Þjóðmál - 01.06.2017, Page 3

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 3
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 3 Af vettvangi stjórnmálanna, bls. 5 Björn Bjarnason skrifar um breytt vinnu- brögð á Alþingi, gerð fjármálaáætlunar, skipun dómara við Landsrétt og fleira. Í ljósi sögunnar, bls. 14 Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, fjallar um stöðu efnahagsmála og hvaða lærdóm stjórnvöld geta dregið af reynslu fyrri ára. Óþol gagnvart andstæðum skoðunum, bls. 22 Óli Björn Kárason þingmaður skrifar um tíðar hótanir Pírata í stjórnmálaumræðunni og hvernig þær hótanir reynast í nær öllum tilvikum innihaldslausar. Frjálst og sjálfstætt Bretland í sjónmáli, bls. 26 Hjörtur J. Guðmundsson, sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur, skrifar um stöðu Brexit að afstöðnum kosningum í Bretlandi. Mýtan um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka, bls. 32 Gísli Freyr Valdórsson skrifar um ítarlega úttekt Oonagh Anne McDonald sem hrekur aftur mýtuna um nauðsyn þess að aðskilja starfsemi viðskiptabanka og fjárfestingar- banka til að koma í veg fyrir fjármálahrun. Fjölnir, bls. 44 Fjölnir, nýr ritstjórnardálkur í Þjóðmálum, fjallar um það hvernig ókjörnir embættis- menn með ekkert lýðræðislegt umboð reyna ítrekað að taka völdin í landinu. Kosningar, bls. 54 Fjallað er um kosningarnar í Bretlandi og hvernig vopnin snerust í höndum May. Umhverfismál, bls. 56 Fjallað er um ákvörðun Trump um að draga Bandaríkin út úr Parísarsamkomulaginu. Alþjóðastjórnmál, bls. 60 Fjallað er um viðbrögð hægri manna í Bandaríkjunum við ákvörðun um að herða aftur á viðskiptabanninu við Kúbu. Sjávarútvegur, bls. 64 Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, fjallaði um stöðu sjávarútvegsins, svokallaða sáttanefnd sjávarútvegsráðherra, ákvörðum um hagræðingu hjá HB Granda og það hvernig íslenskur sjávarútvegur sé í raun atvinnu- grein tækifæranna í ávarpi sínu á aðalfundi samtakanna. Stóriðja, bls. 68 Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls og forstjóri Ísal, fór yfir það hvernig erlend fjárfesting hafði mikil áhrif í atvinnuupp- byggingu á Íslandi í ávarpi sínu á ársfundi Samáls. ÞJÓÐMÁL 13. árgangur Sumar 2017 2. hefti Tímarit um þjóðmál og menningu Efnisyfirlit

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.