Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 25
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 23
fram ef meirihluti þingsins samþykkti skipan
dómara. Ekki sé hins vegar búið að greiða
atkvæði í þingflokki Pírata um vantraustið en
fréttastofa Ríkisútvarpsins hafði það eftir Jóni
Þór að meirihlutavilji sé í þingflokknum fyrir
slíkri tillögu.
Alþingi gekk frá skipan dómara á grunni
tillögu dómsmálaráðherra en Píratar stóðu
ekki við „hótun“ um vantraust. Aldrei hefur
komið fram af hverju. Annað hvort var
hótunin innantóm og merkingarlaus eða
ekki meirihluti meðal Pírata fyrir því að leggja
tillögu um vantraust fram, sem verður að
teljast ólíklegt. Hótanir um vantraust var ekki
það eina sem reynt var. Fylgitungl Pírata utan
þingsins boðuðu mótmæli fyrir utan þing-
húsið í tvo daga í röð. Mótmælin runnu út í
sandinn vegna áhugaleysis og hægt var að
telja mótmælendur á fingrum beggja handa.
Ekki í fyrsta skipti
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Píratar hafa
haft uppi stór orð um vantraust. Því fékk Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis,
að kynnast árið 2012.
Miðstjórn Ungra jafnaðarmanna lýsti yfir
vantrausti á Ástu Ragnheiði, eftir að hún
hafði greitt atkvæði gegn því að vísa frá
tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir
H. Haarde. Frávísuninni var ætlað að koma
í veg fyrir að tillagan um afturköllun fengi
þinglega meðferð. Ásta Ragnheiður sat undir
harðri gagnrýni frá samherjum sínum vegna
afstöðu sinnar og fékk fremur kaldar kveðjur
og engan stuðning frá Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, gömlum samherja, samverkakonu og
vinkonu úr Þjóðvaka.
Birgitta Jónsdóttir, sá sér leik á borði en hún
var þá þingmaður Hreyfingarinnar enda
Píratar ekki komnir fram á sjónarsviðið. Í
viðtali við Egil Helgason, lýsti Birgitta því yfir
að hún stæði fyrir undirskriftasöfnun meðal
þingmanna til að lýsa vantrausti á forseta
Alþingis. Skömm forsetans var ekki aðeins að
hafa staðið gegn frávísun heldur fremur að
hafa sett tillöguna um afturköllun ákærunnar
á dagskrá þingsins.
Birgitta sagðist vera misboðið:
„Ég byrjaði nú bara á þessum
undirskriftalista eftir atkvæðagreiðsluna en
það eru komnir aðilar úr þremur flokkum.
Ég mun ekki birta nöfnin nema okkur takist
að fá 32.“
Listinn var aldrei birtur. Tillaga um vantraust
á forseta kom aldrei fram.
„… því að ég er svo hrædd“
Í mars 2013 lagði Þór Saari fram vantrausts-
tillögu á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur.
Þá var Þór félagi Birgittu í Hreyfingunni. Hann
var í framboði fyrir Pírata í síðustu kosningum
og er fulltrúi þeirra í bankaráði Seðlabankans.
Í stuttri greinargerð sagði Þór að „vantrausts-
tillaga sem hér er lögð fram beinist gegn
ríkisstjórninni þar sem hún situr í umboði
meirihluta þingsins, en þingið getur ekki
afgreitt frumvarp til stjórnskipunarlaga byggt
á þeim drögum sem samþykkt var að leggja
til grundvallar nýrri stjórnarskrá og samþykkt
voru með yfirgnæfandi meiri hluta í þjóðar-
atkvæðagreiðslu 20. október 2012“.
Eins og við var að búast studdi Birgitta
vantrauststillöguna en aðeins í veki. Hjarta
hennar sló með vinstri stjórn Samfylkingar og
Vinstri grænna, eins kom fram þegar Birgitta
gerði grein fyrir atkvæði sínu:
„Ég vona þó að þetta já mitt verði ekki til
þess að fella ríkisstjórnina, eins fáránlega og
það hljómar, einfaldlega út af því að ég er
svo hrædd við þetta ferli.“
Vorið 2016 var hart sótt að Sigmundi Davíð
Gunnlaugssyni forsætisráðherra eftir að
upplýst var að eiginkona hans ætti eignar-
haldsfélagið Wintris Inc. sem er skráð á
Bresku Jómfrúreyjum. Pólitískir andstæðingar
Sigmundar Davíðs runnu á blóðlyktina, -
töldu tækifæri til að koma pólitísku höggi á
forsætisráðherra og jafnvel rothöggi, ef vel
tækist til. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, var fljótur að lýsa því yfir að
óhugsandi væri að forsætisráðherra sæti
áfram.