Heilsuvernd - 01.12.1993, Qupperneq 25

Heilsuvernd - 01.12.1993, Qupperneq 25
vinnutækið sjáum ekki þann árangur, sem við vonuð- umst eftir, og finnst við standa okkur illa. Hlutdeild okkar verður sveiflukennd. Hún verður stundum ómarkviss vegna þess að við efumst um leið. Smám saman nær neikvæðni samstarfsmanna að smita út frá sér en við reynum að láta hana ekki hafa áhrif á okkur. Til þess að hlífa okkur ein- angrum við okkur. Heilsan byrjar að gefa sig, svolítill magaverkur og stundum höf- uðverkur gera vart við sig. Við efumst um starfið eða spyrjum okkur hvort við séum á réttri hillu eða jafnvel hvort nám okkar hafi verið vitlaust. Við óttumst framtíðina; verður starfið svona þangað til ég fer á eftirlaun? Við verðum sjálf neikvæð og sjáum stöðugar hindranir á vegi okkar og starfsfélaganna. „Þetta kemur aldrei til með að ganga,“ verður viðkvæðið. Við finnum fyrir aukn- um vanmætti og vankunnáttu og ekkert virðist vera til bóta. Geðvefrænu einkennin eru orðin þrá- lát, við drögum okkur meira í hlé og miss- um allan áhuga. Deyfðarskeiðið: Við gefumst upp — bæði í starfi og í voninni um að geta breytt einhverju. Við fiarlægjumst samstarfsmenn og flöl- skyldu. Sjálfstraustið hverfur alveg. Við teljum okkur ekki geta neitt, allra síst að breyta til eða skipta um vinnu. Við hirðum ekki um starfið og eigum það til að ráfa um, sjá um félagsstörf, stinga af eða verða sinnu- laus. KULNUN: Við erum líkamlega eða andlega buguð og neyðumst til hætta eða skipta um starfsvettvang. HHMHMMHHHHI 25

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.