Þjóðmál - 01.06.2017, Blaðsíða 92
90 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017
Frá því að Kórea var klofin í tvö ríki í lok seinni
heimsstyrjaldar er talið að um 30 þúsund
manns hafi náð að flýja frá Norður-Kóreu til
Suður-Kóreu. Margfallt fleiri hafa reynt en
ekki haft árangur sem erfiði. Sífellt erfiðara er
að komast frá Norður-Kóreu en undanfarin ár
hafa um 1500 manns náð að flýja þaðan ár-
lega. Það sem af er árinu 2017 hafa enn færri
náð að flýja enda leggja Norður-Kóreönsk
stjórnvöld mikla áherslu á að koma í veg fyrir
flótta en þeir sem komast í burtu hafa ófagra
sögu að segja. Hér er fjallað um eina slíka.
Með lífið að veði
Í júníbyrjun kom út á íslensku bókin Með
lífið að veði eftir Yeonmi Park sem fæddist í
Hyesan, Norður-Kóreu, árið 1993. Hún býr
nú í New York-borg þar sem hún stundar
hagfræðinám við Columbia-háskóla. Þrátt
fyrir ungan aldur hefur Yeonmi Park upplifað
miklar mannraunir.
Árið 2007, þá 13 ára, flýði hún grimmilegar
aðstæður heima fyrir ásamt móður sinni til
Kína. Þar lentu þær í klóm mansalshrings sem
hneppti þær í þrældóm. Um síðir tókst þeim
á æsilegan hátt að flýja til Suður-Kóreu.
Saga Yeonmi Park er mögnuð og er bókinni
skipt upp í þrjá hluta.
Fyrst er rakin uppvöxtur hennar í Norður-
Kóreu en síðan er sagt frá flóttanum til Kína
og að lokun aðlögun og endurnýjun í Suður-
Kóreu. Lífið í Norður-Kóreu er engu líkt,
þjóðin lifir við hungur og vosbúð og ekkert
má út af bregða til þess að fólki sé ekki hent í
fangelsi eða því útskúfað á annan hátt.
Frásögn Yeonmi Park er upplýsandi, nákvæm
og einlæg en hún lýsir æsku í landi þar sem
fátæktin, hungrið og óttinn hafa svipt fólk
allri mennsku. Þannig virðast flestir hugsa um
það eitt að komast af og það er ekki sjálfsagt
að ættingjar eða vinir hjálpist að. Allir eru
Sigurður Már Jónsson
Leið norður-
kóreskrar
stúlku til frelsis
Yeonmi Park
Með lífið að veði
Útgefandi: Almenna bókafélagið,
Reykjavík 2017.
Þýðing: Elín Guðmundsdóttir
273 bls.
Bókin heitir á frummálinu In Order to
Live og kom fyrst út á ensku hjá Penguin
Books í Bretlandi árið 2015.
Bókarýni