Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 95

Þjóðmál - 01.06.2017, Síða 95
ÞJÓÐMÁL sumarhefti 2017 93 Tekur betra við - því er erfitt að svara en Yeonmi Park lýsir stöðunni með eftirfarandi hætti: „Næstum allt flóttafólk í Kína býr við viðvarandi öryggisleysi. Karlar sem komast yfir landamærin ráða sig oft í vinnu hjá bændum fyrir lúsarlaun. Þeir þora ekki að kvarta vegna þess að bóndinn getur bara sagt lögreglunni til þeirra og þá verða þeir handteknir og sendir aftur heim. Kínverska ríkisstjórnin kærir sig hvorki um flóð af innflytjendum né ágreining við leiðtogana í Pyongyang. Norður-Kórea er ekki aðeins viðskiptaaðili heldur einnig kjarnorkuveldi rétt við landamærin og auk þess mikil- vægur stuðpúði á milli Kína og nærveru Bandaríkjamanna í Suður-Kóreu. Stjórnvöld í Peking neita að veita fólki frá Norður- Kóreu stöðu flóttamanna og líta á það sem ólöglega „efnahagsinnflytjendur“ sem senda á aftur heim. Við vissum vitaskuld ekkert um þetta áður en við flýðum. Við héldum að okkur yrði fagnað. Og sums staðar var það raunin – en ekki af hálfu yfirvalda.” (Bls. 131) Mikil eftirspurn var eftir norðurkóreskum konum í sveitum Kína vegna þess að sökum eins barns stefnunnar í Kína voru miklu fleiri karlar en konur þar. Þær mæðgur sýna mikla þrautseigju við þessar erfiðu aðstæður og þrátt fyrir allt reynist auðveldara að eiga við kínverska glæpamenn en norður-kóreanska embættismenn. En Yeonmi Park er með hugann við það eitt að komast til Suður-Kóreu. Það er fyrir- heitna landið. Og að lokum tekst annar ævintýralegur flótti, nú yfir Góbí-eyðimörkina í Mongólíu. Fyrirheitna landið - Suður-Kórea Lokahlutinn fjallar um aðlögun að nýju lífi í Suður-Kóreu og eins og oftast er þá reynist margt erfitt í fyrirheitna landinu. Yeonmi Park fer í skóla en móðir hennar heldur áfram að leita að systur hennar sem þær urðu viðskilja við í Norður-Kóreu. Lýðveldið Kórea (Suður- Kórea) hefur í meira en sex áratugi þróast óháð lokaða ríkinu í norðri og jafnvel tungu- málið er orðið öðruvísi. Yeonmi Park líkir þessu réttilega við tímaferðalag að fara á milli landanna og líklega þyrfti að meðhöndla flóttafólkið með áfallastreituröskun, slík var breytingin. Aðlögunin er því erfið og kannski ekki síst að læra að hugsa sjálfstætt, en öll slík hugsun er kerfisbundin barin úr íbúum Norður-Kóreu. Það var því ekki nema vona að svona hugsanir leituðu á Yeonmi Park: „Aldrei hafði hvarflað að mér að frelsi væri svona erfitt og grimmt. Hingað til hafði ég alltaf haldið að frelsi þýddi að maður gæti gengið í gallabuxum og horft á þær kvikmyndir sem maður vildi sjá án þess að hafa áhyggjur af því að verða handtekinn. Nú áttaði ég mig á því að maður þurfti alltaf að vera að hugsa og það var feikilega þreytandi. Stundum velti ég fyrir mér hvort ég væri ekki betur sett í Norður- Kóreu ef ekki væri fyrir eilífa hungrið. Þar hugsuðu aðrir fyrir mig og völdu á milli kosta.” Yeonmi Park naut aðstoðar Maryanne Vollers, bandarísks rithöfundar og blaðamanns, við ritun bókarinnar sem er fróðleg og vel rituð. Frásögnin er lifandi og upplýsandi og aldrei eins og það sé verið að selja eina hug- myndafræði frekar en aðra. Það er skilið eftir fyrir lesandann að draga sínar ályktanir en staðreyndirnar tala vissulega sínu máli. Bókin lýsir ótrúlegri lífsreynslu þar sem venju- legt fólk þarf að berjast við ómanneskjulegt kerfi. Með lífið að veði situr í lesandanum lengi eftir lesturinn og er óhætt að mæla sterklega með henni. Það er lofsvert að bók sem þessi komi út á íslensku svo skömmu eftir alþjóð- lega birtingu hennar. Þýðing Elínar Guðmundsdóttur er lipur og hnökralaus. Á næstu opnu má finna brot úr einum kafla bókarinnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.