjólf að mig lang- aði að fara þar um. Sagði hann að eins væri um sig. Hann hefði víða farið um bjargið en aldrei Sax- agjá. Við sammæltumst um að fara slíka ferð saman seinna þeg- ar aðstæður leyfðu. Strax daginn eftir breyttist veðrið og ekki gaf til annarrar leitar á þessum slóð- um eftir það. Þessi lýsing er dæmi um eitt þeirra fjölmörgu viðfangsefna sem Sveinn Eyjólf- ur tók að sér fyrir aðra. Ég þakka Sveini Eyjólfi, góð- um vini, samferðina og þá fræðslu sem hann veitti mér um umhverfi Rauðasands heima- sveitar sinnar. Vottum við Helga Margréti eiginkonu hans og börnunum og móður hans og systkinum innilegustu samúð okkar. Úlfar B. Thoroddsen. Harpa Heimisdóttir s. 842 0204 Brynja Gunnarsdóttir s. 821 2045 Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær s. 842 0204 | www.harpautfor.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sími · 567 9110 · utfarir@utfarir.is · www.utfarir.is Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR PÉTURSSON, bóndi á Hjaltastöðum, verður jarðsunginn frá Flugumýrarkirkju þriðjudaginn 22. júní kl 14. Athöfninni verður streymt á: https://www.youtube.com/watch?v=Tb_pK1uKtMY. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Skagafjarðar. Anna Jóhannesdóttir Sigurður Þ. Þórólfsson Sigríður Steinunn Þórólfsdóttir Ragnheiður Þórólfsdóttir Hafdís Huld Þórólfsdóttir Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir Helga Björg Þórólfsdóttir Pétur Óli Þórólfsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR FRIÐRIKKU JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Seltjarnar og Landspítalans í Fossvogi fyrir ómetanleg störf og umhyggju. Rebekka G. Gundhus Anders Gundhus Anna Ólafía Guðnadóttir Viðar Böðvarsson Arnfríður Lára Guðnadóttir Sveinbjörn Lárusson Kristín Guðnadóttir Einar Vignir Sigurðsson Jóna Björk Guðnadóttir Jón Marinó Jónsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, amma og langamma, ELÍN SÓLVEIG BENEDIKTSDÓTTIR sendiráðsfulltrúi, lést á Landspítalanum sunnudaginn 13. júní. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ef einhver vill minnast móður okkar er bent á Kvennaathvarfið. Guðlaugur Kristinn Óttarsson Björgúlfur Þorsteinsson Sólveig Jóhannesdóttir barnabörn og langömmubörn Ástkær móðir mín og frænka okkar, INGUNN HALLDÓRSDÓTTIR, áður Nökkvavogi 24, lést á hjúkrunarheimilinu Grund miðvikudaginn 9. júní. Útförin fer fram frá Langholtskirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 15. Halldór B. Jónsson Einar Hjaltested Svanhildur Elentínusdóttir Margrét T. Hjaltested Einar Kristinn Hjaltested María Gísladóttir Hrefna María, Hrafnhildur, Karolína, Katrín Eva og Ari Gísli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.