Morgunblaðið - 17.06.2021, Side 61

Morgunblaðið - 17.06.2021, Side 61
MENNING 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE Grín- Spennumynd eins og þær gerast bestar! ROGEREBERT.COM Gleðilegan 17. Júní – öll bíóin eru opin í dag! H efð hefur myndast í íslenskri kvikmynda- gerð fyrir frásögnum þar sem íslenskt sam- félag er sýnt frá sjónarhóli gests- ins. Í þessari gerð frásagna er söguhetjan gjarnan útlendingur sem sækir land og þjóð heim af til- teknum ástæðum, gjarnan til að gera eitthvað upp úr fortíð sinni eða að vinna bug á tilvistarlegu vanda- máli. Um leið er aðalpersónan fulltrúi alþjóðlega áhorfandans inn- an frásagnarinnar, sem horfir utan frá á þennan framandi heim á norð- urslóðum. Þessi hneigð náði kjöl- festu á tíunda áratugnum og er Á köldum klaka eftir Friðrik Þór Friðriksson á margan hátt frum- mynd þessara kvikmynda. Samtöl fara að einhverju eða öllu leyti fram á ensku en erlendi aðilinn getur líka verið aukapersóna eins og Lola í 101 Reykjavík. Þetta er ein skýr- asta birtingarmynd þverþjóðlegs eðlis íslenskrar kvikmyndagerðar – myndir sem eru jafnan fjármagn- aðar og framleiddar í samstarfi inn- lendra og erlendra aðila – og eru ekki síður ætlaðar alþjóðlegum markhópum en íslenskum. Skugga- hverfið fylgir þessari hneigð með beinum hætti og setur hana í saka- málabúning. Í upphafi sést aðalpersónan Maya, leikin af Brittany Bristow, á skokki með Airpods í eyrum í Toronto-borg. Hún gerir hlé á hlaupinu til að svara símtali frá móður sinni sem færir henni þær fregnir að amma hennar á Íslandi sé nýlátin en dóttirin hafði staðið í þeirri meiningu að formóðirin væri löngu öll. Stór hluti samtala Mæju (svo því sé snarað) í myndinni fer fram símleiðis og heyrist aðeins hennar hlið. Í framhaldinu heldur hún ein síns liðs til ættjarðarinnar. Amman sáluga átti gamalt báru- járnshús við Vatnsstíg fyrir neðan Hverfisgötu (númer tólf, ef rétt er með farið) og í kringum það hafa risið nútímaháhýsi sem mynda Skuggahverfi nútímans, en atburðarásin kvað snúast um árin fyrir hrun. Sögusviðið sýnir greini- lega fram á andstæður nýja og gamla Íslands sem eiga að mynda þematíska hryggjarsúlu verksins. Mæja heldur til á Vatnsstíg en hún á að ganga frá sölu hússins. Rúnar Freyr Gíslason leikur fjár- glæfraskúrk sem situr um hana með glóðvolgan kaupsamning undir höndum. Í hálfgerðu móki biður hetjan um að fá að lesa snepilinn áður en kvittað er undir og trekk í trekk bíður smjaðurstrýnið fyrir utan með kaupbréfið – augljós fulltrúi hinna spilltu peningaafla. Við og við er horfið til viðtalssenu milli rannsóknarlögreglu (Erla Ruth Harðardóttir) og Mæju. Amma gamla datt víst niður stigann – voru brögð í tafli? Þessi atriði (sem virðast vera eina og sama samtalið, brotið upp, þegar að er gáð) bera sýnilega virkni þess að útskýra söguheiminn og bakgrunn hans fyrir aðalpersónunni og áhorf- endum. Mæja vingast við Sóleyju (Inga María Eyjólfsdóttir), kaffi- húsamey sem kom að líki ömmu hennar. Er Mæja skokkar meðfram Sæbraut verður hún vitni að því að ekið er á hjólreiðamann á dular- fullan máta – smáslasaði lögfræð- ingurinn (Kolbeinn Arnbjörnsson) býður stöllu hiklaust í snæðing. Þokkafulli kappinn stígur glaður í hlutverk verndara og ástarviðfangs en er þó ekki allur þar sem hann er séður, enda auðmagnsfnykur af honum. Helstu leikendur eru þó ekki alveg upptaldir – Atli Óskar Fjalarsson leikur ungan og ógn- vekjandi nágranna, sem situr um kvenhetjuna. Eddu Björgvins- dóttur bregður fyrir sem ruglaðri, gráhærðri útigangsstaðalmynd – sem líklegast á að vera amman sál- uga. Leikur þeirra tveggja er þó fullkomlega orðlaus, þau end- urspegla þessa grunnþætti (Atli – vondur og Edda – geðveik) með lát- bragðsleik í innskotsskotum. Fram- an af er John Rhys-Davies (þekkt- astur sem dvergurinn Gimli í Hringadróttinssögu) í svipuðum gír í rullu huldumanns en hann fær eina samtalssenu með hetjunni und- ir rest. Grunnupplegg Skuggahverfisins er ekki galið fyrir glæpasögu en fátt gengur upp í framkvæmd henn- ar. Persónusköpunin er rýr, lítið er vitað um Mæju – fyrir utan það að hún skokkar í tómstundum sínum. Hún er einfaldlega leikandi í að- stæðum sem flétta höfundarins hef- ur fyrirskipað – aldrei trúverðug né áhugaverð. Það sama má segja um aðrar persónur myndarinnar – þær einfaldlega þjóna því sem á að ger- ast. Einna helst eru Rúnar Freyr og Kolbeinn eftirminnilegir sem auðvaldsskúrkar – táknrænar erki- týpur fyrir samfélagslegt mein. Handriti og miðlun frásagnar er einfaldlega ábótavant. Myndrænt er almennt haldið þröngum römm- um, sem orsakar að umhverfi og tökustaði skortir persónuleika, sér í lagi í húsinu gamla á Vatnsstíg. Fókus er jafnan grunnur, óskýrt baksvið en persónur skarpar í for- grunni, en þó er ekki samræmis gætt eins og sést bersýnilega í sam- talssenu Britanny og Rhys-Davies í kytrunni fúnu. Klipping og flæði frásagnar gerir aðhlaup að frásagn- araðferðum listabíósins með mörg- um samtalslausum brotum og rugli á línulegri frásögn (áðurnefnt lög- reglusamtal og atriðin með Eddu), en veldur því ekki. Tónlist Tomas Valents fær meginhlutverk og er nær gengumgangandi yfir allt verk- ið – en henni er ætlað að greiða úr flækjum myndarinnar og skapa ein- hvers konar heild og stemningu. Þessi algenga höfuðsynd og töfra- lausn kvikmyndagerðarmanna verður þó aldrei meira áberandi en í tveimur samtalssenum, einni á lyk- iltíma í framvindunni, þar sem hljóðið er einfaldlega skrúfað niður og tónlistin tekur yfir – en í fljótu bragði er erfitt að finna á því nokkra röklega og hvað þá fagur- fræðilega skýringu. Skuggahverfið er hálfbökuð kvikmynd en gæti höfðað til hörðustu glæpasagna- garpa. Græða á daginn, drepa á kvöldin Andstæður „Sögusviðið sýnir greinilega fram á andstæður nýja og gamla Íslands sem eiga að mynda þematíska hryggjarsúlu verksins,“ segir í rýni um Skuggahverfið. Þar fer Brittany Bristow með hlutverk Mæju. Háskólabíó, Sambíó Álfabakka Skuggahverfið bmnnn Leikstjórn, handrit og klipping: Jón Ein- arsson Gústafsson og Karolina Lewicka. Kvikmyndataka: Kristin Fieldhouse. Aðalleikarar: Brittany Bristow, Kolbeinn Arnbjörnsson, Inga María Eyjólfsdóttir, Rúnar Freyr Gíslason og John Rhys- Davies. Ísland/Kanada, 2020. 84 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.