Þjóðmál - 01.06.2017, Qupperneq 75
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 73
Líkt og fram kemur í greinargerð með
þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland þá er, sem
betur fer, ólíklegt að hernaðarógn steðji að
Íslandi. Byggir það mat meðal annars á grein-
ingum Atlantshafsbandalagsins. Hins vegar,
eins og sömuleiðis kemur fram í greinar-
gerðinni, er hernaðarógn af þeim toga að
fullveldi og sjálfstæði þjóðar er stefnt í hættu
og því þarf að gera nauðsynlegar ráðstafanir.
Sem herlaus þjóð gerum við það best með
samningum við önnur ríki – í okkar tilviki
með tvíhliða varnarsamningi við Bandaríkin
og aðild að Atlantshafsbandalaginu, auk þess
sem við verðum að gæta þess að innlendur
viðbúnaður, líkt og stuðningur við erlenda
heri, sé fyrir hendi. Þá þarf ávallt að meta
stöðu og horfur í öryggis- og varnarmálum
með reglubundnum hætti og kveða lögin
um þjóðaröryggisráð á um hlutverk ráðsins
í þeim efnum. Ég tel að sýna þurfi ítrustu
árvekni við mat á hernaðarógn og teldi rétt
að þjóðaröryggisráð léti leggja nýtt mat á
hana og aðra áhættuþætti.
Skiljanlega er aðallega horft til suðurs og
austurs í þeim efnum en einnig hafa sjónir
beinst að Norður Atlantshafi á nýjan leik. Í
yfirlýsingu leiðtogafundar Atlantshafsbanda-
lagsins í fyrra er tekið fram að þar verði
bandalagið tilbúið til að beita fælingar- og
varnarmætti gegn hvers kyns hugsanlegri
ógn, þar á meðal á siglingaleiðum og hafs-
væðum í nágrenni NATO-ríkja. Í þessu sam-
hengi muni bandalagsríkin styrkja flota sína
enn frekar sem og árvekni, eftirlit og grein-
ingu á stöðu mála á norðanverðu Atlantshafi.
Rússneski flotinn hefur í auknum mæli
verið á kreiki á Norður Atlantshafi á síðustu
árum - reyndar eftir langt tímabil þar sem
hann var lítt eða ekki á ferð, hvorki herskip
hans né kafbátar. Í endurnýjunaráætlun fyrir
rússneska Norðurflotann hefur smíði kjar-
norkuknúinna kafbáta, sem bera eldflaugar
með kjarnaodda sem draga heimsálfa á milli,
fengið forgang. Í þessum kafbátum Norðurflot-
ans, sem haldið er úti í Barentshafi, er geymdur
stór hluti kjarnorkuherafla Rússlands.
„... við verðum að gæta þess að innlendur viðbúnaður, líkt og stuðningur
við erlenda heri, sé fyrir hendi. Þá þarf ávallt að meta stöðu og horfur í
öryggis- og varnarmálum með reglubundnum hætti og kveða lögin um
þjóðaröryggisráð á um hlutverk ráðsins í þeim efnum.”
Búast verður við að í stefnu Rússa sé miðað við að framvarnir eldflaugakafbáta í
norðurhöfum geti náð suður í GIUK hliðið svonefnda. Það er herfræðilegt hugtak sem nær
yfir hafsvæðin milli Grænlands og Íslands, Íslands og Færeyja og Færeyja og Bretlands.