Heilsuvernd - 01.12.1993, Síða 38

Heilsuvernd - 01.12.1993, Síða 38
FRETTIR Kapp er best með forsjá Þótt alltaf sé verið að hvetja fólk til þess að stunda íþróttir má ekki gleyma því að íþróttaslys eru orðin töluvert algeng og því betra að fara að öllu með gát. Nýlega var birt niðurstaða rannsókna á íþróttaslysum í Noregi og leiddi hún í ljós að allt að 100 þúsund Norðmenn slasast árlega við íþrótta- iðkun. Sem betur fer eru flest slysanna ekki alvar- leg, aðallega eru þetta tognanir og minni háttar skrokkskjóður. Algeng- ustu íþróttaslysin, bæði í Noregi, Svíþjóð og Finn- landi, eru skíðaslys en tal- ið er að 10-15% allra íþróttaslysa verði við skíðaiðkun. Þessi slys eru líka oft alvarlegustu slysin - slitin Uðbönd, beinbrot og slæmar tognanir. Telja Norðmenn að skíðaslys kosti þjóðina um einn milljarð norskra króna ár- lega. Rannsóknir hafa leitt í ljós að slys og áverk- ar, sem karlar og konur verða lyrir, eru mismun- andi. Konur verða oftast fyrir ökklameiðslum eða hnjámeiðslum en karl- menn lenda oftar í bein- brotum og jafnvel alvar- legum brjóst- og hrygg- meiðslum. Astæðan er talin sú að þegar konur sjá að stefnir í óefni hjá þeim þá kasta þær sér fljótt nið- ur en karlamir „keyra“ á fullri ferð uns þeir lenda á einhverju eða fá harða byltu. Skattahækkun á tóbak Clinton Bandaríkjafor- seti er ákveðinn að herða áróður og baráttu gegn reykingum. Fyrsta skrefið í þeirri baráttu var að hækka töluvert skatta á tóbak. Andstæðingar for- setans segja að hugur fylgi ekki máli hjá honum, heldur hafi það eitt vakað fyrir honum að fá meiri peninga í ríkiskassann. Benda þeir á að ekkert af skattahækkuninni renni til áróðurs gegn reyking- um sem hefði þó verið eðli- legt ef forsetanmn hefði verið alvara að herða bar- áttuna gegn ósómanum. Ný skýring á vöggudauða Talið er að árlega deyi um sex þúsimd ungböm vöggudauða í Bandaríkj- unum og hefur tíðni slíkra dauðsfalla fremur farið vaxandi en hitt og lækna- vísindin hafa til þessa að mestu staðið ráðþrota gagnvart fyrirbærinu. Nú telja bandarískir vísinda- menn, sem rannsakað hafa vöggudauðann, sig hafa komist á sporið a.m.k. að einhverju leyti. Telja þeir að efnismikil rúmföt geti verið hættuleg og þá sérstaklega ef komabömin em látin sofa á maganum. Telja þeir að að rúmfötin safni smátt og smátt í sig koltvísýringi þeim sem bömin anda frá sér og þau fái síðan ekki nægjanlegt súrefni og kafni. Vísindamennimir segja að vissulega geti verið margar aðrar ástæður fyrir vöggudauð- anum en telja að fyllsta ástæða sé til þess að vara foreldra, eða aðra þá sem annast komaböm, við rúmfötunum. Þá hafa þeir einnig bent á að á Nýja Sjá- landi, þar sem vöggudauði er hlutfallslega meiri en víðast hvar annars staðar í heiminum, sé það mjög al- gengt að fólk hafi gæm- skinn undir komabömun- um og telja þeir að slíkt skapi mikla hættu á því að koltvísýringurinn safnist upp og verði síðan bömun- um að aldurtila. (U.S. Today) Fleiri reyklaus fýrirtæki Stöðugt er unnið á í bar- áttunni gegn tóbaksreyk- ingum á íslandi og æ fleiri vinnustaðir em nú orðnir reyklausir. Meðal stórra fyrirtækja, semurðu reyk- lausir um siðustu áramót, em Sparisjóður Reykja- víkur og nágrennis, SPRON og Prentsmiðjan Oddi en fjöldi fólks starfar hjá báðum þessum fyrir- tækjum. 38

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.