Heilsuvernd - 01.03.1994, Page 14
Kynlífsraunir
Michaels Douglas
Patrick Carnes segir í bók sinni
„Don’t Call It Love“ að ýmsar ytri
aðstæður geti ráðið því hvort fólk eigi
það á hættu að verða kynlífsfíklar eða
ekki. Hann bendir t.d. á að fólk, sem
vinnur krefjandi og stressandi störf,
sé í meiri hættu en aðrir. Nefnir hann
sérstaklega hve margir kvikmynda-
leikarar séu í hættu. I Beverly Hills í
Hollywood búa um 8000 leikarar en
aðeins 800 hafa trygga atvinnu og af-
komu. Einmitt á þessum stað
blómstrar kynlífsfíknin og um leið al-
næmissjúkdómurinn. Margir þekktir
kvikmyndaleikarar hafa komið við
sögu og þurft að leita sér lækninga
vegna óseðjandi kynlífsiðju sinnar.
Einn þeirra er hinn þekkti leikari
Michael Douglas og hefur hann raun-
ar gengið fram fyrir skjöldu og talað
opinskárra um þetta vandamál en
flestir aðrir. Hefur hann óspart hvatt
þá, sem eiga við erfiðleika að etja á
þessu sviði, til að leita sér aðstoðar
og lækninga. Kvikmyndaleikonan
Sharon Stone, sem leikið hefur á móti
Douglas, segir að hann hreinlega dá-
leiði konur með kynþokka sínum. Di-
andra, eiginkona Michaels, kom að
honum í hótelherbergi þar sem hann
var að hafa mök við aðra konu og í
framhaldi af því fékk hún hann til þess
að leita sér lækninga.
Michael Douglas hikaði ekki við að
fara í hópmeðferð þar sem hann varð
m.a. að lýsa því hvenær hann fengi
ómótstæðilega löngun til þess að
komast yfir konur og hvað hann gerði
þegar hann náði tangarhaldi á þeim.
Hann varð að skrifa lýsingar á hugar-
órum sínum og sýna öðrum í hópnum
þær.
Michael Douglas hefur látið hafa
eftir sér að meðferðin hafi orðið til
þess að hann hafi náð stjórn á hvötum
sínum og stundi nú ekki framhjáhald
eins og hann gerði áður fyrr. Hann
segir líðan sína nú aðra og betri en
áður en rétt eins og aðrir þjáðist hann
af sektarkennd og ótta vegna fram-
ferðis síns.