Þjóðmál - 01.06.2017, Page 12

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 12
10 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Umræður um skattamál vegna fjármála- áætlunarinnar snerust einkum um hvort ferðaþjónustan ætti að greiða jafn háan virðisaukaskatt og aðrar atvinnugreinar. Gagnrýnendur þessara áforma töldu að hækkun skattsins græfi undan atvinnu- greininni, helsta vaxtarbroddi efnahagslífsins um þessar mundir. Aðrir bentu á koma yrði straumi ferðamanna í viðráðanlegan farveg, 30% fjölgun ár eftir ár yrði til vandræða og hefði í raun neikvæð áhrif. IV. Hvað sem segja má um gerð fjármála- áætlunarinnar, aðferðina við afgreiðslu hennar á alþingi eða efni hennar er fram- lagning hennar í krafti laganna um opinber fjármál markvert spor við stjórn ríkisfjármála. Óttist menn að hlutur embættismanna aukist við ákvarðanir um niðurstöðu fjárlaga með þessum nýju vinnubrögðum eru áformin um að breyta vinnubrögðum þingmanna og auka sérfræðiþekkingu á ríkisfjármálum innan þings eðlileg viðbrögð við þeim ótta. Þingmenn setja sig þó aldrei betur inn í mál en þeir sjálfir ákveða. Umræður þeirra um dægurmál í upphafi þingfunda undir mis- munandi dagskrárliðum benda til að einföld mál og fyrirsagnir frétta eða viðleitni til að bregða neikvæðu ljósi á andstæðinga þyki meira spennandi en að rýna í skýrslur og skjöl til málefnalegra umræðna. Aðferðin sem mótuð var við afgreiðslu fjármálaáætlunarinnar þegar allar fagnefndir þingsins voru virkjaðar við gerð umsagna eftir að hafa kallað ráðherra og aðra á fund sinn gefur öllum þingmönnum færi á að kynnast efni fjárlaga betur en áður hefur verið. Í lok þings er birt tölfræði til að gefa mynd af störfum þess. Hún lýsir þó ekki nefndar- störfunum sem öðlast sífellt meira vægi í þingstörfunum. Tölfræði segir ekki heldur neitt um hvað ræðukóngar hafa til málanna að leggja enda segir reynslan að efni málsins ráði sjaldan þegar menn biðja um orðið um allt milli himins og jarðar. Beinar sjónvarps- útsendingar kalla menn sem þrá athygli í ræðustólinn. Einhvern tíma var spurt hvort ekki mætti stytta fundartíma þingsins með því að setja þá sem detta í þennan pytt í stillimyndina. V. Þingmenn tókust á við nýmæli með afgreiðslu fjármálaáætlunarinnar. Sama gerðu þeir á lokadegi þingsins þegar þeir greiddu atkvæði um dómara í Landsrétt, nýjan millidómstól, sem tekur til starfa í haust. Dómnefnd gerði tillögu um 15 dómara til Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra. Hún ákvað að skipta út fjórum af þessum 15 og gerði tillögu um nýja menn. Stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd alþingis ræddi tillögu ráðherrans og stjórnaði nýliði meðal þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Njáll Trausti Friðbertsson, úr norðaustur-kjördæmi, afgreiðslu málsins í nefndinni en Sjálfstæðis- þingmaðurinn, Brynjar Níelsson, vék af formannsstóli og úr nefndinni við afgreiðslu málsins þar sem eiginkona hans var í hópi dómaraefna í tillögu ráðherrans. Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.