Þjóðmál - 01.06.2017, Page 4

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 4
2 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Þjóðmál tímarit um stjórnmál og menningu 13. árg. 2. hefti sumar 2017 Útgáfufélag: Þjóðmál ehf. Útgefandi og ritstjóri: Gísli Freyr Valdórsson. Umbrot og hönnun: Þjóðmál ehf. Prentun: Oddi, umhverfisvottuð prentsmiðja Þjóðmál kemur út ársfjórðungslega. Áskriftarverð er kr. 4.900 á ári auk 11% vsk. eða alls kr. 5.439,-. Lausasöluverð er kr. 1.500,-. Þjóðmál er að hluta ritrýnt tímarit. Póstang: askrift@thjodmal.is. thjodmal.is - þjóðmál.is Öryggis- og varnarmál, bls. 70 Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráð- herra fjallaði um þjóðaröryggismál í nýju ljósi á fundi hjá Varðberg í júní. Í ávarpi sínu fór Guðlaugur Þór yfir störf þjóðaröryggis- ráðs og þjóðaröryggisstefnu sem samþykkt var á Alþingi á síðasta ári, varnarsamninginn við Bandaríkin og stöðu okkar í NATO, sam- skiptin við Rússland og margt fleira. Þjóðmál birtir meginefnið úr ávarpi Guðlaugs Þórs. Sögur, bls. 77 Birt er Kínverska sagan eftir Fréderic Bastiat í íslenskri þýðingu Geirs Ágústssonar. Bækur, bls. 84 Björn Jón Bragason skrifar um bók Ants Oras, Örlaganótt yfir Eystrasaltslöndum, sem kom upphaflega út árið 1948. Bókin er átakanleg og lýsir því hvernig Eistland, sem var friðsæl athafnaþjóð, varð fyrir skefja- lausu grimmræði af hálfu Sovétríkjanna. Bókarýni, bls. 87 Björn Bjarnason skrifar um bók Guðrúnar Guðlaugsdóttur, Í hörðum slag – Íslenskir blaðamenn II, þar sem fjallað er um störf blaðamanna á Íslandi. Sigurður Már Jónsson skrifar um bók Yeonmi Park, Með lífið að veði, sem kom út í íslenskri þýðingu í sumar. Bókin fjallar um flótta hennar og móður hennar frá Norður Kóreu til Kína, þar sem þær lentu í klóm mansalshrings áður en þeim tókst að flýja til Suður-Kóreu. Bókin varpar ljósi á myrkustu kima Norður-Kóreu er einkum saga stað- festu og hugrekkis ungrar konu sem lagði líf sitt að veði til að öðlast frelsi. Ljóð, bls. 96 Jón Hjaltason þýðir ljóðið Sporfagri eftir Seamus Heany

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.