Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 7

Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 7
mmmmmmmmmmm PiWppiiÍlii SKOKK Útað skokka Ertu stressaður? Vildir þú vera í betri þjálfun? Vildir þú kannski vera nokkrum kílóum léttari? Ef svo er þá er ágætt ráð að kaupa sér góða skó, taka frá hálftíma nokkrum sinnum í viku, magna upp viljastyrkinn og fara að skokka. Skokkið hefur vissulega marga kosti. Það er hægt að skokka nánast hvar og hvenær sem er ef nægur vilji er fyrir hendi. Það er hægt að skokka á gangstéttunum, í almenningsgörð- um eða á auðum svæðum sem víða eru til staðar. Yfir höfuð þykir flestum þægilegast að skokka t.d. í fjörunni eða á óbyggðum svæðum, ekki síst ef eitthvað er að veðri og færð eins og raunar er oft á íslandi yfir vetrartím- ann. En það er hægt að skokka í nóv- ember, janúar, maí, júh' og septem- ber. Hér gildir sannarlega hið fom- kveðna „að vilji er allt sem þarf.“ Allt og sumt sem fólk þarf að gera er að smeygja sér út fyrir útidymar. Það þarf engar íþróttahallir og það þarf heldur ekki að panta sér neinn tíma. Ef fólk byrjar að skokka fær það fljótlega umbun erfiðis síns og úthald- ið hefur vaxið ótrúlega mikið jafnvel nokkmm vikum eftir að byijað var að skokka. Fólk finnur strax að það get- ur meira og meira og eftir nokkra hríð er líklegt að aukakílóunum taki að fækka og fólk geti meira að segja borðað meira án þess að þyngjast. Skokkið færir fólki líka betri heilsu, meira sjálfstraust og því má heldur ekki gleyma, því það er mikilvægt fyrir suma, að skokkið eykur líka án- ægju margra af kynlífi og gerir þá hæfari til þess að stunda það með meiri ánægju og oftar. Réttir skór Fólk þarf ekki að eyða miklum fjár- munum í útbúnað til þess að fara að skokka en vert er þó að hafa það í huga að skórnir gegna mikilvægu hlutverki og því er ráðlegt að kaupa sér þegar í upphafi góða skokkskó. Fólk þarf að hafa það í huga að skokk- ið reynir mikið á fætuma; það setur fætuma niður 400-500 sinnum á hverjum kílómetra, sem það skokkar, og þunginn, sem kemur á fótinn við skokkhreyfinguna, getur verið þre- faldur eða jafnvel fjórfaldur líkams- þungi viðkomandi. Það er því mikil- vægt að skórnir virki sem einskonar höggdeyfir; þeir geta hindrað fylgi- kvilla sem mögulegt er að fólk finni fyrir þegar það byrjar að skokka. Því er ekki ráðlegt að draga úr pússi sínu gamla badminton- eða leik- fimiskó. Fæturnir og bakið eiga annað og betra skilið. Skómir eiga að draga úr högginu þegar fæturnir snerta jörðina í skokkinu. Einkenni góðra skokkskóa eru eft- irfarandi: 1) Þeir hafa sterka hælkappa sem draga úr högginu á hælana. 2) Þeir hafa rúnnaða hælsóla. 3) Þeir hafa háa táhettu þannig að gott rými sé fyrir tæmar. 4) Hælkappinn er fóðraður þannig að ekki sé hætta á hælsæri. 7

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.