Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 52

Heilsuvernd - 01.12.1993, Blaðsíða 52
SVEFISILEYSI loftið út en nýtt og kalt útiloft kemur í staðinn. Undantekningarlaust virkar það vel á fólk og það á auðveldara með að sofna. Ef fólk vaknar upp um miðj- ar nætur geta slík „loftskipti“ einnig verið ráðið sem nægir til þess að hægt sé að sofna aftur. Gott rúm og góð sængurföt hafa sitt að segja. Það er engin fjarstæða þegar fullyrt er að besta fjárfesting sem völ er á sé gott rúm. Hafðu það í huga þegar þú velur þér rúm að líklegt er að þú sért eins og allir aðrir og eyðir um það bil þriðjungi ævinnar í rúminu. Oftsinnis heyrum við Islendingar útlendinga kvarta yfir því að það sé nær ómögulegt að sofna og sofa hér á sumrin. Það sé allt of bjart. Við erum hins vegar vanir næturbirtunni á sumrin og fæstir kippa sér upp við hana. En það er hins vegar staðreynd að birta getur haft veruleg áhrif bæði á svefn og svefnþörf fólks. Þeir sem þola illa birtu á nóttunni ættu einfald- lega að fá sér dökk gluggatjöld í svefn- herbergi sín eða dökkar rúllugardín- ur. Þá eru einnig margir mjög við- kvæmir fyrir hávaða eða hljóðum og kannast víst margir við hversu erfitt er að sofna þegar gist er á hótelum sem standa við umferðargötur. Til er einfalt og ágætt ráð til þess að vinna bug á slíkri svefnfælni - nefnilega sú að kaupa sér eymatappa og nota þá! Búðu þig undir svefninn Það er einnig mjög mikilvægur þáttur, sem mörgum sést þó alveg yfir, að búa sig vel undir svefninn. Ef fólk er ekki í jafnvægi þegar það geng- ur til hvílu er nokkum veginn víst að það á erfitt með að sofna. Síðasta klukkutímann áður en lagst er til svefns er því ráðlegt að gera ýmsar ráðstafanir til þess að róa sig niður. Aðferðir, sem henta við slíkt, eru mjög mismunandi og einstaklings- bundnar. Sumum hentar mjög vel að grípa bók og lesa um stund. Öðrum hentar betur að sitja í uppáhaldsstólnum sín- um, horfa út í loftið og láta hugann reika. Heitt bað eða fótabað virkar mjög róandi og góð kvöldganga er einnig æskilegur undirbúningur fyrir svefninn. Ferska loftið auðveldar þér að slaka á sem aftur hefur það í för með sér að þú sofnar fyrr og betur. Þá getur það virkað mjög róandi að fá sér heitan drykk og súpa hann í hinum mestu rólegheitum. Enginn drykkur virkar betur í þessum efnum en flóuð mjólk. Lærðu að slaka á En umfram allt. Reyndu að slaka á og ef þú getur það ekki lærðu það þá. Slökun og slökunaræfingar geta ráðið úrslitum um hvort þú getur sofnað og sofið eðlilegum hvfldarsvefni. Til eru einfaldar æfingar sem vert er að reyna sem fyrstu skref í slökuninni. Andaðu djúpt og rólega að þér og frá þér. Krepptu annan hnefann í nokkrar sekúndur. Opnaðu hann og slakaðu á. Endurtaktu þetta nokkrum sinnum. Þú munt þá fljótlega komast að því hver munurinn er á spennu og slökun. Hvfldu þig í um það bil 30 sekúndur, krepptu síðan hinn hnefann og opnaðu á sama hátt. Reyndu að slaka á í öxl- unum, sveiflaðu handleggjunum ró- lega fram og til baka og reyndu að hreyfa höfuðið í hringhreyfingar. Gættu þess að gera slíkar æfmgar rólega og átakalaust. Ef slíkar æfing- ar eru gerðar áður en gengið er til rekkju er líklegt að spennan í líkaman- um verði minni og þú sofnir fljótt. En hefur það eitthvað að segja að telja kindur, eins og sýnt er í teikni- myndunum? Svarið er já, slíkt getur haft áhrif einfaldlega vegna þess að þá dreifir þú huganum og ferð að hug- leiða eitthvað annað en það sem þú hefur kannski áhyggjur af. Það er staðreynd að slík talning og umhugs- un samfara henni gerir fólk syþað. Og sérfræðingar í slíku segja að það sé betra að telja niður en upp. Fimmtíu kindur ... förutíu og níu kindur ... ijörutíu og átta kindur ... Sofðu... vel... 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.