Þjóðmál - 01.06.2017, Page 56

Þjóðmál - 01.06.2017, Page 56
54 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 Tillaga Theresu May, forsætisráðherra Breta, um að rjúfa þing og efna til kosninga var samþykkt neðri málstofu breska þingsins 19. apríl 2017 með 522 astkvæðum gegn 13. Kosningarnar fóru fram 8. júní 2017, hefði þingið ekki verið rofið gat það setið til 7. maí 2020. Tilgangur forsætisráðherrans var að styrkja stöðu sína í viðræðum við Evrópusambandið vegna úrsagnar Breta úr því. Fyrir kosningarnar hafði hún 12 þingsæta meirihluta á þingi, vildi hún stækka hann. Vopnin snerust í höndum May. Í stað þess að fjölga þingmönnum flokks síns tapaði hún 13, fékk 318 kjörna sem dugði henni ekki til að mynda meirihlutastjórn. Ríkisstjórn þarf 326 þingmenn af 650 til að njóta meirihluta. May tók upp viðræður við smáflokk sambandssinna á Írlandi, Democratic Union Party (DUP), til að tryggja sér fylgi 10 þingmanna hans. Með stuðning flokksins að baki myndaði May minnihlutastjórn föstudag- inn 9. maí. Íhaldsflokkurinn hlaut 42,4% atkvæða en Verka- mannaflokkurinn 40% og jók þingmannafjölda sinn um 30. Fylgi Íhaldsmanna jókst um 5,5% miðað við kosningarnar 2015 en Verkamanna- flokksins um 9,5%. Þykir þetta til marks um að Jeremy Corbyn, leiðtogi Verkamannaflokksins, höfði betur til kjósenda en áhirfamanna innan eigin flokks þar sem hann hefur átt undir högg að sækja. Theresa May sætir gagnrýni innan eigin flokks vegna þess hve illa henni tókst að halda á málum í kosningabaráttunni. Þegar þing var rofið sýndu sumar kannanir um 20 stiga forskot Íhaldsflokksins gagnvart Verkamanna- flokknum. Því er spáð að hún verði ekki langlíf í leiðtogasætinu. Hér birtist hluti greinar sem Norman Tebbit (86 ára) ritaði á vef breska blaðsins Telegraph föstu- daginn 9. júní. Tebbit var á sínum tíma náinn samstarfsmaður Margaret Thatcher, leiðtoga Íhaldsflokksins, og sat í ríkisstjórn hennar 1981 til 1987. Norman Tebbit segir: Snemma í apríl sýndu mælingar stórkostlegt forskot Íhaldsflokksins og Theresu May persónulega, þær hlutu að vekja freistingu í augum margra og kröfu um að flýta þing- kosningum. May og nánustu vinir hennar í stjórnmálunum féllu fyrir þessari freistingu. Hún var svo vitlaus að láta freistast en ekki nóg með það hún kaus að hafa furðulega langa kosningabaráttu og gaf þar með alltof mikinn tíma fyrir hluti til að fara úr skorðum. Eftir sveitarstjórnakosningarnar 5. maí sem réttilega var lýst sem „sigurkvöldi fyrir Íhalds- menn“ í The Telegraph. Þeir hefðu skilið „Verkamannaflokkinn eftir í sárum“. May hlýtur að hafa vænst þess að njóta annars sigurkvölds fimmtudaginn 8. júní. Hún áttaði sig þó ekki á því að það var Íhalds- flokkurinn sem barðist til sigurs í sveitarstjórna- kosningunum, einkum vegna staðbundinna mála; seinni mistökin voru að skipuleggja kosningabaráttuna svona illa. Kosningar Vopnin snerust í höndum Theresu May Theresa May, forstærisráðherra Bretlansds. (Mynd: BBC)

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.