Heilsuvernd - 01.03.1994, Síða 23
KVEF
Þannig ferðu að:
1. Blandaðu örlitlu af sinnepsdufti
út í vatn og hrærðu vel í.
2. Fylltu lítinn bala eða vaskafat af
heitu vatni.
3. Helltu sinnepsblöndunni í vatn-
ið.
4. Settu fætuma í vatnið. Reyndu
að hafa vatnið eins heitt og þú
þolir. Ágætt er að bæta heitu
vatni út í þegar vatnið fer að
kólna.
Laukur og salt losa stíflur
úr nefi
Hægt er að nota lauk eða salt til
þess að losa stíflur úr nefinu, en slíkar
stíflur eru mjög algengar þegar fólk er
kvefað. Ef fólk notar lauk þá er best
að skera hann í skífur. Leggið síðan
skífurnar í heitt vatn og andið gufunni
að ykkur. Snýtið ykkur síðan (já og
strjúkið tárin burtu).
Ef fólk notar salt getur verið ágætt
að setja venjulegt matarsalt í teskeið
og leysa það upp í volgu vatni. Hellið
síðan nokkrum dropum af saltvatns-
blöndunni í lófann og sogið inn í nefið.
Snýtið ykkur síðan og endurtakið
leikinn nokkrum sinnum.
Jurtate
Það eru til nokkrar tegundir af
jurtate sem mörgum þykja gefa góða
raun ef fólk er kvefað. TÓ þess að ná
sem bestum árangri þarf að fara að
nota slíkt jurtate jafnskótt og kvefsins
verður vart. Fylgið jafnan leiðbein-
ingum sem prentaðar eru á tepakk-
ana.
trónusafa á dag meðan viðkomandi er
kvefaður eða telur sig vera að kvef-
ast. Ef fólki fmnst slíkur drykkur of
súr og bragðvondur er hægt að
blanda svolitlu hunangi í drykkinn
sem þá verður bragðminni. Það er
einnig hægt að taka tvær til þrjár C-
vítamíntöflur á dag og eiga þær að
gera sama gagn og sítrónudrykkur-
inn. Ef fólk hefur særindi í hálsi er líka
ágætt að skola hálsinn með sítrónu-
safa. í mörgum tilvikum slær slíkt á
sárindin.
Sítrónusafann má búa þannig
til:
Skerið sítrónur í fjóra báta. Takið
einn bátinn og kreistið safann úr hon-
um út í glas með heitu vatni. Skolið
síðan munninn og hálsinn með vökv-
anum - helst á tveggja klukkustunda
fresti á meðan á særindunum í hálsin-
um stendur.
Andaðu að þér gufu
Þá er það einnig gamalkunnugt
húsráð að anda að sér gufu þegar fólk
er kvefað og nefgöngin eru hálfstífluð
eða stífluð. Þá er ágætt ráð að blanda
t.d. pipamintuolíu, kamilluolíu eða
furunálaoku í vatnið. Til er kamillute í
apótekum (Flos Camomille).
Þannig er best að fara að:
Vatn er soðið og því hellt í skál.
Hellið nokkrum dropum af ilmolíu í
vatnið.
Beygið ykkur yfir skálina og andið
djúpt gegnum nefið í nokkrar mínút-
ur.
Leggið stórt handklæði, t.d. bað-
handklæði, yfir höfuðið og niður yfir
skálina. Þannig endist gufan og hitinn
betur.
Farið í slíkt „mini“gufubað að
morgni, um miðjan daginn og á kvöld-
in þangað til að þið eruð orðin alveg
hress aftur.
Gætið þess að ætla ykkur ekki um
of. Ef ykkur finnst gufan óþægilega
heit er um að gera að taka sér smá-
hvíld. Varist að brenna ykkur!
Sinnep
Um langan aldur hefur sinnep verið
talið virka gegn hósta, kvefi og in-
flúensu. Því er talið ágætt ráð að fara í
heitt fótabað og blanda sinnepsdufti
út í vatnið. Þá verður fólki fljótt fun-
heitt á fótunum og blóðrásin örvast.
23