Þjóðmál - 01.06.2017, Side 70

Þjóðmál - 01.06.2017, Side 70
68 ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 „Fjárfesting er það sem drífur áfram efnahag landsins, eykur framleiðslugetu og myndar undirstöðu velferðar okkar,“ sagði Rannveig Rist á ársfundi Samál í maí. Rannveig hefur starfað sem forstjóri Ísal (álversins í Straumsvík) frá árinu 1996. (Mynd: Samál) Stóriðja Erlend fjárfesting kom hreyfingu á hlutina Það kvað við óvæntan tón í upphafi erindis Rannveigar Rist, stjórnarformanns Samáls og forstjóra Ísal, á ársfundi Samáls í maí. „Byrjum á því að fara í ferðalag aftur til ársins 974,“ sagði hún. „Árið 974 bjuggu 70 þúsund manns á Íslandi, sem er ótrúlega há tala miðað við hversu stutt var liðið frá landnámi. Ekki höfðu myndast þéttbýlisstaðir og útgerð var á róðrarbátum. 900 árum síðar, árið 1874, hafði Íslendingum ekkert fjölgað. Þéttbýlis- kjarnar höfðu ekki myndast að neinu ráði og útgerðin var ekki enn á vélknúnum bátum.“ Rannveig sagði að um aldamótin 1900 hafi nútíminn byrjað að ryðja sér til rúms. „Erlend fjárfesting á Íslandi er það sem kom á hreyfingu á hlutina,“ benti Rannveig á. „Fyrsti stóri bankinn á mælikvarða þess tíma, Íslandsbanki, var stofnaður með dönsku og norsku hlutafé árið 1904. Í kjölfar þess má segja að iðnbyltingin hafi borist til Íslands hálfri annarri öld eftir að hún hafði tekið að breyta þjóðfélögum Vesturlanda. Stofnun banka varð aðaluppspretta fjármagns fyrir vélvæðingu íslenska fiskiskipaflotans.“ Önnur umskipti urðu á sjöunda áratugnum. „Við þekkjum öll söguna af Búrfellsvirkjun. Skilyrði fyrir lánveitingu til Íslands fyrir þeirri risaframkvæmd á þeim tíma var orku- sölusamningur við álverið í Straumsvík,” sagði Rannveig. „Þetta var jafnframt stærsta skrefið sem stigið hafði verið í uppbyggingu iðnaðar hér á landi. Ef ekki hefði tekist að reisa Búrfells-

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.