Morgunblaðið - 17.06.2021, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 17.06.2021, Qupperneq 35
FRÉTTIR 35Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2021 Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur tekið í notkun stafrænar und- irskriftir fyrir samninga sem felur í sér að fyrirtækið mun einungis sýsla með reikninga og samninga á staf- rænu formi. Þá hyggst fyrirtækið einungis senda út reikninga og gögn til viðskiptavina á stafrænu formi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir jafnframt að ákvörðunin styðji við sjálfbærnistefnu Origo, sem hafi það að markmiði að auka umhverfisvæna upplýsingatækni og stuðla að umbúðalausu samfélagi. Kemur frá Dokobit Lausnin fyrir stafrænar undir- skriftir kemur frá íslenska hugbún- aðarfyrirtækinu Dokobit sem er samkvæmt tilkynningunni eini þjón- ustuveitandinn á Íslandi sem hefur lokið við eIDAS-vottun sem „full- gildur traustþjónustuveitandi til staðfestingar um samræmi við gild- andi lög um rafrænar undirskriftir og aðrar traustþjónustu“ eins og það er orðað í tilkynningunni. Origo verður jafnframt megin- samstarfsaðili Dokobit. Allir samningar stafrænir hjá Origo - Styður við sjálfbærnistefnu félagsins Upplýsingatækni Origo mun bæði þróa nýjar lausnir og tengja stafrænar undirritanir Dokobit við núverandi lausnir fyrirtækisins. Steypustöðin hefur sameinað vöru- merkin Loftorku Borgarnesi og Hólaskarð undir nafninu Steypustöðin. Sameinað fyrirtæki hefur einnig fengið nýtt og uppfært útlit sem endur- spegla á hlutverk og stefnu félags- ins til framtíðar. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu frá félaginu. Þar segir einn- ig að lausnafram- boð Steypustöðv- arinnar muni ná til víðtækari sviða í byggingar- framkvæmdum, allt frá framleiðslu og dreifingu á blaut- steypu, framleiðslu á forsteyptum einingum og hellum, múrvörum og fylliefnum til framkvæmda. Auk þess mun félagið leggja enn frekari áherslu á endurvinnslu á steypu og malbiki. Lokahnykkur sameiningar „Þetta er lokahnykkurinn á sam- einingarferli Steypustöðvarinnar og dótturfélaga þess sem hófst fyrir um tveimur árum,“ segir Björn Ingi Victorsson í tilkynningunni. „Við höfum nýtt þann tíma vel í að straumlínulaga starfsemina, þétta framboð félagsins á byggingar- lausnum og sækjum nú sterkari fram sem ein heild.“ Björn Ingi segir að nýtt útlit og vörumerki endurspegli fjölbreyttara framboð félagsins á byggingar- lausnum og skarpari áherslur í þjón- ustu við byggingariðnaðinn og sam- eini að auki alla starfsmenn undir eitt sterkara vörumerki. „Við teljum mikil sóknarfæri fólgin í því að sam- eina heildarstarfsemi félagsins und- ir eitt vörumerki Steypustöðvarinn- ar. Í þessu felst skilvirkara sölu- og markaðsstarf og aukið hagræði í rekstri.“ Nýja vörumerkinu er ætlað að leggja áherslu á vegferð félagsins til aukinnar sjálfbærni og útlit þess taki nú talsverðum breytingum til að endurspegla þessa nýju sýn fé- lagsins. „Við ætlum okkur að vera skrefi á undan á byggingamarkaðn- um og bjóða viðskiptavinum okkar sterkari þjónustu og ráðgjöf á þeim lausnum sem við höfum upp á að bjóða. Þetta þýðir aukin breidd í starfseminni, nýsköpun og betri og heildstæðari þjónusta. Við erum nú vel í stakk búin til að þjónusta við- skiptavini okkar ennþá betur með víðtækari og spennandi lausnum sem hafa ekki verið til staðar á markaðnum. Það eru svo sannarlega spennandi tímar fram undan,“ segir Björn Ingi að lokum í tilkynning- unni. Frumkvöðull í blautsteypu Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og var frumkvöðull í Evrópu með dreifingu á blautsteypu úr steypubifreiðum og varðaði þann- ig brautina í mannvirkjagerð á Ís- landi samkvæmt tilkynningunni. Loftorka var stofnuð árið 1962 og malarnámur Hólaskarðs og Vatns- skarðs eiga rætur að rekja til níunda áratugar síðustu aldar. Hjá Steypustöðinni starfa um 300 manns á 10 starfsstöðvum í Reykja- vík, Hafnarfirði, Reykjanesi, Borg- arnesi, Selfossi og Vík með fram- leiðslugetu upp á um 600 rúmmetra af steypu á klukkustund. Velta árs- ins 2020 var tæpir átta milljarðar króna. Loftorka og Hólaskarð undir Steypustöðina - Nýtt útlit endurspeglar hlutverk og stefnu til framtíðar Steypubíll Nýja vörumerkið leggur áherslu á aukna sjálfbærni. Björn Ingi Victorsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.