Þjóðmál - 01.06.2017, Side 42

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 42
40 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Margir stjórnmálamenn taka þessa tvo risa- banka sem dæmi þegar rætt er um aðskilnað viðskiptabanka og fjárfestingarbanka. Hvorki Bear Sterns né Lehman Brothers stunduðu þó viðskiptabankastarfsemi og hrun þeirra hefur að mati McDonald ekkert að gera með það hvort að bönkum sé heimilt að starfa í senn sem viðskiptabankar og fjárfestingarbankar. Hún telur í grein sinni að frekar þurfi að horfa til þess af hverju svo margir viðskiptabankar hrundu sem raun ber vitni. Léleg vinnubrögð bankanna urðu þeim að falli Að mati McDonald má helst rekja vanda bankanna til þess að þeir voru búnir að lána of mikið til byggingaframkvæmda, kaupa á landi og húsnæðislána á þeim tíma sem húsnæðismarkaðurinn hrundi. Hún rekur fall tveggja viðskiptabanka, IndyMac og Washington Mutual, sem báðir féllu árið 2008. Fall þeirra má rekja til illa ígrundaðrar lánastefnu á húsnæðismarkaði. Báðir bankarnir höfðu einblítt á lán til fasteignakaupa á Flórída og í Kaliforníu, hvar húsnæðisverð lækkaði fyrst. Umsvifamestu viðskipti IndyMac áttu sér stað við veitingu fasteignalána. Bankinn lánaði mikið fasteignakaupa án þess að tryggja veð og seldi síðan lánin áfram í formi flókinna skuldabréfavafninga. Bankinn krafðist ekki mikillar pappírsvinnu af hálfu viðskiptavina og framkvæmdi ekki fullgilt greiðslumat á greiðslufærni þeirra. Síðar kom á daginn að lántakendur stóðu ekki undir lánagreiðslum, sem hafði það í för með sér að bankinn stóð ekki undir greiðslum á þeim skuldabréfa- vafningum sem hann hafði sjálfur gefið út. IndyMac rak aðeins 33 útibú á landsvísu og hafði ekki næg innlán til að standa undir þessum viðskiptum. Um þriðjungur tekna bankans hafði komið frá opinberum íbúðar- lánasjóð (Federal Home Loan Bank) en þegar sú lánalína lokaðist var spilið búið. Grunnur- inn að falli bankans var annars vegar kolröng aðferðafræði við veitingu lána og hins vegar glæfraleg viðskipti við útgáfu skuldabréfa- vafninga til að fjármagna sig. Bankinn stundaði þó enga fjárfestingarbankastarf- semi og undir Glass-Steagall löggjöfinni hefði bankanum verið heimilt að stunda fyrrnefnd viðskipti með sama hætti. Bandaríski risabankinn Lehman Brothers féll um miðjan september 2008, eftir að hafa ofmetið verðmæti viðskipta- og fasteignalána í safni sínu og vanmetið stórlega áhættu í fjárstýringarstefnu sinni. Þetta kom í ljós þegar brestir í reiknings- skilum bankans voru afhjúpaðir. Hrun Lehman Brothers skók fjármálakerfi út um allan heim og eftirmálarnir af hruni bankans teygðu anga sína til m.a. til Íslands.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.