Þjóðmál - 01.06.2017, Side 22

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 22
20 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Lærum af reynslunni Svíar gengu í gegnum efnahagsþrengingar við upphaf tíunda áratugarins, ekki ósvipaðar þeim sem Íslendingar hafa kynnst vel af eigin raun. Efnahagsuppsveifla með lausbeisluðum ríkisfjármálum, óábyrgri launastefnu, háu vaxtastigi og ósjálfbærri styrkingu krónunnar sem grefur að lokum undan útflutnings- greinum getur snögglega snúist í efnahags- lægð og gengisveikingu. Ólíkt Íslendingum, drógu Svíar lærdóm af sínum þrengingum, áttuðu sig á orsakavöldum og breyttu gagngert vinnubrögðum sínum. Böndum var komið á launahækkanir og endurspegla þær nú undirliggjandi verðmætasköpun í hagkerfinu. Með því er samkeppnishæfni þjóðarbúsins tryggð. Þá settu Svíar reglur um opinber fjármál og breið samstaða hefur myndast bæði á þingi sem og utan þess um mikilvægi þess að ríkisfjármálin séu ábyrg og vinni gegn hagsveiflunni. Svipaða sögu má segja af Dönum og Norðmönnum sem gengu í gegnum efnahagslægð á svipuðum tíma og tóku hagstjórnina föstum tökum í framhaldinu. Það væri óskandi að Íslendingar drægju áþekkan lærdóm af fyrri hagstjórnarmistökum. Ný lög um opinber fjármál munu vonandi stuðla að bættum vinnubrögðum við afgreiðslu fjárlaga. Þar þarf að tryggja að aðhaldsstig hins opinbera haldist nægjanlegt á tímum góðæris. Það er forsenda þess að stjórnvöld geti búið í haginn þegar vel árar og um leið spornað gegn ósjálfbærri þenslu og þannig dregið úr tíðum og harkalegum sveiflum. Það er vonandi að á vinnumarkaði takist að innleiða breytt vinnubrögð í anda þess sem Norðurlöndin starfa eftir. Ábyrgðin er sérstak- lega mikil nú hjá aðilum vinnumarkaðarins. Mikil hætta er á að enn og aftur missum við tökin á toppi hagsveiflunnar. Okkur hefur reynst erfiðara en öðrum þjóðum að halda haus þegar gangurinn er góður og það virðist gleymast að hagsveiflan fer bæði upp sem og niður. Það sem gefur þó tilefni til bjartsýni er góð staða þjóðarbúsins - sparnaður heimila og fyrirtækja er í sögu- legum hæðum, við eigum rúman gjaldeyris- varaforða og skuldir þjóðarbúsins hafa sjaldan verið lægri. Það er vonandi að við getum spilað rétt úr þeirri sterkri stöðu sem nú er komin upp. Annað væri að endurtaka fullreynd mistök fortíðar. Höfundur er forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins Í 40 mánuði samfleytt hefur verðbólga mælst að meðaltali umtalsvert undir verðbólgumarkmiði á sama tíma og Seðlabankinn hefur lítið kvikað frá aðhaldssamri peningastefnu. Nú er svo komið að raunvaxtamunur við helstu viðskiptalönd er í kringum 4,5% sem svipar til þess sem var að mælast hér á þensluárunum síðustu.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.