Þjóðmál - 01.06.2017, Side 33

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 33
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 31 Munu án nokkurs vafa ná sér vel á strik Líklegasta niðurstaðan úr viðræðum Bret- lands og Evrópusambandsins um útgöng- una er víðtækur fríverzlunarsamningur. Ef viðræðurnar renna þá ekki út í sandinni fyrst. Samhliða þeim eru Bretar í óformlegum viðræðum um fríverzlun við tugi ríkja um allan heim. Þá einkum helztu samveldislönd- in.4 Bretar verða því ekki á flæðiskeri staddir strandi viðræðurnar við sambandið. Viðskipti á milli Evrópusambandsins og Bretlands munu halda áfram hvort sem samningar nást eða ekki í tengslum við útgönguna. Viðskipti snúast fyrst og fremst um framboð og eftirspurn þó fríverzlunarsamningar, sem snúast aðallega um að stjórnmálamenn fjarlægi eða dragi úr viðskiptahindrunum sem þeir hafa sjálfir komið á, hjálpi mjög til í þeim efnum. Ekki má gleyma því að Evrópusambandið á ekki minni hagsmuni undir því að samningar náist um sem greiðastan gagnkvæman markaðsaðgang á milli Bretlands og sam- bandsins. Þar vega til að mynda þungt hags- munir þýzkra bifreiðaframleiðenda. Takist samningar ekki mun það vafalítið að mínu áliti koma verr niður á Evrópusambandinu en Bretum til lengri tíma litið. Vert er að hafa huga í því sambandi að Evrópusambandið er í grunninn tollabanda- lag sem snýst fyrst og fremst um það að vernda framleiðslu sem fram fer innan bandalagsins gegn utanaðkomandi sam- keppni og er þannig í eðli sínu andstæða fríverzlunar. Evrópusambandið hefur þannig til þessa ekki lagt mikla áherzlu á fríverzlunar- samninga nema þá af illri nauðsyn. Misheppnaðar fríverzlunarviðræður við Bandaríkin voru þannig til að mynda ekki hafnar af hálfu Evrópusambandsins vegna einlægs áhuga á fríverzlun heldur í hálfgerri örvæntingu í kjölfar alþjóðlegu efnahag- skrísunnar. Enda er sambandið hnignandi efnahagsveldi.5 Bretar eru hins vegar og hafa verið í aldir hnattrænt hugsandi. Ekki sízt þegar kemur að viðskiptum. Fyrir vikið eru allar líkur á því að Bretland nái sér vel á strik eftir útgönguna úr Evrópusam- bandinu. Einkum til lengri tíma litið. Hvort sem samningar við sambandið nást eða ekki. Þegar árangur Breta utan Evrópusam- bandsins verður öllum ljós reynir síðan fyrst á það fyrir alvöru hvort fleiri ríki sambandsins eiga eftir að fylgja í kjölfarið og endurheimta frelsi sitt og sjálfstæði. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum). Heimildir: 1 „New poll suggests more than two thirds of people ‘now support Brexit’“. Telegraph.co.uk 15. maí 2017. http://www.telegraph.co.uk/news/2017/05/15/two- thirds-voters-now-support-brexit/ 2 „Labour in chaos as Corbyn campaign chief suggests left-wing MPs may form new party “. Telegraph.co.uk 2. júlí 2017. http://www.telegraph.co.uk/news/2017/07/02/ labour-chaos-corbyn-campaign-chief-suggests-left- wing-mps-may/ 3 Þar er átt við Douglas Carswell sem var eini þing- maður Brezka sjálfstæðisflokksins (UKIP) sem náði kjöri í þingkosningunum 2015 en hann sat áður á þingi fyrir Íhaldsflokkinn. 4 Þar er einkum um að ræða Kanada, Ástralíu, Nýja- Sjáland og Indland. Þá hafa fjömörg önnur ríki, eins og Bandaríkin, Kína og Japan, lýst yfir áhuga á fríverzlun við Breta eftir að þeir hafa yfirgefið Evrópusambandið. 5 „Europe’s glory days at an end, warns Juncker“. Tel- egraph.co.uk 22. október 2015. http://www.telegraph. co.uk/news/worldnews/europe/eu/11949038/Europes- glory-days-at-an-end-warns-Juncker.html Ísland gæti mögulega byggt tengsl sín við Evrópusambandið eftirleiðis á nútímalegum víðtækum fríverzlunarsamningi á hliðstæðum nótum og samið yrði um á milli Bretlands og sambandsins.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.