Þjóðmál - 01.06.2017, Blaðsíða 15
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 13
VII.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ritaði
undir skipunarbréf dómaranna 15 fimmtu-
daginn 8. júní.
Í tilefni af undirrituninni sendi forseti frá sér
sérstaka yfirlýsingu. Forseti segir að „tveimur
sólarhringum eftir að mér bárust þau [skipu-
narbréfin] í hendur“ hafi hann ritað undir þau.
Þetta tekur hann líklega fram vegna orða
Jóns Þórs Ólafssonar um að hann ætlaði að
„taka sér góðan tíma að fara vel yfir málið“.
Þá tekur forsetinn það fram sem öllum er ljóst
sem þekkja stjórnskipun íslenska lýðveldisins
„að forseti er ábyrgðarlaus af stjórnarathöf-
num og lætur ráðherra framkvæma vald sitt“.
Í yfirlýsingunni nefnir forseti að sú staða geti
„þó vissulega komið upp að forseti þurfi að íhu-
ga hvort hann vilji staðfesta stjórnarathafnir“.
Nefnir hann sem dæmi að forseti verði var við
augljósar villur í skjölum sem honum eru afhent
og krefjist leiðréttingar á þeim.
Ekkert slíkt var á döfinni í þessu tilviki. Taldi
forseti nauðsynlegt að rannsaka hvort alþingi
hefði staðið rétt að málum við afgreiðslu
tillögu dómsmálaráðherra um dómaraefnin!
Fól hann forsetaritara að kalla á gögn frá
skrifstofu alþingis um málsmeðferð þingsins.
Skrifstofan leggur öll gögn vegna atkvæða-
greiðslna í hendur forseta þingsins og taldi
að sjálfsögðu rétt að málum staðið og í sam-
ræmi við þingskapalög.
Hvað varð til þess að forseti Íslands hóf þessa
rannsóknarvinnu vegna skjala sem fyrir hann
voru lögð á réttan hátt?
Jú, að lögfræðingar hefðu lýst „yfir efasemd-
um um að rétt hefði verið að málum staðið,
að vísu einatt með fyrirvara um að málsatvik
lægju ekki fyllilega ljós fyrir“.
Í öðru lagi vísaði forseti til einkennilega
textans sem birtur er hér að framan með
hvatningu til hans um að verða ekki við
skyldu sinni til að undirrita skjölin.
Í þriðja lagi „hafði Jón Þór Ólafsson, alþing-
ismaður og 3. varaforseti Alþingis, samband
við mig og lýsti efasemdum um lögmæti
atkvæðagreiðslunnar“ segir forseti.
Af þessum orðum má ráða að orð Jóns Þórs
vegi þyngra en ella þar sem hann situr í
forsætisnefnd alþingis. Að þingflokkur Pírata
veiti honum umboð til þess og aðrir þing-
menn samþykki er til marks um virðingarleysi
fyrir alþingi.
Hr. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Mynd: forseti.is
Í yfirlýsingunni nefnir forseti að sú staða geti „þó vissulega komið upp að forseti
þurfi að íhuga hvort hann vilji staðfesta stjórnarathafnir“.
Nefnir hann sem dæmi að forseti verði var við augljósar villur í skjölum
sem honum eru afhent og krefjist leiðréttingar á þeim.