Heilsuvernd - 01.12.1993, Page 13

Heilsuvernd - 01.12.1993, Page 13
TREFJAFÆÐI Trefjarík fæða er ekki aðeins góð vöm gegn harðlífi og sjúkdómum sem leiða af því, heldur einnig gegn krabbameini í þörmum. Astæðan er sú að meltingarstarfsemin eykst og meltingartíminn verður skemmri. Fæða með miklum sykri og fitu er ekki fyrirferðarmikil í sér og þar að auki getur hún staðnæmst í þörmum í allt að eina viku. Matur með miklu sykurinnihaldi hækkar blóðsykurinn mjög snögglega en síðan fellur hann jafn hratt á ný. Hungurtilfinning gefur til kynna að blóðsykur hafi lækkað. Neysla trefjaríkrar fæðu kemur í veg fyrir sveiflur í blóðsykri - sveiflur sem geta leitt til sykursýki. Gallinn við trefjar er að þær binda steinefni, s.s. sink, járn, kalsíum og magnesíum. Afleiðingin er sú að hk- aminn getur ekki nýtt sér þessi efni vegna sýrunnar (fytínsýru) í fæðuteg- undum úr rúgi og hveiti. Hveitiklíð bindur sink en ávaxta- og grænmet- istrefjar binda járnið. Á móti þessu kemur að trefjar gefa aukavftamín og steinefni í vissum mæli. Einnig getur þú hjálpað til með því að borða fæðu sem er auðug af jámi, t.d. lifur og slátur, og einnig er gott að borða appelsínur eða aðrar fæðutegundir sem ríkar eru af C-víta- míni. Með því að drekka 2,5 dl af léttmjólk á dag er unnt að bæta líkam- anum það kalsíumtap sem trefjamar orsaka. Neytir þú sífellt trefjaríkrar fæðu mun líkaminn aðlaga sig að henni og þegar fram líða stundir mun hann nýta steinefnin á ný. Þetta á þó ekki við um sink. Við verðum sjálf að bæta okkur upp sink með því að borða fisk, egg og mjólkurvörur. I hvaða fæðutegundum em trefjar? Þegar matur er afhýddur, malaður, o.s.frv. hverfur mikið af trefjunum úr honum. Þú færð t.d. mun meira af trefjum úr brúnum hýðishrísgrjónum en hvítum. í 100 g af hýðishrísgrjón- um em 29 g af trefjum. Til saman- burðar má geta þess að í soðnum, hvítum hrísgrjónum em aðeins um 8 g af trefjum. Pasta, spagettí og makk- arónur, sem búnar em til úr heilu korni, eru einnig trefjaríkar fæðuteg- undir. I hvítu hveiti er minnst magn trefja. Þeir, sem baka sjálfir brauð, eru hvattir til þess að baka úr hveiti sem er bæði með kjama og hýði þar sem slík brauð innihalda þrisvar sinnum meira magn trefja en brauð úr hvítu hveiti. Einnig er gott að blanda grófu mjöli í hveitið þegar bakaðar eru pönnukökur og þess háttar til þess að auka trefjainnihald þeirra. Kaupendum brauða er ráðlagt að skoða vandlega innihaldslýsingar þeirra vegna þess að magn trefja er ákaflega mismunandi í brauðum. Nú á tímum er unnt að fá mjög trefjarík brauð og hrökkbrauð, t.d. Wasa fiber og Wasa husmann hrökkbrauðsteg- undimar, svo dæmi séu nefnd. Eins og sjá má á töflunni á bls. 12 er mjög auðvelt að fá trefjar með neyslu fæðutegunda úr korni. Mörg okkar borða þar að auki hafragrjón eða morgunkorn á morgnana en í þeim er mikið af trefjum. Þú getur auðveld- lega blandað morgunkorn að eigin smekk. Eftirfarandi morgunkoms- blanda inniheldur 15-20 g af trefjum: 240 g af trefjaríku morgunkomi, 120 g af krúska eða hveitiklíði, 10-20 þurrk- aðar og hakkaðar apríkósur, 120 g af rúsínum og 60 g af möndlum eða heslihnetum. Nokkrar matskeiðar af kiíði á dag Dennis P. Burkitt, sem er þekktur vísindamaður, staðhæfir að við get- um aukið heilbrigði okkar með því einu að neyta nokkurra matskeiða af kh'ði á hverjum degi. Klíð er mjög þurrar trefjar sem erf- itt getur verið að kyngja. Til þess að fá sem svarar til 2-3 matskeiða af kh'ði á dag þarf að neyta 5-6 brauðsneiða. Þegar þú borðar mikið af trefjum finnur þú fljótt til þorsta og því er mikilvægt að þú drekkir mikið, helst tvo lítra af vökva á dag. En, varist hitaeiningarnar! Best er að slökkva þorstann með vatni en einnig er gott að drekka jurtate eða kaffi án sykurs og rjóma. Heimatilbúinn sítrónudrykkur er svalandi og heilsusamlegur. Kreistu safann úr einni sítrónu. Skerðu kjöt sítrónunnar í litla bita (ekki nota hýðið vegna þess að það kann að hafa verið Trefjadrykkir með klíði 1 msk. klíð 2 msk. eplamauk 1,5 dl léttmjólk eða léttsúrmjólk í drykknum eru 2,2 g af trefjum. Blandaðu saman klíði, eplamauki og léttmjólk- inni (eða léttsúrmjólkinni). Drykkurinn á að vera kaldur þegar hans er neytt. 1,5 msk. klíð 2 dl rósaldinsúpa eða bláberjasúpa I drykknum eru 2,1 g af trefjum. Blandaðu saman klíði og rósaldin- eða blá- berjasúpunni. Drykkurinn á að vera kaldur þegar hans er neytt. 1 msk klíð 0,5 dl af ananasmauki 0,5 dl af léttmjólk eða léttsúrmjólk í drykknum eru 2 g af trefj- um. Blandaðu saman klíði, ananasmaukinu og léttmjólk- inni eða léttsúrmjólkinni. Drykkurinn á helst að vera kaldur. 13

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.